Niðurstöðu er beðið í ágreiningsmáli fyrir héraðsdómi áður en tekin verður ákvörðun um hvort ákært verður í Samherjamálinu svokallaða. Úrskurðar í því máli er að vænta fljótlega.
Þetta kemur fram í svörum Ólafs Þórs Haukssonar héraðssaksóknara við fyrirspurn Heimildarinnar en ýmis kærumál hafa tafið það að embættið taki ákvörðun um ákæru í málinu.
Greint var frá því fyrir rétt tæpu ári, 2. júlí 2025, að rannsókn embættis héraðssaksóknara á málinu væri lokið. Málið varðar meintar mútugreiðslur Samherja til hátt settra embættismanna í Namibíu til að öðlast fiskveiðiheimildir í landinu. Hagnaðurinn var tekinn út í gegnum flókið net félaga víða heim sem vakti upp spurningar um skattaundanskot.






















































Athugasemdir