Ung móðir með fáar reglur

Gít­ar­leik­ar­inn og sviðs­lista­nem­inn Katrín Guð­bjarts­dóttir segir frá því hvernig það var að verða móðir á mennta­skóla­aldri.

Þegar ég var átján ára varð ég ólétt og tók ákvörðun um að leyfa fóstr­inu að vaxa í barn. Ég var ótrú­lega ung og vissi ekki hver ég var, ég vissi ekki hvert ég ætl­aði að fara og ég vissi ekki hvert ég myndi þora að fara.

Það voru allir að reyna að taka ákvörðun fyrir mig og eftir mikla pressu úr öllum áttum, um að fara ann­að­hvort í fóst­ur­eyð­ingu eða ekki, þá ákvað ég sjálf að þetta fóstur yrði að barni. Núna er Bryn­hildur að byrja í skóla í haust. Þessi ákvörðun færði mér ábyrgð­ar­hlut­verk sem ég átti ekki séns í á sínum tíma, en ég tók því og gerði eins vel og ég mögu­lega gat, og er enn að því.

Vegna þess hversu ung ég var þá hefur dóttir mín fengið mjög frjáls­legt upp­eldi. Það gerir það að verkum að hún nær ein­hvern veg­inn að vera full­kom­lega hún. Hún veit hvað hún vill og hvenær hún vill það, sem er ótrú­lega skemmti­legt. En þetta er eitt­hvað sem fólk af eldri kyn­slóðum tekur ekki vel í og finnst ekki snið­ugt að það sé lítið af reglum, en ég fæ alla­vega að sjá ham­ingju­samt barn sem veit hvað það vill, sem er ótrú­lega gaman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár