Boris Johnson sektaður vegna Partygate

Breska lög­reglan hefur ákveðið að sekta for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra bresku rík­is­stjórn­ar­innar vegna Par­tygate-hneyksl­is­ins svo­kall­aða, sam­kvæma sem bresk yfir­völd stóðu fyrir á meðan strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs­ins.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, eiga von á sekt frá lög­reglu fyrir að hafa verið við­staddir sam­kvæmi á vegum yfir­valda þegar útgöngu­bann vegna COVID-19 var í gildi.

For­sæt­is­ráðu­neytið stað­festir að Johnson og Sunak hafi verið til­kynnt að þeir eigi yfir höfði sér sekt. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins. Johnson var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektaður.

Tals­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir í sam­tali við BBC að ráð­herr­arnir hafi ekki verið upp­lýstir hvaða sam­kvæmi um ræðir þar sem brot áttu sér stað.

[links]Breska lög­reglan hefur rann­sakað tólf sam­kvæmi á vegum breskra yfir­valda á þeim tíma sem strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar.

Starfs­fólk Down­ing­strætis 10 stóð fyrir tveimur sam­kvæmum kvöldið áður en jarð­ar­för Fil­ippusar prins fór fram. Tveggja vikna þjóð­ar­sorg hafði verið lýst yfir í Bret­landi vegna frá­falls drottn­ing­ar­manns­ins.

Boris John­son for­sæt­is­ráð­herra var í hvor­ugu sam­kvæm­inu en hefur beðist afsök­unar á að þau hafi farið fram. Hann var hins vegar staddur í um þrjá­­tíu manna veislu í Down­ing­­stræti rúmum mán­uði síðar þegar útgöng­u­­­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Veislu­höldin fóru fram í garði Down­ing­­stræti og var hund­rað boðs­­gestum meðal ann­­ars bent á að „hafa eigið áfengi með­­­ferðis til að njóta góða veð­­ur­s­ins eins best væri á kos­ið“. Um 30 manns þekkt­ust boð­ið, þar á meðal John­­son sjálfur og Carrie John­­son, eig­in­­kona hans. Á því hefur hann einnig beðist afsök­un­ar, sem og eigin afmæl­is­veislu sem kona hans skipu­lagði í íbúð þeirra í Down­ing­stræti 19. júní 2020 og kveðju­hófi í nóv­em­ber sama ár þegar sér­stakur ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra lét af störf­um.

Leiðtogi Verkamannaflokksins segir ráðherrana þurfa að víkja

Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, segir Johnson og Sunak verða að segja af sér vegna Par­tygate-hneyksl­is­ins. „Boris Johnson og Rishi Sunak hafa brotið lögin ítrekað og logið að breskum almenn­ingi,“ segir Starmer, sem telur þá algjör­lega óhæfa til að starfa í rík­is­stjórn. „Bretland á betra skilið.“

Tólf sam­komur eru til rann­­sóknar hjá lög­­­reglu en í skýrslu Gray er fjallað um að minnsta kosti 16. Gray segir að henni hafi verið settar miklar skorður vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og því er enn nokkuð í að end­an­­leg og „þýð­ing­­ar­­mik­il“ skýrsla verði gefin út. John­son full­yrðir að end­an­leg skýrsla Gray um „Par­tyga­te“ verði gerð opin­ber.

Ekki liggur fyrir hversu há sektin sem Johnson og Sunak fá en frá því að henni verður fram­vísað hafa þeir 28 til að greiða sekt­ina. Ákveði þeir að mót­mæla sekt­inni mun lög­regla taka málið til end­ur­skoð­unar og í kjöl­farið annað hvort draga sekt­ina til baka eða láta reyna á lög­mæti hennar fyrir dóm­stólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár