Ákvað að vera hún sjálf og græddi vinkonu

Daniela Yolanda Melara Lara og María Rós Stein­þórs­dóttir heill­uð­ust af per­sónu­töfrum hvor ann­arrar í skap­andi sum­ar­starfi á Aust­ur­landi í sumar. María teikn­aði gælu­dýr Danielu og nú hitt­ast þær á Katta­kaffi­hús­inu.

Ákvað að vera hún sjálf og græddi vinkonu
Vinkonur Sköp­un­ar­kraft­ur­inn var kveikjan að vin­skap Danielu Yolanda Melara Lara og Maríu Rós Stein­þórs­dóttur. Þær eru miklir dýra­vinir og það er því vel við hæfi að hitt­ast á Katta­kaffi­hús­inu. Mynd: Heimildin

Daniela Yolanda Melara Lara og María Rós Stein­þórs­dóttir kynnt­ust í skap­andi sum­ar­starfi á Aust­ur­landi í sumar. Á snjó­þungum vetr­ar­degi í jan­úar mæla þær sér mót á Katta­kaffi­hús­inu í Berg­staða­stræti. Þetta er síð­asta kaffi­spjallið í bili þar sem Daniela er að flytja aftur austur, til Breið­dals­víkur.

„Við vorum að teikna fyrir fólk í Fjarða­byggð. Ég hef ótrú­lega mik­inn áhuga á list og að teikna fyrir fólk. Ég hef teiknað gælu­dýr fyrir fólk. Kannski er það ástæðan fyrir því að við erum hér á Katta­kaffi­hús­inu. Það er svo gaman að tala við fólk og sjá hvernig það upp­lifir gælu­dýrin sín,“ segir María, sem teikn­aði gælu­dýrið hennar Danielu, veiði­hund­inn Max. Það voru gælu­dýrin sem sam­ein­uðu þær. María á tvær kisur. „Eða mamma og pabbi eiga þær tækni­lega séð,“ bendir hún á. 

Dýra­vinurMaría Rós Stein­þórs­dóttir nýtur þess að teikna gælu­dýr fólks. „Það er svo gaman að tala við fólk og sjá hvernig það upp­lifir gælu­dýrin sín.“

„Max er mjög skemmti­legur hundur, hann er voða­lega mik­ill orku­bolti og það er smá vesen að hafa hann hérna fyrir sunnan, ég fékk hann í Covid þannig hann fær mik­inn aðskiln­að­ar­kvíða. Hann er ótrú­lega skemmti­legur og fékk mig til að elska hliðar á mér sem ég hafði áður skamm­ast yfir, að vera orku­bolti og vera úti um allt,“ segir Daniela. 

MaxMaría teikn­aði veiði­hund­inn Max fyrir Danielu vin­konu sína. Hann er orku­bolti eins og sést.

Að vera í skap­andi sum­ar­starfi hjálp­aði Danielu að virkja skap­andi hugsun. „Ég er að læra lög­fræði, sem getur verið svo­lítið þungt, og var búin að vera að vinna hjá sýslu­manni síð­ustu sumur og var þreytt þegar önnin byrj­aði þannig að mig lang­aði að gera eitt­hvað annað. Það er líka mjög skemmti­legt að kynn­ast öðru fólki, þetta er mjög fjöl­breyttur hópur. Ég er enn þá í lög­fræð­inni, á bara masters­rit­gerð­ina eftir. Ég ætla að skrifa um útlend­inga­mál.“

List­sköpun og lög­fræðiAð vera í skap­andi sum­ar­starfi hjálp­aði Danielu að virkja skap­andi hugsun. „Ég er að læra lög­fræði, sem getur verið svo­lítið þungt.“

Daniela heill­að­ist af list­sköpun Maríu sem varð kveikjan að þeirra vin­áttu. „Ég tengdi við list­ina sem hún var að gera, ótrú­lega flott. Á meðan ég er meira „emo“ er hennar allt öðru­vísi en svo áhuga­verð.“   

„Það er áskorun að eign­ast vini þegar þú ert komin yfir tví­tugt,“ segir María og Daniela tekur undir. „Ég var í kafla í líf­inu þar sem ég var alveg hætt að þykj­ast vera ein­hver sem ég er ekki. Ég var byrjuð að vera ég sjálf og hafði þá loks­ins styrk­inn til að taka á móti því ef ein­hver var ekki að sam­þykkja mig eins og ég er. Það hvatti mig til að vera vin­kona þín af því að þú varst ein­stök og ekki hrædd við að vera öðru­vísi.“ 

Þær horfast í augu og brosa. 

„Ég er mjög svipuð gagn­vart þér, þú ert svo opin með alls konar. Það er ógeðs­lega flott,“ segir María. 

Þær kveðj­ast og vita ekki alveg hvenær þær munu sjást næst. En þær verða í sam­bandi.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár