Takmarkanir myndu þjóna takmörkuðum tilgangi

Sótt­varna­læknir segir stöð­una á Íslandi eins góða og hún geti orðið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Það myndu þjóna litlum til­gangi að setja á tak­mark­anir til þess að hamla útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í sam­fé­lag­inu á þess­ari stundu nema þær yrðu mjög strangar.

Í samtali við Kjarnann sagðist Þórólfur ósammála því að um vítahring væri að ræða.
Í sam­tali við Kjarnann sagð­ist Þórólfur ósam­mála því að um víta­hring væri að ræða. Mynd: Almannavarnir

Fjöl­miðlar og vís­inda­menn hafa gert að umfjöll­un­ar­efni sínu kosti og galla þess að leyfa kór­ónu­veirunni að leika nokkurn veg­inn lausum hala. Enn er tals­vert um smit, bæði á Íslandi og erlendis, þó staðan hér sé með betra móti. Í umfjöllun Atlantic er spurn­ing­ar­merki sett við það hvort rétt sé að leyfa veirunni að ganga svo að segja óáreittri. Fleiri smit þýði jú fleiri stökk­breyt­ingar og fleiri stökk­breyt­ingar fleiri smit, sem skapi eins konar víta­hring.

Í sam­tali við Kjarnann sagð­ist Þórólfur ósam­mála því að um víta­hring væri að ræða, heldur ein­fald­lega eðli­lega þróun. Rétt sé að far­ald­ur­inn sé ekki á und­an­haldi, enda sé kór­ónu­veiran öðru­vísi en margar veirur að því leyti að hún valdi kve­fein­kennum sem upp geti komið aftur og aftur, og búi ekki til gott ónæmi hjá fólki sem smit­ist. Það sé ein­fald­lega sá staður sem far­ald­ur­inn sé á og ómögu­legt sé að segja til um hvort hann þró­ist í þá átt­ina að veiran muni ein­ungis valda kvefi og engum alvar­legum ein­kennum, eða hvort upp komi nýtt afbrigði sem kom­ist algjör­lega hjá fyrra ónæmi. Hið síð­ar­nefnda sé hins vegar ólík­legt.

Séu end­ursmit skoðuð megi sjá að þau séu langal­geng­ust hjá þeim sem smit­uð­ust snemma í far­aldr­inum á árunum 2020 og 2021 og áður en ómíkron-afbrigðið leit dags­ins ljós. Hjá þeim sem smit­ast hafi seinna og af ómíkron sé hlut­fall end­ursmita langt undir 1%. Það gæti þó breyst með tol­komu nýrra afbrigða sem virð­ist vera að kom­ast undan ónæmi. Hins vegar séu end­ursmit í nær öllum til­fellum væg­ari en fyrsta smit.

Spurður að því hvort ráð­legt væri að fara aftur í ein­hvers konar tak­mark­anir til þess að lækka smit­hlut­fall segir Þórólfur að það myndi lík­lega hafa lítið uppá sig. Í jan­úar og febr­úar á þessu ári, þegar strangar tak­mark­anir voru í gildi, höfum við samt sem áður horft upp á tals­verðan vöxt í far­aldr­inum ein­fald­lega vegna þess að ómíkron-afbrigðið hafi verið mun meira smit­andi en önnur afbrigði og tak­mark­anir haft tak­mörkuð áhrif.

Það afbrigði sem ráði ríkjum í augna­blik­inu, BA.5, sé meira smit­andi og það afbrigði sem nú virð­ist vera að skjóta upp koll­inum í heim­inum, BA.2.75, enn meira smit­andi. Til að koma í veg fyrir útbreiðslu þess­ara afbrigða þyrfti mjög strangar tak­mark­anir sem yrðu erf­iðar í fram­kvæmd og samt sem áður væri óvíst með árangur slíkra aðgerða. Ólíklegt sé að stjórn­völd eða almenn­ingur sé til­bú­inn í slíkt. Enn sé fólk þó hvatt til að huga að per­sónu­legum sótt­vörnum.

Þórólfur segir þó að eðli­lega verði tak­mark­anir skoð­aðar ef staðan versni mikið, en það hafi hún ekki gert í langan tíma. Um 30 manns liggja inni á Land­spít­ala vegna kór­ónu­veiru­sýk­ingar, flestir með sína fyrstu sýk­ingu, og einn eða tveir á gjör­gæslu. Hann von­ast til þess að ónæmið verði fljót­lega svo gott að tölur fari lækk­andi.

Sam­fé­lags­ó­næmi sé þó þegar mjög gott á Íslandi og ef svo væri ekki væri ástandið allt annað og verra. Eins og stendur er ekki verið að mæla með fjórðu bólu­setn­ing­ar­sprautu nema fyrir ákveðna hópa, en Þórólfur segir kapp áfram verða lagt á að bólu­setja eldra fólk og aðra sem veikir eru fyrir. Að öðru leyti geti verið best að fá nátt­úru­lega sýk­ingu í vel bólu­setta þjóð þannig hægt verði að fá eins gott ónæmi og mögu­legt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár