Stærsti hlut­haf­inn Kristján Vil­helms­son er stærsti eig­andi nýja mið­bæj­ar­ins á Selfossi. Vit­neskja um þetta var ekki almenn þegar íbúa­kosn­ing um mið­bæ­inn var haldin árið 2018. Mynd: Auðunn Níelsson

Kristján í Samherja er stærsti eigandi nýs miðbæjar Selfoss

Bygging nýs mið­bæjar á Selfossi stendur nú yfir. Verið er að reisa 35 hús sem byggð eru á sögu­legum íslenskum bygg­ingum. Stærsti hlut­hafi mið­bæj­ar­ins er Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­maður í Samherja, en eign­ar­hald hans á nýja mið­bænum var ekki uppi á borðum þegar gengið var til íbúa­kosn­ingar um fram­kvæmd­irnar árið 2018.

Kristján Vil­helms­son, annar stærsti eig­andi útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja, er annar stærsti eig­andi fast­eigna­fé­laga sem eiga tugir lóða og fast­eigna sem munu mynda nýjan miðbæ á Selfossi á Suð­ur­landi. Helsta félagið kall­ast Sigtún þró­un­ar­fé­lag og standa fram­kvæmdir nú á fullu yfir í bænum. Áætlaður kostn­aður við verk­efnið er 5,5 millj­arðar króna.

Vit­neskjan um að Kristján Vil­helms­son sé einn helsti eig­andi hins nýjar mið­bæjar á Selfossi er ekki útbreidd. Til að mynda virð­ist núver­andi for­maður bæj­ar­ráðs Árborgar, Eggert Valur Guð­munds­son, ekki vita að Kristján Vil­helms­son er stærsti eig­andi verk­efn­is­ins og þar með fram­tíðar mið­bæjar Selfoss. Í ljósi þessa má spyrja hversu útbreidd vit­neskjan um eign­ar­hald Krist­jáns er í sveit­ar­fé­lag­inu, en hann er hvergi tengdur við verk­efnið í opin­berum upp­lýs­ingum frá Sigtúni þró­un­ar­fé­lagi.

Lágreistur miðbæjarkjarni með sögulegum innblæstri

Verið er að byggja 35 ný hús sem eiga að mynda nýja mið­bæ­inn á tveggja hekt­ara svæði og mun bygg­ing­ar­magnið verða um 25 þús­und fer­metrar. Í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um innanhússdeilurnar í Sjálfstæðisflokknum í Árborg
SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um inn­an­húss­deil­urnar í Sjálf­stæð­is­flokknum í Árborg

Dramat­ísk atburða­rás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar frá­far­andi bæj­ar­stjóri, Fjóla Krist­ins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæj­ar­stjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deil­urnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tím­ann til próf­kjörs­bar­áttu í flokknum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.
Tómas boðaður í skýrslutöku vegna tilboðs Leós
FréttirSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Tómas boð­aður í skýrslu­töku vegna til­boðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna frétta af til­boði sem hann fékk sem kjör­inn full­trúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjár­festi og for­svars­manni Sigtúns þró­un­ar­fé­lags. Tómas segir að erindi skýrslu­tök­unnar sé að ræða um „mögu­legt mútu­brot“.
Bauð kjörnum fulltrúa fjárhagsaðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum full­trúa fjár­hags­að­stoð í skiptum fyrir póli­tískan stuðn­ing

Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa til­boð árið 2020. Bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveit­ar­fé­lagið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár