Partygate hvergi nærri lokið – Myndum af Johnson í enn einu samkvæminu lekið

Myndir sem sýna Boris Johnson hafa áfengi um hönd í sam­kvæmi í Downingstræti þegar útgöngu­bann vegna heims­far­ald­urs COVID-19 var í gildi hafa verið birtar í breskum fjöl­miðlum. Mynd­irnar þykja grafa undan trú­verð­ug­leika for­sæt­is­ráð­herra.

Fjórar myndir sem sýna Boris Johnson hafa áfengi um hönd í samkvæmi í Downingstræti í nóvember 2020 hafa verið birtar í breskum fjölmiðlum. Myndirnar þykja grafa undan trúverðugleika forsætisráðherra.
Fjórar myndir sem sýna Boris Johnson hafa áfengi um hönd í sam­kvæmi í Downingstræti í nóv­em­ber 2020 hafa verið birtar í breskum fjöl­miðlum. Mynd­irnar þykja grafa undan trú­verð­ug­leika for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Mynd/skjáskot:ITV

Breska sjón­varps­stöðin ITV hefur birt fjórar myndir sem sýna Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, með drykk í hönd í sam­kvæmi í Downingstræti 10. Mynd­irnar eru teknar í kveðju­hófi í nóv­em­ber 2020 fyrir þáver­andi upp­lýs­inga­full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Lee Cain. Útgöngu­bann var þá í gildi, í annað sinn eftir að far­ald­ur­inn braust út. Samkomur tveggja eða fleiri inn­an­dyra voru þá með öllu bann­aðar en und­an­þágur voru veittar ef um var að ræða „nauð­syn­legar vinnu­tengdar sam­komur“.

Kveðju­hófið er eitt af tólf sam­kvæmum á vegum breskra yfir­valda á tímum strangra sótt­varna­reglna sem voru hluti af rann­sókn bresku lög­regl­unnar. Rann­sóknin stóð yfir í um fjóra mán­uði og lauk fyrr í þessum mán­uði. 83 manns voru sektaðir vegna brota á sótt­varna­reglum alls gaf lög­regla út 126 sektir.

Sektaður fyrir eigin afmælisveislu – ekki kveðjuhófið

Johnson var sektaður fyrir að vera við­staddur eigin afmæl­is­veislu, 19. júní 2020, sem haldin var í Downingstræti. Veislan var lítil, skipu­lögð af eig­in­konu hans, Carrie Johnson, en var brot á þágild­andi sótt­varna­reglum að mati lög­reglu og því var sekt nið­ur­staðan. Johnson var hins vegar ekki sektaður vegna kveðju­hófs­ins í nóv­em­ber. Samkvæmt heim­ildum BBC var gefin út sekt í tengslum við kveðju­hófið en náði hún ekki til for­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]Johnson er fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að lög­brot. Hann hefur ítrekað beðist afsök­unar og full­yrt að það hafi ekki hvarflað að honum á sínum tíma að hann væri að brjóta lög. „Það voru mín mis­tök og ég biðst inni­legrar afsök­unar á þeim,“ sagði Johnson þegar hann ávarp­aði þingið í síð­asta mán­uði eftir að hann var sektaður. Johnson sagð­ist skilja reið­ina og sær­indin sem hann olli og að almenn­ingur eigi rétt á því að búast við meiru af eigin for­sæt­is­ráð­herra.

Mynd­irnar sem nú hafa verið birtar þykja grafa undan ítrek­uðum afsök­un­ar­beiðnum for­sæt­is­ráð­herr­ans, sér­stak­lega þar sem mynd­irnar eru teknar í nóv­em­ber 2020, um tíu mán­uðum eftir að far­ald­ur­inn braust fyrst út.

Vínflöskur, vínglös, gin og handspritt

„Boris Johnson sagði ítrekað að hann vissi ekk­ert um brot á lögum - það er eng­inn vafi núna, hann laug. Boris Johnson setti regl­urnar, og hann braut þær,“ sagði Angela Rayner, vara­for­maður Verka­manna­flokks­ins, eftir að mynd­irnar fjórar voru birtar í fjöl­miðlum í gær.

Stjórn­mála­skýrendur telja að miðað við það sem sést á þeim hafi Johnson auð­veld­lega átt að gera sér grein fyrir að hann var í sam­kvæmi. Á mynd­unum sjást að minnsta kosti átta manns standa þétt saman, áfengi er aug­ljós­lega haft um hönd og sjá má vín­flöskur, vín­glös, gin­flösku, að ógleymdu hand­spritti, á borð­inu sem Johnson stendur við. Á nokkrum mynd­anna lyftir Johnson glasi og virð­ist vera að skála eða halda ræðu.

Johnson var spurður út í kveðju­hófið í þing­sal í byrjun des­em­ber. Catherine West, þing­maður Verka­manna­flokks­ins, spurði hvort að sam­kvæmi hafi átti sér stað í Downingstræti 13. nóv­em­ber. „Nei,“ svar­aði for­sæt­is­ráð­herra. „En ég er viss um að sama hvað átti sér stað, að farið hafi verið eftir reglum í einu og öllu.“

Sagan endalausa?

Partý­stand í Downingstræti hefur fengið við­ur­nefnið „Par­tygate“ og virð­ist ætla að fylgja for­sæt­is­ráð­herra hvert fót­mál. Í upp­hafi árs baðst hann afsök­unar á að hafa verið við­staddur garð­veislu í Downingstræti í maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Í kjöl­farið bár­ust fregnir af fleiri sam­komum á vegum breskra stjórn­valda og var Sue Gray, sér­stökum sak­sókn­ara, falið að gera rann­sókn til að meta eðli og til­gang veislu­hald­anna.

[links]Um innri rann­sókn er að ræða. Krafist var hlut­leysi af hálfu Gray og bar henni að skila nið­ur­stöðum til for­sæt­is­ráð­herra. Þegar breska lög­reglan hóf sjálf­stæða rann­sókn á veisu­höld­unum flækt­ust málin. Gray var gert að bíða með rann­sókn sína á meðan lög­reglu­rann­sóknin stóð yfir. Hún skil­aði þó bráða­birgða­skýrslu 31. jan­úar þar sem fram kom að veislu­höld í Downingstræti á tímum útgöngu­banns eða strangra sótt­varna­regla voru óvið­eig­andi og að skortur hafi verið á for­ystu­hæfi­leikum og dóm­greind, bæði hjá starfs­fólki í Downingstræti sem og á skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­innar.

Nú þegar lög­reglu­rann­sókn er lokið má búast við end­an­legri skýrslu Gray, jafn­vel á næstu dögum. Þegar hún liggur fyrir mun Johnson ávarpa þing­heim enn einu sinni til að ræða „Par­tygate“ og vonar hann vænt­an­lega að það verði í síð­asta skipti. Stjórn­ar­and­staðan og margir stjórn­mála­skýrendur eru hins vegar á öðru máli.

En Par­tygate er hvergi nærri lokið. Rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins mun nú rann­saka hvort Johnson hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haflin voru á tímum strangra sótt­varna­reglna. Þegar nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu mun hún leggja fram til­lögur sem þing­menn greiða atkvæði um, sem gætu meðal ann­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­gerðum gegn for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár