Ferðaþjónusta á hjara veraldar: Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga

Grænland vill að ferða­þjón­usta standi undir fjöru­tíu pró­sentum af útflutn­ings­tekjum lands­ins árið 2035. Athygli alþjóða­sam­fé­lags­ins hefur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ingar segja Banda­ríkja­for­seta hafa aukið áhuga á land­inu líkt og eld­gosið við „Eyja­fjalla­jökul“ gerði hér. Heim­ildin rýndi í þróun ferða­þjón­ust­unnar á Græn­landi sem hefur lært af ávinn­ingum og mis­tökum nágranna­rík­is­ins Íslands.

<span>Ferðaþjónusta á hjara veraldar:</span>  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
Vaxandi áhugi Ferða­langar leita í meira mæli til Græn­lands. Mynd: AFP

„Áhuginn frá Banda­ríkja­for­seta hefur nátt­úr­lega komið okkur á kortið – í raun okkar Eyja­fjalla­jök­ull,“ segir Inga Dóra Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sjálf­bærni og sam­skipta hjá Air Greenland. Heims­at­hyglin hefur beinst að Græn­landi und­an­farið í kjöl­far ummæla Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í jan­úar síð­ast­liðnum um yfir­töku lands­ins. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Trump ágirn­ist stærstu eyju heims­ins en á sínu fyrra kjör­tíma­bili lýsti hann því yfir að hann vildi að Banda­ríkin keyptu Grænland.

Ferða­þjón­usta á Græn­landi hefur verið í vexti und­an­farin ár og stjórn­völd þar í landi stefna á að árið 2035 standi ferða­þjón­ustan fyrir fjöru­tíu pró­sentum af útflutn­ingi lands­ins. Í dag eru pró­sentin fimm.

Heim­ildin ræddi við sér­fræð­inga um stöðu ferða­þjón­ust­unnar á Græn­landi sem hefur getað dregið lær­dóm af nágranna sínum, eld­fjalla­eyj­unni Íslandi, landi sem eitt sinn reiddi sig nán­ast alfarið á sjáv­ar­út­veg­inn en komst síðan á kortið.

Baráttan um ferðalög norðurslóða

Á heima­síðu Visit Greenland er …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár