Donald Trump Gengur um borð í for­seta­þot­una Air Force One í gær á leið til helg­ar­dvalar í New Jersey. Mynd: AFP

Trump boðar að Grænland verði undir bandarískri stjórn 2029

Banda­ríkja­for­seti hvetur til veð­máls um inn­limun Græn­lands.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti gefur til kynna að mark­mið hans sé að Banda­ríkin yfir­taki Grænland fyrir árið 2029.

Í síma­við­tali í síð­ustu viku gaf hann til kynna að hann sæti fastur við sinn keip varð­andi fyrri áform um inn­limun lands­ins, þvert gegn and­stöðu græn­lensku þjóð­ar­innar og græn­lenskra og danskra stjórn­valda.

Nokkrum vikum eftir að Donald Trump for­seti ítrek­aði kröfu sína um að Banda­ríkin fengju yfir­ráð yfir Græn­landi, full­viss­aði hann hægri­s­inn­aðan sjón­varps­þátta­stjórn­anda um að það væri öruggt að það myndi ger­ast.

„Þú ert líka enn að horfa til Græn­lands,“ spurði Steve Gruber, þátta­stjórn­andi „Real America's Voice“, Trump í síma í síð­ustu viku. „Ég spáði því í þessum þætti að áður en þú létir af emb­ætti yrði Grænland undir okkar stjórn. Það er enn ótrú­lega mik­il­vægt til að verja vest­ur­hvel jarðar, er það ekki?“

„Já, þú munt hafa rétt fyrir þér,“ svar­aði Trump. „Grænland er mik­il­vægt  frá okkar sjón­ar­horni. Ekki frá þeirra sjón­ar­horni. Heldur frá okkar sjón­ar­horni. Já, þú ættir eig­in­lega að veðja á það.“

„Ég veðj­aði á það og ég held að það sé ótrú­lega mik­il­vægt,“ svar­aði Gruber.

Líkt og gagn­vart Íslandi eru Banda­ríkin með varn­ar­samn­ing um Grænland, sem gerður var við dönsk stjórn­völd 1951. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að Banda­ríkja­for­seti hóti að inn­lima landið með valdi, en síðar hefur hann gefið til kynna að samið verði um það.

Trump hefur sagt að Banda­ríkin hafi gert mis­tök með því að „skila“ Græn­landi aftur til Dan­merkur eftir Seinni heims­styrj­öld­ina. 

Á NATO-fund­inum í Ankara í Tyrk­landi í júlí sagði Trump aftur að Græn­landi „ætti að vera stjórnað af Banda­ríkj­unum, en ekki Danmörku“.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Í stað þess að einbeita sér að fleiri athugasemdum í spjallþáttum, af hverju ekki að skrifa grein um eitthvað sem hefur byrjað að gerast á austurhluta Grænlands í gær, eins og lýst er í þessari grein frá í gær í The Guardian: https://www.theguardian.com/world/2026/aug/08/greenland-iwarning-trump-linked-oil-firm-prepares-drill. Mér finnst að þetta verðskuldi að vera fjallað um í aðalhlutverki í Danmörku og vegna nálægðar við landið einnig á Íslandi, og að Danmörk myndi gefa út sterka viðvörun auk þeirrar sem kemur frá Grænlandi? En það virðist bara vera þögn enn sem komið er.
    1
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Ég sá þessa grein sem þú ert að vitna í og ég er alveg sammála, þarna eru stórir alvarlegir hlutir að gerast.
      1
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Skítur er bæði hvítur og brúnn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár