Samherjafélag afskrifar 257 milljóna lán til félags Eyþórs Arnalds borgarfulltrúa

Félag Samherja sem lán­aði Eyþóri Arnalds fyrir hluta­bréfum í Morg­un­blað­inu tap­aði 200 millj­ónum í fyrra. Skuld félags Eyþórs við Sam­herj­a­fé­lagið hefur nú verið afskrifuð að fullu. Félagið sem lánar Eyþóri er fjár­magnað óbeint af sama félagi á Kýpur og greiddi Namib­íu­mönnum hund­ruð millj­óna króna í mútur.

Samherjafélag afskrifar 257 milljóna lán til félags Eyþórs Arnalds borgarfulltrúa
Samherji gefur eftir kröfu sína Dótt­ur­fé­lag Samherja hefur fært niður 257 millj­óna króna kröfu sína á hendur félagi Eyþórs Arnalds borg­ar­full­trúa sem heldur utan um hluta­bréf í Árvakri. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Eign­ar­halds­fé­lagið Katt­ar­nef ehf., sem er í eigu útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Kaldbak, hefur afskrifað 257 millj­óna króna selj­enda­lán sem félagið veitti eign­ar­halds­fé­lagi í eigu Eyþórs Arnalds árið 2017. Lánið var veitt félagi Eyþórs, Rames II. ehf, vegna kaupa þess félags á nærri fjórð­ungs­hluti í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. fyrir árið 2019 sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­katt­stjóra þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

Katt­ar­nef var stofnað gagn­gert til að halda utan um hluta­bréfa­eign Samherja í Árvakri.  

Tekið skal fram að Eyþór var ekki orð­inn borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar hann keypti þessi hluta­bréf Sam­herj­a­fé­lags­ins í Mogganum í apríl árið 2017.  Eyþór varð borg­ar­full­trúi rúmu ári síðar, í lok maí árið 2018, og hefur hann haldið á umræddum hluta­bréfum í Árvakri sam­hliða störfum sínum hjá Reykja­vík­ur­borg æ síðan. 

Eign­ar­hald Eyþórs á bréf­unum hefur vakið mikla athygli og umtal síð­ast­liðin ár og nægir að nefna nýlega gagn­rýni Dóru Bjartar Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Pírata, sem hefur vakið umtal í fjöl­miðlum síð­ustu daga. 

Æltar ekki að hættaDóra Björt Guð­jóns­dóttir hefur sagt að hún ætli ekki að hætta að spyrja Eyþór Arnalds um við­skiptin með hluta­bréfin í Árvakri.

Tapaði tæpum 200 milljónum

Í árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. kemur fram að félagið tap­aði tæp­lega 200 millj­ónum króna í fyrra. Félagið átti sam­tals 256 millj­óna króna eignir í árs­lok 2018 en í árs­lok 2019 voru þær komnar niður í 63 millj­ónir króna. Ástæðan er „virð­is­rýrnun krafna“ Katt­ar­nefs á hendur félagi Eyþórs Arnalds, Ramsesi II ehf. Vaxta­ber­andi kröfur Katt­ar­nefs fóru úr tæp­lega 250 millj­ónum króna í árs­lok 2018 og niður í 0 krónur í árs­lok 2019. 

Eftir sem áður standa skuldir Katt­ar­nefns við fjár­fest­inga­fé­lagið Kaldbak ehf. ónið­ur­færðar. 

„Það er alvar­legt mál ef hægt er að kaupa stjórn­mála­mann“

Kald­bakur er móð­ur­fé­lag Katt­ar­nefs og er það í eigu Samherja. Katt­ar­nef skuldar Kaldbaki tæp­lega 286 millj­ónir kríona. En þar sem Katt­ar­nef á nær engar eignir, nema skatt­eign upp á rúm­lega 50 millj­ónir króna, er ljóst að félagið getur ekki greitt Kaldbaki skuld­ina. Alveg ljóst er því að Kald­bakur mun á end­anum þurfa að afskrifa kröfu sína á hendur Katt­ar­nefi, alveg eins og Katt­ar­nef hefur afskrifað kröfu sínar á hendur félagi Eyþórs Arnalds. 

Eins og Stundin hefur greint frá er fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Kald­bakur meðal ann­ars fjár­magnað með láni frá eign­ar­halds­fé­lagi Samherja á Kýpur, Esju Seafood. Þetta félag flutti pen­inga til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands árið 2012. Fyrir vikið fékk Samherji 20 pró­senta afslátt á íslensku krón­unum sem voru keyptar fyrir pen­ing­ana frá Esju Seafood. 

Á næstu árum á eftir átti sama félag Samherja á Kýpur eftir að greiða mörg hund­ruð millj­ónir króna til namibískra áhrifa­manna í skiptum fyrir kvóta í Namibíu, eins og Kveikur og Stundin greindu frá í fyrra í sam­vinnu við Wikileaks. 

Sagði Eyþór hafa verið keyptan

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir sagði í vik­unni að ýmis­legt benti til að Samherji hefði keypt Eyþór Arnalds. Hún setti við­skipti þeirra með hluta­bréf í Árvakri í sam­hengi við við­skipti Krist­jáns Vil­helms­sonar, ann­ars stærsta eig­anda Samherja, með nýjan mið­bæj­ar­kjarna á Selfossi sem nú rís. Eyþór var áður odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­stjórn Selfoss og ýjaði hún að því að Eyþór hefði liðkað til fyrir þeim við­skiptum. „Það er alvar­legt mál ef hægt er að kaupa stjórn­mála­mann. […] Núna hafa komið fram nýjar upp­lýs­ingar um upp­bygg­ingu Samherja á Selfossi í mið­bænum og ég hef ítrekað spurt Eyþór út í það hvers vegna hann fékk mörg hund­ruð millj­ónir frá Samherja þegar hann fékk gef­ins hlut í Morg­un­blað­inu og hann hefur aldrei svarað almenni­lega fyrir það. Hann fer alltaf að snúa út úr og drepa málum á dreif.“

„Hér dylgjar hún alger­lega út í loftið“

Í umræðum um málið í borg­ar­stjórn greip Eyþór til varnar fyrir sig og sagði Dóru Björt dylgja: „Hér dylgjar hún alger­lega út í loftið, hún verður sjálfri sér til minnk­unar um miðbæ Selfoss og greiðslur og fleira sem er ekki bara henni til van­semdar heldur öllum hérna inni í salnum.“

Eyþór Arnalds hefur ekki skilað árs­reikn­ingi Ramses II ehf. fyrir árið 2019 og því er ekki hægt að sjá hvernig félag hans bók­færir við­skiptin við Katt­ar­nef í nýjasta árs­reikn­ingi sínum. 

Út frá fyr­ir­liggj­andi gögnum er hins að verða ljóst hver nið­ur­staðan í mál­inu er. Eyþór Arnalds keypti stóran hlut í Mogganum af Samherja árið 2017 og kemur hann ekki til með að greiða útgerð­inni neitt af lán­inu sem hún veitti honum fyrir bréf­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár