Eignarhaldsfélag Eyþórs Arnalds, fjárfestis og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, sem á hlutabréf í Morgunblaðinu, er á endanum fjármagnað af Kýpurfélagi Samherja, Esju Seafood, sem er miðpunkturinn í mútugreiðslum og fjármagnsflutningum Samherjasamstæðunnar erlendis.
Esja Seafood er það félag Samherja sem tekur við peningum sem Samherjasamstæðan hefur komið undan í starfsemi sinni í Namibíu í Afríku, meðal annars í gegnum Máritíus, og það er þetta félag sem Samherji notar meðal annars til að greiða stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu mútur til að fá aðgang að makrílkvóta í landinu eins og fram kemur í umfjöllunum Stundarinnar, Wikileaks, Kveiks og Al Jazeera.
Eyþór hefur ekki vijað veita Stundinni viðtal um Moggaviðskiptin þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.































Athugasemdir