Mögulega mest smitandi afbrigðið hingað til

XBB.1.5, nýtt und­ir­af­brigði ómíkron-afbrigðis kór­ónu­veirunnar er farið að valda tölu­verðum áhyggjum í Banda­ríkj­unum. Sumir vís­inda­menn telja að það sé mest smit­andi afbrigði veirunnar sem veldur COVID-19 hingað til.

Maður gengur framhjá minnisvarða um fórnarlömb COVID-19 í Bandaríkjunum.
Maður gengur fram­hjá minn­is­varða um fórn­ar­lömb COVID-19 í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Fyrst kom alfa. Svo beta og þá gamma og delta. Fyrir ári var svo komið að ómíkron og þá fór allt á hlið­ina. Enn einu sinni. Ómíkron var meira smit­andi en fyrri afbrigði SARS-CoV-2 kór­ónu­veirunnar en olli ekki jafn alvar­legum ein­kennum, sér­stak­lega ekki þar sem millj­ónir manna höfðu verið bólu­settar gegn veirunni.

Ómíkron, rétt eins og afbrigðin sem það yfir­bug­aði, er stöðugt að breyt­ast. Þróast. Breyt­ing­arnar þurfa að vera ákveðið miklar svo talað sé um nýtt afbrigði og að því er ekki enn komið þótt nú sé hið óþjála und­ir­af­brigð­is­heiti XBB.1.5 á allra vörum enda bráðsmit­andi og jafn­vel það mest smit­andi hingað til vilja margir meina.

Það er þegar farið að valda usla í Banda­ríkj­unum og breið­ist þar hratt út. Einnig hafa til­felli greinst í Bret­landi sem og víðar.

[adspot]

Þau ein­kenni sem XBB.1.5 veldur eru keim­lík þeim sem önnur und­ir­af­brigði ómíkron valda. Flestir finna fyrir flensu­líkum ein­kennum, fá hita, kvef og jafn­vel hósta.

XBB.1.5 þró­að­ist út frá afbrigð­inu XBB sem hóf að smit­ast manna á milli í sept­em­ber. Í frétta­skýr­ingu BBC segir að XBB hafi stökk­breyt­ingar sem auð­velda veirunni að kom­ast inn fyrir ónæm­is­varnir lík­am­ans. En XBB.1.5 er enn hæf­ara og getur bund­ist frumum lík­am­ans ólíkt fyr­ir­renn­ara sínum. Og þannig getur það smit­ast hratt frá einum lík­ama til ann­ars.

Vís­inda­menn sem BBC ræðir við segja að veiran sé alltaf að þró­ast og stundum leiði það til þess að henni tekst að kom­ast með auð­veld­ari hætti fram­hjá vörnum lík­ama okkar. Þess vegna sé enn mjög mik­il­vægt að greina smit og rað­greina sýni til að sjá hvað í raun og veru er að ger­ast.

Mögulega varð XBB.1.5 til í lík­ama ein­hvers sem hafði smit­ast af tveimur ólíkum afbrigðum ómíkron.

Úr 4 prósentum í 40

Um 40 pró­sent af öllum COVID-til­fellum sem eru að grein­ast í Banda­ríkj­unum um þessar mundir eru af völdum XBB.1.5 og er afbrigðið því það útbreiddasta í land­inu í augna­blik­inu. Í byrjun des­em­ber voru aðeins um 4 pró­sent til­fella vegna þess svo aug­ljós­lega hefur það nú algjör­lega kaf­fært önnur afbrigði ómíkrón.

Síðustu vikur hefur sjúkra­húsinn­lögnum vegna COVID-19 fjölgað víða í Banda­ríkj­unum og stjórn­völd hafa dustað rykið af COVID-prófum sem þau hvetja fólk með ein­kenni til að und­ir­gang­ast.

Líkt og með önnur afbrigði af veirunni hingað verður að telj­ast lík­legt, nær full­víst, að afbrigðið muni ber­ast landa á milli og til Íslands.

Fólk þarf að vera á varðbergi

Vís­inda­menn sem BBC ræðir við segja XBB.1.5 ekki vekja sér­stakar áhyggjur umfram önnur afbrigði kór­ónu­veirunnar. Að minnsta kosti ekki enn. Fátt bendir til þess að það valdi alvar­legri veik­indum en þau sem hafa verið á sveimi síð­ustu miss­eri. Verndin gegn veik­indum felist aðal­lega í bólu­setn­ingum. Ástæða er þó til að vera á varð­bergi, ekki síst hvað varðar við­kvæma hópa, aldr­aða og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, sem hafa ekki fengið jafn­mikla vörn og aðrir með bólu­setn­ingum sínum.

[adspot]

Enn er margt á huldu um hegðun XBB.1.5 og því þurfa heil­brigð­is­yf­ir­völd enn og aftur að vera á tánum. Gríð­ar­lega mik­il­vægt er að fylgj­ast með þróun far­ald­urs­ins á svæðum á borð við Kína þar sem strangar sam­komu­tak­mark­anir hafa verið í gildi frá upp­hafi far­ald­urs­ins og allt þar til nýverið. Kínversk yfir­völd hafa hins vegar ekki deilt raun­tíma upp­lýs­ingum um rað­grein­ingar og útbreiðslu líkt og WHO hefur ítrekað hvatt til. Það hefur orðið til þess að mörg ríki hafa ákveðið að setja ferða­tak­mark­anir á kín­verska ferða­menn, m.a. að skylda þá til að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár