Rauða kjötið: Áætlunin sem á að bjarga Boris

Pólitísk fram­tíð Boris Johnson er um margt óljós eftir að hann baðst afsök­unar á að hafa verið við­staddur garð­veislu í Downingstræti í maí 2020 þegar útgöngu­bann vegna COVID-19 var í gildi. „Rauða kjötið“ nefn­ist áætlun sem á að halda Johnson í emb­ætti.

Fimm dagar eru síðan Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, kom fyrir breska þingið og baðst afsök­unar á að hafa verið við­staddur um hund­rað manna veislu í Downingstræti 10, 20 maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi.

Veislu­höldin fóru fram í garði Downingstræti og sagð­ist Johnson skilja reiði almenn­ings á þátt­töku hans í veislu­höld­unum en hann sagð­ist hafa verið sann­færður um að „um vinnu­tengdan við­burð hafi verið að ræða“.

Í kjöl­far afsök­un­ar­beiðn­innar bár­ust frek­ari fregnir af skemmt­ana­haldi í Downingstræti. Á fimmtu­dags­kvöld greindi breska dag­blaðið The Tel­egraph frá því að starfs­fólk á skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herra hafi staðið fyrir tveimur kveðjupartýum þar sem tveir starfs­menn voru að láta af störfum. Umrætt kvöld var 16. apríl 2021, kvöldið fyrir útför Fil­ippusar drottn­ing­ar­manns, þegar strangar sótt­varna­reglur voru í gildi.

Samkvæmt regl­unum var óheim­ilt að umgang­ast annað fólk inn­an­dyra að und­an­skildum þeim sem búa á sama heim­ili. Leyfi­legt var að koma saman utandyra í sex manna hópum.

Ljóst er að Johnson berst nú fyrir til­veru­rétti sínum í breskum stjórn­málum. Í gær greindi Nadine Dorries, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, frá því að afnota­gjald breska rík­is­út­varps­ins BBC verður lagt niður eftir fimm ár. Dorries er jafn­framt dygg stuðn­ings­kona Johnson og hefur hann verið sak­aður um að nota BBC til að bjarga for­sæt­is­ráð­herra­stólnum. Afnám afnota­gjald­anna er talin munu falla vel í kramið hjá Íhalds­flokknum og kjós­endum hans.

„For­sæt­is­ráð­herr­ann telur að þau sem fjalla um brot hans eigi að gjalda þess á meðan hann kemst upp með það,“ segir Lucy Powell, þing­kona stjórn­ar­and­stöð­unnar. Ákvörð­unin er sögð hluti af enn stærri áætlun um að tryggja að Johnson haldi for­sæt­is­ráð­herra­stólnum, áætlun sem gengur undir nafn­inu Red Meat, eða Rauða kjötið.

Þetta er síður en svo í fyrsta sinn sem veislu­höld í Downingstræti á tímum heims­far­ald­urs koma til tals sem Johnson hefur þurft að svara fyrir. Svo virð­ist sem umræður síð­ustu daga, sem og umdeild afsök­un­ar­beiðni Johnson í þing­inu í síð­ustu viku, sé kornið sem fylli mæl­inn. Atburð­ar­rásin fram að afsök­un­ar­beið­inni var á þessa leið:

1. desember 2021:

Þegar fyrstu ásak­anir um garð­veisl­una komu fram í umræðum á þing­inu sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að farið hafi verið eftir öllum gild­andi reglum. Það ítrek­aði hann í við­tali 7. des­em­ber.

13. desember 2021:

Johnson er spurður út í „jóla­spurn­inga­keppni“ sem haldin í Downingstræti 15. des­em­ber 2020. „Ég get sagt þér enn einu sinni að ég braut engar reglur. Þetta er allt til skoð­unar,“ svar­aði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

20. desember 2021:

Johnson þver­tekur fyrir veislu­höld í Downingstræti 15. maí 2020, þegar útgöngu­bann var í gildi. „Ég á heima hér og ég starfa hér. Þetta voru fundir á vinnu­tíma sem fjöll­uðu um vinn­una“

10. janúar 2022:

Johnson var spurður um veislu­höldin í maí 2020 og vísar í rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á meintum sótt­varna­brotum í Downingstræti 10, sem stendur yfir.

13. janúar 2022:

Johnson biðst afsök­unar fyrir að hafa verið við­staddur garð­veisl­una í Downingstræti 20. maí 2020.

Vantrauststillaga möguleg

Fjöldi þing­manna hefur kraf­ist afsagnar Johnson, þar á meðal hátt­settir þing­menn í Íhalds­flokknum líkt og Douglas Ross, leið­togi Íhalds­manna í Skotlandi, William Wragg, Caroline Nokes, Roger Gale og Steve Baker. Sá síð­ast­nefndi segir í sam­tali við BBC að af 61 þing­manni Íhalds­flokks­ins í hans kjör­dæmi séu á móti því að Johnson sitji áfram sem for­sæt­is­ráð­herra. Baker segir að sömu reglur verði að gilda um alla og ómögu­legt sé að segja til um hvort hann geti stutt Johnson til að leiða flokk­inn í næstu kosn­ingum.

Ross hefur sent 1922-nefnd flokks­ins, sem sér um helstu for­ystu­mál Íhalds­flokks­ins, bréf þar sem hann leggur fram van­traust­s­til­lögu á Johnson. Ef nefnd­inni ber­ast 54 slík bréf verður van­traust­s­til­lagan tekin til með­ferðar innan flokks­ins. Heim­ildir The Guardian herma að 35 bréf hafi þegar borist.

Rannsókn sér­staks sak­sókn­ara, Sue Gray, á sótt­varna­brot­unum í Downingstræti 10 er hafin og sagði Johnson í afsök­un­ar­beiðni sinni að hann væri reiðu­bú­inn að svara fyrir aðkomu sína að veislu­höld­unum. Ráð­herrar í stjórn Johnson hafa óskað eftir því við þing­menn Íhalds­flokks­ins að þeir bíði eftur skýrslu Gray áður en fram­tíð Johnson hjá flokknum, eða í stjórn­málum almennt, verði tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár