Segja skimun kínverskra ferðamanna ekki byggða „á neinum vísindalegum rökum“

Kínversk stjórn­völd segja það með öllu óásætt­an­legt að mörg ríki hafi sett á tak­mark­anir, m.a. kröfu um skimun fyrir COVID-19, á kín­verska ferða­menn.

Fólk dansaði af lífs og sálarkröftum á pönkhátíð í Peking í gær. Enda loks búið að aflétta ströngum samkomutakmörkunum í Kína.
Fólk dans­aði af lífs og sál­ar­kröftum á pönk­há­tíð í Peking í gær. Enda loks búið að aflétta ströngum sam­komu­tak­mörk­unum í Kína. Mynd: EPA

„Sum lönd hafa inn­leitt tak­mark­anir sem bein­ast aðeins gegn kín­verskum ferða­mönnum. Þetta er ekki byggt á neinum vís­inda­legum grunni og sumar þess­ara aðgerða eru óásætt­an­legar.“

Þetta segir Mao Ning, tals­kona utan­rík­is­ráðu­neytis Kína eftir að mörg ríki, m.a. nokkur Evr­ópu­ríki, tóku upp á því að krefja kín­verska ferða­menn um nei­kvæð COVID-próf. Til þess­ara aðgerða hefur verið gripið þar sem ný bylgja smita er að rísa í Kína eftir að hörðum sam­komu­tak­mörk­unum í land­inu var aflétt fyrir nokkrum vikum. Mao Ning segir að mögu­lega muni kín­versk stjórn­völd grípa til „gagn­að­gerða“.

[adspot]

Nokkrir leið­togar þeirra þjóða sem sett hafa tak­mark­anir á ferða­menn frá Kína hafa svarað fyrir aðgerðir sínar eftir að ummæli Mao Ning féllu. „Rík­is­stjórn mín er að gegna því hlut­verki sínu að vernda franska borg­ara og biðja [kín­verska ferða­menn] um COVID-próf,“ segir Elisa­beth Borne, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands.

[links]Ítölsk stjórn­völd voru þau fyrstu til að taka upp skimun eftir kór­ónu­veirunni meðal kín­verskra ferða­manna við komu þeirra til lands­ins. Sú skimun hófst 28. des­em­ber. Banda­ríkin fylgdu í kjöl­farið og hafa boðað sam­bæri­lega skimun frá 5. jan­úar. Frakkar, Spán­verjar og Bretar hafa svo einnig ákveðið að gera slíkt hið sama. Og fleiri ríki hafa bæst í hóp­inn allra síð­ustu daga.

Aðgerð­irnar eru þó mis­jafnar milli landa. Í sumum þurfa kín­verskir ferða­menn að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi við komu til áfanga­staða sinna en í öðrum þurfa þeir að und­ir­gang­ast slíkt próf við kom­una.

Í Frakk­landi var síð­ari kost­ur­inn val­inn. Franskir heil­brigð­is­starfs­menn munu því taka PCR-próf af kín­verskum far­þegum. Rað­greina á svo þau sýni til að fylgj­ast með hvaða afbrigði eru á ferð­inni og þá mögu­lega hvort að ný afbrigði séu að dúkka upp í Kína þar sem kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 er talin hafa orðið til fyrir rúm­lega þremur árum.

„Við viljum ganga úr skugga um að það séu engin ný afbrigði,“ segir Borne. „Við erum að gera rað­grein­ingar til að fylgja reglum Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar.“

WHO hefur nú í tvígang á allra síð­ustu dögum hvatt kín­versk stjórn­völd til að veita raun­tíma­upp­lýs­ingar um far­ald­ur­inn í land­inu. Þær upp­lýs­ingar sem hafa borist síð­ustu vikur eru tak­mark­aðar og sýna í raun engan veg­inn fram á þann veru­leika sem þykir blasa við í lík­húsum og á sjúkra­húsum. Myndir af troð­fullum bráða­mót­tökum sjúkra­húsa m.a. í Peking hafa birst í fjöl­miðlum síð­ustu daga. WHO hefur líka kallað eftir því að rað­grein­ingar verði gerðar í Kína og þeim upp­lýs­ingum deilt.

Ekki hefur enn verið tekin ákvörðum um hvort að kín­verskir ferða­menn verða skimaðir við kom­una til Íslands eða þeir beðnir um að fram­vísa nei­kvæðum prófum. Hins vegar gæti það breyst bráð­lega. Sótt­varna­læknir hefur sagt að hingað til hafi íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd fylgt ákvörð­unum Evr­ópu­sam­bands­ins í þessum efnum. Sam­eig­in­leg stefna hefur ekki verið mörkuð innan ESB en til hennar hefur þó verið hvatt, m.a. frá ítölskum stjórn­völdum. Þau eru vissu­lega mjög brennd af sinni reynslu. Þar braust far­ald­ur­inn fyrst út í Evrópu í upp­hafi árs 2020. Sjúkra­hús yfir­fyllt­ust og þús­undir týndu lífi.

Óskað eftir neyðarfundi

Í morgun kom svo fram í fréttum að Svíar hafa óskað eftir neyð­ar­fundi hjá Evr­ópu­sam­band­inu til að ræða við­brögð við fjölgun Covid-smita í Kína. Mikill ferða­hugur er hjá Kín­verjum og yfir­völd fjölda ríkja, þar á meðal hér á landi, íhuga aðgerðir á landa­mær­unum.

Sér­fræð­ingar ESB í sjúk­dóma­vörnum eru sagðir hafa lýst því yfir á fundi nýverið að tak­mark­anir sem gripið hefur verið til gagn­vart kín­verskum ferða­mönnum séu ótíma­bærar og órétt­læt­an­legar. Því var það nið­ur­staðan að fara ekki í sam­eig­in­legar aðgerðir en nokkur aðild­ar­ríki hafa ekki viljað taka neina sénsa. Þannig er því farið með Frakk­land og Ítalíu til dæmis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár