Trump tilkynnir um samning við Grænland og Danmörku

„Veitir Banda­ríkj­unum var­an­leg yfir­ráð yfir örygg­is­málum og öllum öðrum þörfum á Græn­landi,“ segir Trump. Danir og Græn­lend­ingar segj­ast ánægðir með samn­ing­inn.

Trump tilkynnir um samning við Grænland og Danmörku
Donald Trump For­set­inn hót­aði að inn­lima Grænland, en hefur nú lokið við samn­ing. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í kvöld að hann hefði gert „ótíma­bund­inn“ samn­ing við Danmörku sem veitir Banda­ríkj­unum yfir­ráð yfir örygg­is­málum Græn­lands og kemur í veg fyrir að erlendir and­stæð­ingar komi sér þar upp bæki­stöðvum.

„Það er mér ánægja að til­kynna að Banda­ríki Norður-Ameríku hafa gert samn­ing við kon­ungs­ríkið Danmörku og Grænland sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði á föstu­dag að hann hefði gert „ótíma­bund­inn“ samn­ing við Danmörku sem veitir Banda­ríkj­unum yfir­ráð yfir örygg­is­málum Græn­lands og kemur í veg fyrir að erlendir and­stæð­ingar komi sér þar upp bæki­stöðvum.

„Það er mér ánægja að til­kynna að Banda­ríki Norður-Ameríku hafa gert samn­ing við kon­ungs­ríkið Danmörku og Grænland sem veitir Banda­ríkj­unum var­an­leg yfir­ráð yfir örygg­is­málum og öllum öðrum þörfum á Græn­landi,“ sagði Trump á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social.

„Héðan í frá getur eng­inn and­stæð­ingur Banda­ríkj­anna NOKKURN TÍMA komið sér upp bæki­stöð á Græn­landi, haft hern­að­ar­lega við­veru á Græn­landi eða gert við­kvæmar fjár­fest­ingar á Græn­landi án okkar ský­lausa skrif­lega sam­þykkis.“

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur fagn­aði samn­ingnum.

„Ég er ánægð með að það séu horfur á góðum samn­ingi fyrir Grænland, danska ríkið og Banda­ríkin. Samn­ingur sem styrkir sam­eig­in­legt öryggi okkar á norð­ur­slóðum og Norður-Atl­ants­hafi og er þar með einnig góður fyrir NATO og Evrópu. Og samn­ingur sem við­ur­kennir um leið full­veldi og land­helgi danska rík­is­ins og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt græn­lensku þjóð­ar­innar.“

Formaður græn­lensku rík­is­stjórn­ar­innar, Naal­akk­ersu­isut, Jens-Frederik Nielsen, segir í frétta­til­kynn­ing­unni að samn­ing­ur­inn muni tryggja og styrkja öryggi Græn­lands, danska rík­is­ins, Banda­ríkj­anna og vest­ræna banda­lags­ins.

„Samn­ing­ur­inn við­ur­kennir hags­muni Græn­lands og stöðu okkar í alþjóð­legu sam­starfi. Það er okkur öllum til hags­bóta,“ segir hann.

Örygg­is­samn­ing­ur­inn tryggir að Kína og Rússland geti ekki komið sér upp her­stöðvum þar, sagði utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna í dag.

„Samn­ing­ur­inn tryggir Banda­ríkj­unum bein­línis fulla heim­ild til að gera það sem þau telja nauð­syn­legt á Græn­landi til að tryggja og verja amer­ísku heims­álf­una, þar á meðal var­an­legan aðgang, her­stöðvar og yfir­flugs­rétt,“ sagði emb­ætt­is­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem vildi ekki láta nafns síns getið.

„Þessi samn­ingur tryggir að Kína og Rússland geta ekki haft her­stöð á Græn­landi, þau geta ekki sent her­lið til Græn­lands og nauð­syn­legir ferlar eru til staðar til að koma í veg fyrir fjár­fest­ingu í við­kvæmum geirum.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ágúst Kvaran skrifaði
    Fréttin um samning Trumps (USA(?)) við Grænland og Danmörku vekur upp spurningar.
    Ég hnaut um tilvísanir í viðbrögð Trums á borð við,
    "..Veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir..........öllum öðrum þörfum á Grænlandi" og "..nauðsynlegir ferlar eru til staðar til að koma í veg fyrir fjárfestingu í viðkvæmum geirum."

    -sem urðu til þess að ég rifjaði upp skoðanagrein frá því í janúar á þessu ári (sjá neðar), þar sem bent er á að Trump / Trump-stjórnin sjái sér mikinn hag í því að „eignast“ Grænland, ekki hvað síst til þess að ná yfirráðum yfir tilvonandi framleiðslu og nýtingu sjaldgæfra jarðmálma, sem þar er að finna, og sem nýtanlegir eru til margra hluta, þ.m.t. í hertækni.

    Þegar maður ber saman yfirlýsingar Danskra og Grænlenskra stjórnvalda annars vegar, sem leggja megináherslu á þátt varnarfyrirkomulags og fullveldis Grænlands í samningnum og hins vegar yfirlýsingar Trumps á borð við þær sem vitnað er í hér ofar vaknar spurning hvort skilningur samningsaðila á megininntaki samningsins sé gjörólíkur(?!)

    Skoðanagrein á visi.is 9.1.2026:
    https://www.visir.is/g/20262826842d/ahhh-thess-vegna-vill-trump-eignast-graenland-
    1
    • GH
      Greg Hill skrifaði
      það virðist vera ansi stórkostlegur danskur bilun. Ég skil það ekki. Kanada virðist vera það eina sem hefur einhvern kjark.
      0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Samningurinn tryggir Bandaríkjunum beinlínis fulla heimild til að gera það sem þau telja nauðsynlegt á Grænlandi til að tryggja og verja amerísku heimsálfuna, þar á meðal varanlegan aðgang, herstöðvar og yfirflugsrétt"

    Semsagt það sama og hefur gilt frá 1951. Það er ekki nýr samningur heldur endurnýjun samnings.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Svo á bara eftir að koma í ljós hvort orð forsætisráðherra Kanada eigi við hér, um að samningsundirskriftir Bandaríkjanna virðast of gerðar með blýant, núna á síðustu og verstu tímum. Ekki skrítið að almenningur í Grænlandi sé tortrygginn.
    1
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    full heimild til að gera hvað sem er . hann nær sínu framm hvað sem hver segir .eins og á íslandi
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.
Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­aldar: Græn­lend­ingar læra af mis­tökum Íslend­inga

Grænland vill að ferða­þjón­usta standi undir fjöru­tíu pró­sentum af útflutn­ings­tekjum lands­ins árið 2035. Athygli alþjóða­sam­fé­lags­ins hefur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ingar segja Banda­ríkja­for­seta hafa aukið áhuga á land­inu líkt og eld­gosið við „Eyja­fjalla­jökul“ gerði hér. Heim­ildin rýndi í þróun ferða­þjón­ust­unnar á Græn­landi sem hefur lært af ávinn­ingum og mis­tökum nágranna­rík­is­ins Íslands.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár