Partýstandið í Downingstræti: Sérstakur saksóknari með 16 samkomur til rannsóknar

Brot á sótt­varna­reglum í Downingstræti 10 eru til rann­sóknar hjá Sue Gray, sér­stökum sak­sókn­ara, og búist er við að skýrsla hennar verði birt eftir helgi. En hvað er það nákvæm­lega sem Gray er að rann­saka og hvaða völd hefur hún?

16 samkomur á vegum breskra stjórnvalda, margar hverjar í Downingstræti 10, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
16 sam­komur á vegum breskra stjórn­valda, margar hverjar í Downingstræti 10, þegar harðar sam­komu­tak­mark­anir voru í gildi eru til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur beðist afsök­unar á að hafa verið við­staddur um þrjá­tíu manna veislu í Down­ing­stræti 10, 20 maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Veislu­höldin fóru fram í garði Down­ing­stræti og var hund­rað boðs­gestum meðal ann­ars bent á að „hafa eigið áfengi með­ferðis til að njóta góða veð­urs­ins eins best væri á kosið“. Um 30 manns þekkt­ust boðið, þar á meðal Johnson sjálfur og Carrie Johnson, eig­in­kona hans.

[links]John­son sagð­ist skilja reiði almenn­ings á þátt­töku hans í veislu­höld­unum en hann sagð­ist hafa verið sann­færður um að „um vinnu­tengdan við­burð hafi verið að ræða“.

Rannsókn Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, felst í að meta eðli og til­gang veislu­hald­anna ásamt því að taka saman hverjir voru við­staddir. Um innri rann­sókn er að ræða frekar en sjálf­stæða rann­sókn og er hún fyr­ir­skipuð af Johnson sjálfum. Krafist er hlut­leysi af hálfu Gray og ber henni að skila nið­ur­stöðum sínum til for­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]16 samkomur á vegum stjórnvalda til skoðunar

Sue Gray er eins og gefur að skilja ein umtal­að­asta mann­eskjan í breskum fjöl­miðlum þessa dag­ana. Gray starfar á vegum rík­is­stjórn­ar­innar og því hefur hæfi hennar verið dregið í efa. Hún hefur sinnt starfi sínu um ára­bil og unnið bæði með Íhalds­flokknum og Verka­manna­flokknum.

Í des­em­ber tók Gray við af Simon Case sem sér­stökum sak­sókn­ara, sem sagði af sér eftir að upp komst um gleð­skap sem hald­inn var á skrif­stofu hans á tímum sam­komu­tak­mark­ana. Rannsókn Gray bein­ist einmitt að fleiri sam­komum en ein­ungis garð­veisl­unni eða gleð­skap á skrif­stofu fyrr­ver­andi sér­staks sak­sókn­ara. Alls er um sextán sam­komur að ræða en tíma­lína veislu­halda á vegum stjórn­valda á tímum sam­komu­tak­mark­ana er á þessa leið:

10. maí 2020:

Boris Johnson kynnir fyrstu skref aflétt­inga eftir útgöngu­bann sem hafði verið í gildi frá því í mars. Hann ráð­lagði almenn­ingi hins vegar að fara áfram eftir reglum um fjar­lægð­ar­tak­mark­anir og til að fram­fylgja þeim reglum var komið á sektum „fyrir þann smáa minni­hluta sem brýtur þær“. Samkvæmt gild­andi reglum mátti aðeins fara út fyrir húss­ins dyr af brýnni nauð­syn og aðeins mátti hitta eina mann­eskju utandyra.

15. maí 2020:

Mynd sem tekin var fyrr í mán­uð­inum sýnir for­sæt­is­ráð­herr­ann og starfs­fólk hans gæða sér á víni og ostum í garði Downingstrætis. Aðspurður sagði Johnson að þarna hafi verið á ferð­inni fólk á vinnu­tíma að tala um vinnu­tengd mál.

20. maí 2020:

Um 100 manns var boðið í garð­veislu í Downingstrætií boði for­sæt­is­ráð­herra og einka­rit­ara hans, Martin Reynolds. Um 30 manns mættu, þar á meðal Boris Johnson, sem hefur við­ur­kennt að hafa verið við­staddur í um 25 mín­útur og að hann hafi talið að „um vinnu­tengdan við­burð“ hafi verið að ræða.

5. nóvember 2020:

COVID-19 smitum fer fjölg­andi og Johnson biður fólk „enn á ný að halda sig heima“. Útgöngu­bann tekur aftur gildi.

13. nóvember 2020:

BBC hefur eftir heim­ilda­mönnum að starfs­fólk Downingstrætis hafi komið saman ásamt Carrie Johnson í íbúð hjón­anna. Tals­maður Johnson þver­tekur fyrir að sam­koman hafi átt sér stað.

27. nóvember 2020:

Kveðju­hóf í til­efni af starfs­lokum Cleo Watson, starfs­manni Downingstrætis. Áfengi var haft um hönd og Johnson hélt ræðu að sögn heim­ilda­manna.

10. desember 2020:

Mennta­mála­ráðu­neytið við­ur­kenndi að hafa haldið gleð­skap til að þakka starfs­fólki fyrir verð­ugt fram­lag í heims­far­aldr­inum. Drykkir og léttar veit­ingar voru í boði en engir gestir aðrir en starfs­fólk ráðu­neyt­is­ins voru leyfðir. Útgöngu­banni var aflétt 2. des­em­ber en fleiri en tveir máttu ekki koma saman.

14. desember 2020:

Íhalds­flokk­ur­inn við­ur­kennir að hafa haldið „óheim­ila sam­komu“ á skrif­stofu flokks­ins í Westminster.

15. desember 2020:

Sunday Mirror birtir mynd frá „jóla­spurn­inga­keppni“ sem haldin var fyrir starfs­fólk Downingstrætis. Þegar John­son var spurður út í við­burð­inn um ári seinna sagð­ist hann ekki hafa brotið neinar reglur en að atvikið væri til skoð­unar.

17. desember 2020:

Annað kveðju­hóf, nú til að kveðja yfir­mann Covid-aðgerða.

16. apríl 2021:

Enn og aftur er um kveðju­hóf starfs­manna Downingstrætis að ræða. Í þetta sinn tvö tals­ins og er umrætt kvöld kvöldið fyrir útför Fil­ippusar drottn­ing­ar­manns. Sam­kvæmt regl­unum var óheim­ilt að umgang­ast annað fólk inn­an­dyra að und­an­skildum þeim sem búa á sama heim­ili. Leyfi­legt var að koma saman utandyra í sex manna hóp­um.

20. des­em­ber 2021:

John­son þver­tekur fyrir veislu­höld í Down­ing­stræti 15. maí 2020, þegar útgöngu­bann var í gildi. „Ég á heima hér og ég starfa hér. Þetta voru fundir á vinnu­tíma sem fjöll­uðu um vinn­una.“

Ekki í verkahring Gray að meta lögbrot

Gray hefur rætt við sitj­andi og fyrr­ver­andi þing­menn, meðal ann­ars Dominic Cummings, fyrr­ver­andi ráð­gjafa Johnson, sem seg­ist hafa varað hann við því að veislu­höldin brytu gegn gild­andi reglum. Sjálfur hefur Johnson sagt að hann hafi ekki verið var­aður við og því ekki verið með­vit­aður um mögu­leg brot þar sem hann taldi að um vinnu­tengdan við­burð var að ræða.

Johnson sagði í afsök­un­ar­beiðni sinni fyrir þing­inu í síð­ustu viku að hann væri reiðu­bú­inn að ræða við Gray um aðkomu sína að veislu­höld­un­um. Ráð­herrar í stjórn John­son, sem og hann sjálfur, hafa óskað eftir því við þing­menn Íhalds­flokks­ins að þeir bíði eftur skýrslu Gray áður en fram­tíð John­son hjá flokkn­um, eða í stjórn­málum almennt, verði tek­in.

Búast má við að skýrsla Gray verði almenn sam­an­tekt á atburða­rásinni frekar en að ásak­anir á hendur ákveðnum ein­stak­lingum um sótt­varna­brot verði settar fram. Það verður því ekki í höndum Gray að meta hvort lög hafi verið brotin. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar geta hins vegar leitt til þess að ein­stak­lingum verði birtar ákærur um brot á sótt­varna­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár