Til rannsóknar hvort Johnson hafi afvegaleitt þingmenn vegna partýstands

Breska þingið hefur sam­þykkt að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd meti hvort Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra hafi af ásettu ráði villt um fyrir þing­mönnum í umræðum um veislu­höld í Downingstræti á tímum heims­far­ald­urs.

Partygate-hneykslið svokallaða hefur vakið mikla reiði meðal kjósenda og talið hafa veikt stöðu forsætisráðherra sem heldur ótrauður áfram.
Par­tygate-hneykslið svo­kall­aða hefur vakið mikla reiði meðal kjós­enda og talið hafa veikt stöðu for­sæt­is­ráð­herra sem heldur ótrauður áfram. Mynd: EPA

Rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins mun rann­saka hvort Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haldin voru á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á tímum strangra sótt­varna­regla vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Þetta var ákveðið á breska þing­inu í gær í sér­stakri umræðu um Par­tygate-hneykslið svo­kall­aða. Þingmenn rík­is­stjórn­ar­innar gerðu hvað þeir gátu til að tefja atkvæða­greiðslu um hvort vísa ætti máli for­sæt­is­ráð­herra til rann­sókn­ar­nefndar en hættu því skyndi­lega og varð skipan rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar því sam­þykkt. Rannsókn nefnd­ar­innar mun þó ekki hefj­ast fyrr en rann­sókn lög­reglu á tíðum veislu­höldum í Downingstræti 10 lýkur en lög­reglan er með tólf sam­kvæmi til rann­sóknar.

„Ef stjórn­ar­and­staðan vill ein­blína á þetta og ræða frekar er það í góðu lagi mín vegna,“ sagði Johnson, sem er staddur í opin­berri heim­sókn á Indlandi. Johnson var að minnsta kosti við­staddur þrjú sam­kvæmi á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, ýmist þegar útgöngu­bann eða strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna útbreiðslu COVID-19 voru í gildi. Hann hefur ítrekað beðist afsök­unar en telur sig ekki þurfa að segja af sér emb­ætti.

Rannsókn sérstaks saksóknara, lögreglurannsókn og nú rannsókn þingnefndar

Sue Gray, sér­stakur sak­sókn­ari, er með 16 sam­kvæmi til rann­sóknar, en hennar rann­sókn felst í að meta eðli og til­gang veislu­hald­anna ásamt því að taka saman hverjir voru við­stadd­ir. Um innri rann­sókn er að ræða frekar en sjálf­stæða rann­sókn og er hún fyr­ir­skipuð af John­son sjálf­um. Kraf­ist er hlut­leysi af hálfu Gray og ber henni að skila nið­ur­stöðum sínum til for­sæt­is­ráð­herra. Hún skil­aði bráða­birgða­skýrslu í lok jan­úar en loka­skýrsla er vænt­an­leg þegar rann­sókn lög­reglu lýkur.

[links]John­son ávarp­aði þing­menn í fyrsta sinn í vik­unni eftir að lög­regla sektaði hann, Carrie John­son eig­in­konu hans og Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, fyrir að vera við­stödd afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra sem fram fór í Down­ing­stræti 10 19. júní 2020.Fyrstu 20 sekt­­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­­um.

John­­son var búinn að gefa það út að hann ætl­aði að upp­­lýsa um það yrði hann sektað­­ur. Það gerði hann og í gær gaf hann út að hann hafi ekk­ert að fela, ætli ekki að standa í vegi fyrir rann­sókn og er hann sann­færður um að Íhalds­flokk­ur­inn vilji hann áfram sem leið­toga.

Tveir þing­menn flokks­ins voru hins vegar allt annað en sáttir í umræðum í þing­sal í dag. Steve Baker, fyrr­ver­andi ráð­herra, krafði Johnson um afsögn og William Wragg, þing­maður flokks­ins, hefur lagt fram van­traust­s­til­lögu á for­mennsku Johnson.

Litlar líkur á að niðurstaða nefndarinnar hafi áhrif á störf forsætisráðherra

Rannsókn nefnd­ar­innar mun fel­ast í því sem stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafa haldið statt og stöðugt fram: Að John­son hafi afvega­leitt þing­menn af ásettu ráði þegar hann sagði að gild­andi sótt­varna­reglum hafi ávallt verið fylgt í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og í við­burðum á vegum þess.

Þegar nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu mun hún leggja fram til­lögur sem þing­menn greiða atkvæði um, em gætu meðal ann­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­gerðum gegn for­sæt­is­ráð­herra. Litlar líkur eru þó taldar á því að mál­inu verði vísað til nefnd­ar­innar í ljósi tryggs meiri­hluta Íhalds­manna á þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár