Fyrsti ráðherrann segir af sér vegna Partygate

Dóms­mála­ráð­herra Bret­lands hefur sagt af sér vegna veislu­halda í Downingstræti 10 þegar strangar sótt­varna­reglur voru í gildi. Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra hefur greitt sekt vegna lög­brota. Hann ætlar ekki að segja af sér en lofar nán­ari útskýr­ingum.

David Wolfson, dómsmálaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna Partygate. Hann var þó ekki viðstaddur neitt samkvæmi.
David Wolfson, dóms­mála­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt af sér vegna Par­tygate. Hann var þó ekki við­staddur neitt sam­kvæmi. Mynd: Wikipedia

Tveir ráð­herrar Bret­lands hafa verið sektaðir vegna Par­tygate-hneyksl­is­ins svo­kall­aða, Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra og Rishi Sunak fjár­mála­ráð­herra.

Þeir ætla ekki að segja af sér en það hefur David Wolfson, dóms­mála­ráð­herra Bret­lands og þing­maður Íhalds­flokks­ins, hins vegar gert.

Hann seg­ist ekki eiga aðra kosta völ en að segja af sér emb­ætti vegna þátt­töku ráð­herra í sam­kvæmum í Downingsstræti á tímum útgöngu­banns vegna COVID-19.

[adspot]Johnson og Sunak voru í vik­unni sektaðir af lög­reglu vegna brota á sótt­varna­reglum þegar þeir voru viðtstaddir afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra í Downingstræti 10 19. júní 2020. Þeir telja sekt­irnar ekki ástæðu til að segja af sér emb­ætti.

Þrír þingmenn Íhaldsflokksins krafist afsagnar Johnon

Wolfson segir hins vegar að hann hafi ekki séð annan kost en hann skrif­aði Johnson bréf í vik­unni þar sem hann gagn­rýndi við­brögð rík­is­sjórn­ar­innar við sekt­unum og lög­brot­unum. Wolfson sendi Johnson upp­sagn­ar­bréf sitt í morgun og er fyrsti ráð­herr­ann sem segir af sér vegna Par­tygate. Aðeins þrír þing­menn Íhalds­flokks­ins hafa sagt opin­ber­lega að Johnson eigi að segja af sé.

[links]Breska lög­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­varna­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veirunn­­ar. Johnson var við­staddur í að minnsta kosti þremur þeirra. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­um. John­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektað­ur.

Johnson hefur lofað að útskýra mál sitt betur og fara yfir allt sem teng­ist sam­kvæm­unum sem hann hefur sagt við þing­menn. Johnson hefur ítrekað verið sak­aður um lygar. Í fyrstu sagði hann að engar reglur hafi verið brotnar. Í við­tali eftir að hann hafði verið sektaður sagði hann að í eigin afmæl­is­veislu hefði hann aldrei grunað að hann væri að brjóta lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár