Bóluefnakapphlaupið kostaði 1,3 milljónir manna lífið

Ríkustu löndin hömstr­uðu bólu­efni svo lítið var til skipt­anna fyrir þau fátæk­ari. Það vitum við. Núna hefur verið sýnt fram á með rann­sóknum að þetta órétt­láta kapp­hlaup kost­aði gríð­ar­legan fjölda manns­lífa.

Bóluefni voru er faraldurinn stóð sem hæst af skornum skammti.
Bóluefni voru er far­ald­ur­inn stóð sem hæst af skornum skammti. Mynd: EPA

Bjarga hefði mátt meira en milljón manns­lífum í heims­far­aldri COVID-19 ef bólu­efni hefðu verið jafn algengi­leg fátæk­ari ríkjum heims og þeim rík­ari. Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar breskra vís­inda­manna þar sem rýnt var í gögn frá 152 löndum. Enn fleira fólki hefði verið hægt að bjarga ef að rík lönd hefðu, sam­hliða jafnri dreif­ingu bólu­efna, haldið sótt­varna­að­gerðum á borð við sam­komu­tak­mark­anir og grímunotkun yfir lengri tíma. Þá hefði, að því er reikni­líkan vís­inda­mann­anna sýnir, verið hægt að bjarga 3,8 millj­ónum fólks.

[adspot]

Við munum öll eftir háleitum lof­orðum stjórn­valda í rík­ustu löndum heims um að kaupa og dreifa bólu­efnum bróð­ur­lega um heim­inn. Þegar á reyndi, í raun meðan að bólu­efni gegn COVID-19 voru aðeins hug­mynd, fóru hins vegar þeir sem mest máttu sín, þeir sem áttu pen­inga og höfðu völd, að tryggja sér kaup á bólu­efnum í stórum stíl. Vissu­lega fór ein­hver hluti þess­ara bólu­efna að lokum til fátæk­ari ríkja en stað­reyndin er sú að þegar kom að því að verj­ast far­aldr­inum hugs­uðu stjórn­völd fyrst og fremst um sig og sína. Það er að segja: Fyrst okkar fólk – svo aðrir.

En þetta kost­aði sitt. Og þá erum við ekki aðeins að tala um pen­inga (ekk­ert vest­rænt ríki fór á haus­inn við að hamstra bólu­efni) heldur fólst stærsti kostn­að­ur­inn í manns­lífum.

Um leið og ljóst var að auðug ríki ætl­uðu sér ekki að standa við fyr­ir­heit um jafna dreif­ingu bólu­efna var talið ljóst að það myndi þýða að fleiri myndu deyja. En nú hefur þetta verið reiknað út og stað­fest. Og von­andi nýt­ist sú vit­neskja heims­byggð­inni í næsta far­aldri, hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Oliver Watson, sér­fræð­ingi í far­alds­fræði og smit­sjúk­dómum við Imperial College í London.

Í lok síð­asta árs hafði tæpur helm­ingur jarð­ar­búa fengið tvo skammta af bólu­efnum gegn COVID. En ef skoðað er hverjir höfðu verið bólu­settir á þeim tíma­punkti birt­ist dökk og órétt­lát mynd. Um 75 pró­sent íbúa í rík­ari löndum höfðu fengið tvær sprautur en innan við 2 pró­sent í sumum fátæk­ustu ríkj­unum.

Áttu birgðir og bólusettu börn

Þegar þarna var komið við sögu kom á dag­inn að auðug ríki höfðu safnað bólu­efnum langt umfram þörf og lögðu þá lín­urnar fyrir bólu­setn­ingu barna sinna sem sýnt hafði þá þegar verið fram á að væru í lít­illi áhættu að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum. Á sama tíma höfðu önnur og fátæk­ari ríki ekki nándar nærri nóg af bólu­efni til að bólu­setja sína við­kvæm­ustu hópa. Fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Eldra fólk.

Lýð­töl­fræð­ing­ur­inn Sam Moore og félagar hans við Warwick-háskóla í Coventry í Bret­landi, söfn­uðu gögnum um umfram dauðs­föll og aðgengi að bólu­efnum sem þau settu svo inn í stærð­fræði­líkan. Með lík­an­inu var reiknað út hver nið­ur­staðan í far­aldr­inum hefði getað orðið ef bólu­efnum hefði verið skipt jafnt um heims­byggð­ina. Með í reikn­ing­inn voru tekin áhrif bólu­setn­inga á bæði útbreiðslu veirunnar og alvar­leika COVID-19 veik­inda.

[adspot]

Nið­ur­staða vís­inda­hóps­ins, sem birt var í októ­ber­hefti vís­inda­tíma­rits­ins Nature Medicine, er sú að miðað við engar aðrar aðgerðir en að draga úr nánd fólks voru við­hafðar hefði jöfn dreif­ing bólu­efna getað komið í veg fyrir 1,3 millj­ónir dauðs­falla. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir miklu fleiri ef rík­ari lönd hefðu haldið sínum sótt­varna­að­gerðum til streitu lengur til að draga úr smitum.

Veik heilbrigðiskerfi

Ríkustu löndin hömstr­uðu bólu­efni og komu þannig í veg fyrir að þau fátæk­ari gætu fengið nægt magn af þeim. En aðrir þættir skiptu einnig máli. Þannig vitum við að ríkin voru mis­jafn­lega í stakk búin til að geyma bólu­efnin, sem sum hver voru aðeins not­hæf við mjög sér­stakar aðstæður, s.s. mik­inn kulda. Þá voru þau einnig mis­jafn­lega í stakk búin til að dreifa þeim til fólks og bólu­setja það. Vís­inda­hóp­ur­inn tók ekki með í sína útreikn­inga þetta órétt­láta aðgengi.

Nið­ur­stöð­urnar eru í takti við nið­ur­stöður svip­aðrar rann­sóknar sem birtar voru nýverið í lækna­blað­inu Lancet. Samkvæmt henni þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir um 45 pró­sent allra and­láta vegna COVID-19 í fátækum ríkjum ef bólu­setn­inga­hlut­fall þar hefði verið 20 pró­sent við lok síð­asta árs. Það var einmitt mark­mið hins alþjóð­lega COVAX-sam­starfs sem átti að tryggja jafna dreif­ingu bólu­efna en mis­heppn­að­ist það ætl­un­ar­verk sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár