Borgarfulltrúi skuldar stærsta útgerðarfélagi landsins út af hlutabréfum í Morgunblaðinu

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi og fjár­festir, hefur ekki viljað útskýra hvernig hann fjár­magn­aði við­skipti sín með Morg­un­blaðið árið 2017. Í árs­reikn­ingi félags Samherja, sem átti stóran hlut í Morg­un­blað­inu, kemur fram 225 millj­óna króna lán til ótil­greinds aðila vegna sölu á hluta­bréfum í félag­inu.

Borgarfulltrúi skuldar stærsta útgerðarfélagi landsins út af hlutabréfum í Morgunblaðinu
Fjár­mögnun óljós og hefur ekki sklað árs­reikn­ingi Eyþór Arnalds hefur ekki skilað árs­reikngi fyrir félag sitt Ramses II ehf. sem heldur utan um fjár­fest­ingu hans í Morg­un­blað­inu í gegnum félagið Ramses ehf. sem hann er fram­kvæmda­stjóri hjá sam­hliða því að starfa sem borg­ar­full­trúi. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Eign­ar­halds­fé­lag útgerð­ar­innar Samherja virð­ist hafa selt Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg og fjár­festi, hluta­bréf í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins með láni upp á 225 millj­ónir króna árið 2017. Kaupverð eign­ar­hlut­ar­ins, sem ekki var greitt við sölu hluta­bréf­anna, nam 225 millj­ónum króna og lán­aði eign­ar­halds­fé­lag Samherja sömu upp­hæð til ótil­greinds aðila þetta sama ár þegar það seldi hluta­bréfin sín.

Eign­ar­halds­fé­lag Samherja, Katt­ar­nef ehf., var stofnað utan um fjár­fest­ingu útgerð­ar­innar í Morg­un­blað­inu og er það fjár­magnað með láni frá tengdum aðila upp á 264 millj­ónir króna, lík­lega móð­ur­fé­lagi þess, Kaldbaki ehf. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. fyrir árið 2017 en reikn­ing­ur­inn er, af ein­hverjum ástæðum, óend­ur­skoð­aður. Í árs­reikn­ingnum stendur að „sölu­verð eign­ar­hluta í öðrum félögum“ hafi numið 225 millj­ónum króna og að „vaxta­ber­andi kröfur“ hafi numið sömu upp­hæð, 225 millj­ónum. Eini til­gangur Katt­ar­nefs og einu eignir félags­ins voru hluta­bréfin í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. 

Eyþór Arnalds hefur ekki gefið Stund­inni færi á við­tali …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár