Alls fóru 0,0002% af fjármagni í COVID-viðbragðsáætlunum í að uppræta kynbundið ofbeldi

Ríki sem eiga sterka femíníska hreyf­ingu hafa verið tals­vert lík­legri til að taka til­lit til kynja­sjóna­miða í COVID-19 áætl­unum sínum en þau ríki þar sem engin eða veik femínísk hreyf­ing er við lýði, sam­kvæmt nýrri skýrslu.

Einungis 13 ríki af 226 gerðu aðgerðir gegn kyn­bundnu ofbeldi að ríkj­andi stefnu í aðgerð­ar­á­ætl­unum sínum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og 0,0002 pró­sent af því fjár­magni sem fór í við­bragðs­á­ætl­anir fóru í að upp­ræta kyn­bundið ofbeldi.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem UN Women og Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNDP) hafa tekið saman um við­bragðs­á­ætl­anir ríkja heims­ins við COVID-19 far­aldr­inum. Sér­stak­lega er fjallað um við­brögð íslenskra stjórn­valda vegna kyn­bund­ins ofbeldis gegn konum og börnum í skýrsl­unni.

Unnið var með gögn frá 226 ríkjum heims og var nið­ur­staðan sú að almennt hafi ekki verið hugað að kynja­sjón­ar­miðum eða -hlut­verkum í við­bragðs­á­ætl­unum ríkja.

Meðal þess sem kemur fram í skýrsl­unni er að ríki sem eiga sterka fem­iníska hreyf­ingu hafi verið tals­vert lík­legri til að taka til­lit til kynja­sjón­ar­miða í COVID-19 áætl­unum sínum en þau ríki þar sem engin eða veik femínísk hreyf­ing er við lýði.

Jafn­framt að 12 pró­sent af efna­hags­á­ætl­unum ríkja hafi stutt beint við efna­hags­legt öryggi kvenna og 82 pró­sent af aðgerð­arteymum þess­ara 226 ríkja hafi verið skipuð karl­mönnum að mestu. Aðeins 7 pró­sent aðgerðateyma hafi verið með jafnt kynja­hlut­fall en 11 pró­sent voru skipuð konum að mestu.

Úrræðin þóttu takast vel til hér á landi

Í skýrsl­unni er einnig farið yfir úrræði sem þóttu vel til takast, líkt og úrræði íslenskra stjórn­valda til að sporna geng kyn­bundnu ofbeldi og auka þjón­ustu við þolendur kyn­bund­ins ofbeldis á tímum COVID-19. Sér­stak­lega er fjallað um aðgerð­arteymi sem skipað var af stjórn­völdum í þeim til­gangi að stýra og sam­ræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi.

Meðal þess sem teymið lagði til var að koma á fót upp­lýs­inga­torgi, opna kvenna­at­hvarf á Akureyri, auka stuðn­ing við börn í við­kvæmri stöðu og auka fjár­veit­ingar til frjálsra félaga­sam­taka og sveit­ar­fé­laga til að halda úti þjón­ustu.

Þannig fékk Kvenna­at­hvarfið 100 millj­ónir til að bæta húsa­kost sinn og aðgengi; Stígamót fengu 20 millj­ónir til að bregð­ast við auknu álagi og draga úr bið­tíma og Reykja­vík­ur­borg fékk styrk til að fjár­magna tíma­bundið hús­næði fyrir heim­il­is­lausar konur.

Landið verið í stakk búið til að takast á við aukninguna í ofbeldi gegn konum og stúlkum

Í skýrsl­unni segir að þegar heims­far­ald­ur­inn skall á hafi rík­is­stjórn Íslands verið fljót að stofna vinnu­hóp undir for­ystu kvenna sem hafði það á sinni könnu að inn­leiða og stýra for­varn­ar­að­gerðum á móti ofbeldi gegn konum og stúlkum, fjár­magn­aðan með 1,6 millj­ónum evra. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Katrín Jak­obs­dóttir, hafi ásamt öðrum kven­leið­togum verið ausin lofi fyrir fram­úr­skar­andi við­brögð sín við COVID-19.

„Hvað varðar ofbeldi gegn konum og stúlkum sér í lagi hrinti landið í fram­kvæmd átta aðgerðum sem náðu yfir ýmis svið, til dæmis með því að auka við hús­rými til að skýla fólki, styrkja þann vett­vang þar sem sagt er frá brotum og veita félags- og sál­fræð­i­stuðn­ing.

Árin sem fóru í að bæta starfs­getu stuðn­ings­þjón­ustu­að­ila stuðl­uðu að því að landið var í stakk búið til að takast á við aukn­ing­una í ofbeldi gegn konum og stúlkum. Árið 2020, rétt áður en far­ald­ur­inn skall á, var Ísland eina Evr­ópu­landið sem stóðst þær kröfur sem voru sam­þykktar á Istanbúl ráð­stefn­unni um að útvega bæði neyð­ar­línu fyrir konur á öllu land­inu og kvenna­at­hvörf. Bæði rík­is­styrkir og fram­lög til stuðn­ings­þjón­ustu sér­hæfðra aðila fyrir konur juk­ust á meðan á far­aldr­inum stóð og féð var notað til dæmis til að flýta fyrir bygg­ingu hús­næðis fyrir þolendur ofbeldis og draga úr bið­tíma á Stíga­mótum, ráð­gjafar- og stuðn­ings­mið­stöð fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Ísland með sterka og sjálfstæða kvenréttindahreyfingu

Þá er það sér­stak­lega tekið fram að Ísland sé með sterka og sjálf­stæða kven­rétt­inda­hreyf­ingu sem knýi á um umbætur í lög­gæslu og dóms­kerf­inu sem skipt hafi sköpum á meðan á far­aldr­inum stóð. Árið 2016 hafi Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands farið að kalla eftir því að konur ættu að eiga fleiri full­trúa í lög­regl­unni sem varð til aukn­ingar úr tæp­lega 13 pró­sentum árið 2014 í um það bil 40 pró­sent árið 2021. „Lög­reglan á Íslandi lenti einnig undir smá­sjánni árið 2019 þegar níu konur höfð­uðu mál gegn rík­inu vegna þess að komið var fram við þær af kven­fyr­ir­litn­ingu þegar heim­il­is­of­beld­is­mál þeirra voru tekin fyrir.“

Þá kemur fram í skýrsl­unni að þegar heims­far­ald­ur­inn skall á hafi rík­is­lög­reglu­stjóri bætt verk­ferla og sér­hæfða þjálfun fyrir lög­reglu til að bregð­ast við aukn­ing­unni á heim­il­is­of­beldi og gefið þannig til kynna að lög­reglan tæki ofbeldi gegn konum og stúlkum alvar­lega.

„Fyrir utan til­teknar aðgerðir til að veita við­spyrnu á móti ofbeldi gegn konum og stúlkum ber að taka með í reikn­ing­inn heild­ar­ár­angur íslensku rík­is­stjórn­ar­innar í að halda far­aldr­inum í skefjum. Ókeypis skimanir, heild­stætt rakn­ing­ar­kerfi og síðar almenn bólu­setn­ing gerðu land­inu kleift að halda smit­tölum lágum og forð­ast sam­fé­lags­lok­anir og drógu þannig úr aðstæðum sem gátu aukið hætt­una á ofbeldi innan heim­il­is­ins,“ segir í þeim hluta skýrsl­unnar sem fjallar um Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár