Skjátími barna rauk upp í faraldrinum

Ný alþjóð­leg rann­sókn leiðir í ljós að skjá­tími í heims­far­aldri jókst mest á meðal barna á aldr­inum sex til tíu ára. Sá hópur sem fylgir í kjöl­farið eru full­orðnir. Aukinn skjá­tími hefur áhrif á heilsu jafnt barna sem og full­orð­inna að sögn rann­sak­enda.

Sex til tíu ára börn vörðu mun meiri tíma við skjáinn í heimsfaraldrinum en fyrir hann.
Sex til tíu ára börn vörðu mun meiri tíma við skjá­inn í heims­far­aldr­inum en fyrir hann. Mynd: Pexels

Skjátími jókst mest meðal barna í yngstu bekkjum grunn­skóla í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum eða um 83 mín­útur á dag að með­al­tali. Þetta er meðal nið­ur­staða alþjóð­legrar rann­sóknar á skjá­tíma. Að sögn rann­sak­enda er þessi aukn­ing talin hafa haft slæm áhrif á matar­æði barna og sjón þeirra sem og aukið kvíða og skap­styggð barna.

Mesta aukn­ingin í skjá­tíma var á meðal barna á aldr­inum sex til tíu ára en engu að síður mæld­ist mikil aukn­ing í öllum ald­urs­hópum, þar á meðal hjá full­orðnum. Frá þessu er greint í frétt á vef the Guardian.

Skjátími full­orð­inna jókst um tæpan klukku­tíma á dag og skjá­tími ung­linga, það er þeirra sem eru á aldr­inum ell­efu til 17 ára, jókst um 55 mín­útur. Minnsta aukn­ingin mæld­ist hjá börnum undir fimm ára aldri, um 35 mín­útur á dag.

Bitnar á heilsu bæði barna og fullorðinna

„Þessi rann­sókn er sú fyrsta af sinni teg­und til þess að taka kerf­is­bundið saman gögn úr rit­rýndum greinum um aukn­ingu á skjá­tíma í heims­far­aldr­inum og áhrif­unum sem aukn­ingin hefur,“ er haft eftir Shahina Pardahan, pró­fessor og for­stöðu­maður rann­sókn­ar­stofn­unar á sviði sjónar við Anglia Ruskin háskóla, í grein the Guardian. Hún er aðal­höf­undur greinar sem fjallar um rann­sókn­ina og birt var í eClinicalMedicine sem er hluti af útgáfu vís­inda­rits­ins Lancet.

„Með því að taka saman mik­inn fjölda rann­sókna fáum við mun nákvæm­ari mynd af skjá­tíma fólks og áhrif hans á heilsu þess. Líkt og með allar rann­sóknir af þess­ari stærð­argráðu, þá er ein­hver breyti­leiki í þeim rann­sóknum sem við skoð­uðum,“ segir Para­da­han og bætir því við að rann­sóknin bendi til þess að tak­marka ætti skjá­tíma eins mikið og kostur er til þess að koma í veg fyrir slæm áhrif hans á til að mynda matar­æði, svefn, geð­heil­brigði og augn­heilsu. Neikvæð áhrif auk­ins skjá­tíma mæld­ust bæði hjá börnum jafnt sem full­orðnum.

Rann­sóknin sem um ræðir greindi nið­ur­stöður 89 rann­sókna frá löndum á borð við Banda­ríkin, Bretland, Ástralíu, Frakk­land, Chile og Ísrael. Grein­ingin fólst í því að bera saman skjá­tíma fyrir heims­far­aldur kór­ónu­veiru ann­ars vegar og skjá­tíma í far­aldri hins vegar og náði. Bæði var litið til skjá­tíma vegna vinnu og náms sem og til skjá­tíma vegna afþrey­ingar. Alls tóku 200 þús­und manns þátt í rann­sókn­unum 89.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár