Segir aðstoðarmann Ásmundar Einars hafa „staðfest“ að ÍBV ætti að fá 100 milljóna styrk

ÍBV telur sig eiga inni 60 millj­ónir króna af alls 100 millj­ónum sem sam­þykkt var að úthluta til íþrótta- og æsku­lýðs­fé­laga á fjár­auka­lögum í fyrra. Aðstoð­ar­maður ráð­herra er sagður hafa lofað þess­ari upp­hæð, bæði í sam­tölum og smá­skila­boðum.

Íþróttafélagið ÍBV metur heildartjón sitt vegna samkomutakmarkana á yfir 300 milljónir króna. Félagið telur sig eiga inni fé hjá stjórnvöldum.
Íþrótta­fé­lagið ÍBV metur heild­ar­tjón sitt vegna sam­komu­tak­mark­ana á yfir 300 millj­ónir króna. Félagið telur sig eiga inni fé hjá stjórn­völdum. Mynd: Birgir Þór

Haraldur Pálsson fram­kvæmda­stjóri ÍBV íþrótta­fé­lags segir, í erindi sem hann sendi fyrir hönd félags­ins til fjár­laga­nefndar þings­ins, að aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars Daða­sonar mennta- og barna­mála­ráð­herra hafi stað­fest við sig, bæði í sam­tölum og smá­skila­boðum, að ÍBV ætti að fá 100 millj­óna króna fram­lag sem sam­þykkt var í fjár­auka­lögum árs­ins 2021 til þess að bæta íþrótta­fé­lögum tekju­tap vegna við­burða­halds.

„For­svars­mönnum félags­ins brá því heldur betur þegar í ljós kom að ein­ungis 40.000.000 kr bár­ust félag­inu þann 22. apríl 2022 frá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir í erindi fram­kvæmda­stjór­ans, sem er sent til þess að fal­ast eftir frek­ari styrk til íþrótta­fé­lags­ins við afgreiðslu fjár­laga í ár.

Í erind­inu er fjár­hags­staða félags­ins sögð erfið í kjöl­far þess að Þjóð­há­tíðir áranna 2020 og 2021 voru blásnar af sökum sam­komu­tak­mark­ana í tengslum við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, en félagið sjálft metur tjón sitt af þessum völdum vel yfir 300 millj­ónir króna heild­ina.

Haraldur rekur að við úrvinnslu fjár­auka­laga fyrir árið 2021 hafi fjár­laga­nefnd borist til­laga að styrk, sem veita átti íþrótta- og æsku­lýðs­fé­lögum vegna tekju­missis ýmissa við­burða sem fella þurfti niður með skömmum fyr­ir­vara þegar sam­komu­tak­mark­anir tóku aftur gildi. Segir hann að rík­is­stjórnin hafi haft þann vilja að 60 millj­ónum króna yrði veitt í mál­efnið, og að skil­yrt væri að hið minnsta 40 millj­ónir króna færu óskiptar til ÍBV.

[adspot]

„Fjár­laga­nefnd tók málið fyrir og mat stöð­una þannig, byggt á fyr­ir­liggj­andi gögnum, að hækka ætti fram­lagið í 100 millj­ónir króna og halda hlut­föll­unum um lág­marks­hlut ÍBV óbreyttu eða 2/3. Ekkert var því til fyr­ir­stöðu að ef ekk­ert annað félag myndi sækja í þennan sjóð á sömu for­sendum og að ÍBV fengi þannig allan sjóð­inn, enda höfðu aðgerðir stjórn­valda orðið til þess að félagið hafi orðið af 230 millj­ónum króna hið minnsta und­an­farin tvö árin,“ segir í erindi Haraldar.

Hann vísar svo til nefnd­ar­á­lits fjár­laga­nefndar um fjár­auka­lögin í fyrra, þar sem gerð til­laga um 100 millj­óna króna fram­lag til íþrótta- og æsku­lýðs­fé­laga vegna tekju­missis.

„Ýmsa við­burði þurfti að fella niður með skömmum fyr­ir­vara þegar sam­komu­tak­mark­anir tóku aftur gildi, við­burði sem eru mik­il­vægir fjár­öfl­un­ar­við­burðir sem ekki hefur reynst unnt að halda og því er lagt til að unnt verði að sækja um styrki vegna tekju­missis. Sem dæmi má nefna að þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum var felld niður annað árið í röð með skömmum fyr­ir­vara,“ sagði í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar.

Engin önnur félög hafi sótt um á þessum forsendum

Tillaga meiri­hlut­ans um þetta var svo vissu­lega sam­þykkt á Alþingi og 100 millj­ónir króna færðar í mál­efnið. Ljóst er þó að ÍBV telur sig ekki hafa fengið allt sem félagið átti að fá af þess­ari upp­hæð.

Haraldur segir í erindi sínu að eftir „ótal sím­töl og vand­ræða­lega mikla eft­ir­grennslan kom loks­ins til þess að ráðu­neytið greiddi félag­inu úr umræddum sjóð“ í apríl síð­ast­liðnum og að svo hafi félagið fengið stað­fest í „ítrek­uðum fyr­ir­spurnum um hvort önnur félög hefðu sótt í þennan sjóð á umræddum for­sendum þeim sem koma fram í áður­nefndu nefnd­ar­á­liti,“ að svo væri ekki.

„Einnig hafði aðstoð­ar­maður ráð­herra stað­fest að félagið fengi 100 millj­ónir króna úr sjóðnum bæði í sam­tölum og í smá­skila­boðum. For­svars­mönnum félags­ins brá því heldur betur þegar í ljós kom að ein­ungis 40.000.000 kr bár­ust félag­inu þann 22. apríl 2022 frá Mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir í erindi Haraldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár