WHO ýtir enn og aftur við Kínverjum – Nauðsynlegt að fá nýjustu gögn um COVID-bylgjuna

Kínversk yfir­völd hafa enn ekki brugð­ist við ákalli WHO um að afhenda raun­tíma­gögn um þá skæðu bylgju COVID-19 sem gengur þar yfir. Tak­mark­anir hafa verið settar á kín­verska ferða­menn í mörgum löndum.

Fjölmenni á strætum og torgum Peking eftir að núll-covid stefnunni var aflétt.
Fjöl­menni á strætum og torgum Peking eftir að núll-covid stefn­unni var aflétt. Mynd: EPA

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, hefur enn á ný hvatt kín­versk stjórn­völd til að deila raun­tíma­gögnum um stöðu á far­aldri COVID-19 í land­inu. Stofn­unin segir slíka gagna­miðlun nauð­syn­lega svo að önnur ríki geti brugð­ist við með réttar upp­lýs­ingar að vopni. Eftir að svo­kall­aðri „núll-covid“ stefnu og með­fylgj­andi hörðum aðgerðum var hætt fyrir nokkrum vikum hefur kór­ónu­veiran tek­ist á flug í þessu fjöl­menna landi. Óttast er að heil­brigð­is­kerfið ráði alls ekki við þann fjölda sem mun veikj­ast alvar­lega. Mörg lönd hafa þegar sett kín­verskum ferða­mönnum skil­yrði. Þannig gætu þeir þurft að gang­ast undir PCR-próf við komu til þess­ara ríkja og þurft að sæta ein­angrun eða sótt­kví.

[adspot]

„WHO hefur aftur beðið um að fá reglu­lega raun­tíma­gögn á stöðu far­ald­urs­ins, m.a. um rað­grein­ingu sýna, um inn­lagnir á sjúkra­hús, á gjör­gæslu­deildir og dauðs­föll,“ sagði í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar í gær eftir að for­svars­menn hennar höfðu átt fund með kín­verskum yfir­völdum. Á fund­inum var ítrekað hversu mik­il­vægt væri að gögnum sem þessum yrði deilt svo að hægt væri að meta hættu, innan sem utan Kína.

Áhyggjur hafa vaknað utan Kína vegna stórrar bylgju sem þar gengur nú yfir eftir að losað var um tak­mark­anir til að fram­fylgja hinni ströngu „núll-covid“ stefnu. Kín­verjar hafa birt ákveðna töl­fræði en sam­kvæmt henni hafa aðeins fáir greinst með COVID-19 og skráð dauðs­föll einnig verið fá. Hins vegar eru vís­bend­ingar um og fréttir hafa verið fluttar af því að sjúkra­hús og lík­hús séu sum hver yfir­full.

Xi Jinping, for­seti Kína, hvatti þjóð sína í sjón­varps­ávarpi til að standa saman er nýr kafli í bar­átt­unni gegn far­aldri COVID væri haf­inn. Hann sagði að Kín­verjar hefðu nú þegar kom­ist yfir for­dæma­lausa erf­ið­leika í bar­áttu sinni og að stefnan væri að bregð­ast við ástand­inu þegar þörf reyn­ist á því. Hann sagði heil­brigð­is­starfs­fólk og aðra leggja mikið á sig en bætti við að „dögun“ væri framundan – þ.e. að endir­inn á far­aldr­inum nálg­að­ist.

Fordæmalaus mótmæli

Núll-Covid stefnan var afnumin fyrir um þremur vikum. Það var gert í kjöl­far þess að for­dæma­laus mót­mæli brut­ust út í land­inu vegna tak­mark­ana. Fólk taldi aðgerð­irnar hefta frelsi sitt og líf. Þetta eru mestu mót­mæli sem orðið hafa í Kína lengi og þau lang­mestu sem orðið hafa í tíu ára valda­tíð Xi.

WHO ótt­ast ekki aðeins að gögnum um raun­veru­legt umfang far­ald­urs­ins verði deilt heldur einnig að örv­un­ar­bólu­setn­ingar séu allt of sjald­gæfar meðal kín­versks almenn­ings. Því gæti bylgjan sú sem nú gengur yfir kostað fjölda manns­lífa.

[adspot]

Þegar veira fær að ganga um óhindrað, og hefur marga næma lík­ama til að hreiðra um sig í, eins og gera má ráð fyrir að sé staðan í Kína, eykst hættan á því að ný afbrigði verði til. Hins vegar er ómögu­legt að segja hverjir eig­in­leikar þeirra gætu orðið. Þau gætu orðið skæð­ari en þau gætu líka orðið mild­ari.

Fyrir þremur árum, næstum því upp á dag, greind­ist ný kór­ónu­veira í fyrsta sinn í Kína. Hún fékk síðar nafnið SARS-CoV-2 og sjúk­dóm­ur­inn sem hún veldur heitið COVID-19. Upptökin eru rakin til kín­versku borg­ar­innar Wuhan.

Síðan þá hafa yfir 6,6 millj­ónir manna, svo stað­fest sé, lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. WHO telur hins vegar að and­látin séu mun fleiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár