Fyrstu 20 sektirnar vegna „Partygate“ aðeins toppurinn á ísjakanum

Breska rík­is­stjórnin hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir skort á gagn­sæi í tengslum við sektir vegna „Par­tygate“. Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra er ekki meðal þeirra 20 sem fengu sekt en lofar að upp­lýsa um það, verði hann sektaður síðar meir.

Rík­is­stjórn Bret­lands hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir skort á gagn­sæi í tengslum við sektir vegna „Par­tygate“. Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra er ekki meðal þeirra 20 sem fengu sekt en lofar að upp­lýsa um það, verði hann sektaður síðar meir.

Í upp­hafi árs kom Johnson fyrir breska þingið og baðst afsök­unar á að hafa verið við­staddur veislu í Down­ing­stræti 10, 20 maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi.

Breska lög­reglan hefur rann­sakað tólf sam­kvæmi á vegum breskra yfir­valda á þeim tíma sem strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Nú hefur lög­regla sektað nokkra sem sóttu sam­kvæmi í Downingstræti 10 að kvöldi 16. apríl 2021, kvöldið áður en útför Fil­ippusar prins fór fram. Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, var ekki sektaður. Sam­kvæmið var kveðju­hóf fyrir sam­skipta­stjóra for­sæt­is­ráð­herra, James Slack, og hefur hann beðist afsök­unar á að það hafi verið haldið og að hann hafi verið við­staddur.

Skortur á leiðtogahæfni og skaðleg drykkjumenning

Lítið var fjallað um sam­kvæmin tólf í bráða­birgða­skýrslu Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, um partýstandið í Down­ing­stræti og öðrum húsa­kynnum rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem birt var í lok jan­úar þar sem lög­regla hóf sjálf­stæða rann­sókn á þeim og bað Gray því um að vísa sem minnst í þau sökum rann­sókn­ar­hags­muna.

Greina má þrjú megin þemu í nið­ur­stöðum Gray. Í fyrsta lagi nefnir hún heims­far­ald­ur­inn og að erfitt hafi verið að rétt­læta sam­komur á sama tíma og almenn­ingur bjó við harðar sam­komu­tak­mark­an­ir. Í öðru lagi segir hún greini­legan skort hafa verið á for­ystu­hæfi­leikum sem leiddi meðal ann­ars til þess að gleð­skap­ur­inn gekk of langt í sumum til­vik­um. Í þriðja lagi gagn­rýnir hún drykkju­menn­ingu á vinnu­stöðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Óhóf­leg neysla áfengis er óvið­eig­andi á vinnu­stöðum öllum stund­um,“ segir m.a. í skýrslu Gray. Loka­skýrslu sér­staks sak­sókn­ara er enn beðið.

Lögregla birtir ekki nöfn þeirra sem fá sekt

[links]Alls er um 20 sektir að ræða og sam­kvæmt heim­ildum BBC er um fyrsta skammt­inn að ræða. Í bréfum þar sem sekt­irnar eru birtar segir að nið­ur­staða lög­reglu­rann­sóknar sýni að rök­studdur grunur sé fyrir því að brot gegn gild­andi sótt­varna­reglum hafi verið framin á umræddu tíma­bili. Lög­reglan mun ekki birta nöfn þeirra sem hafa verið sektaðir nema við­kom­andi reyni að fá sekt­inni hnekkt fyrir dóm­stólum.

Starfs­fólk Downingstrætis 10 stóð fyrir tveimur sam­kvæmum kvöldið áður en jarð­ar­för Fil­ippusar prins fór fram. Tveggja vikna þjóð­ar­sorg hafði verið lýst yfir í Bret­landi vegna frá­falls drottn­ing­ar­manns­ins.

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra var í hvor­ugu sam­kvæm­inu en hefur beðist afsök­unar á að þau hafi farið fram. Hann var hins vegar staddur í um þrjá­tíu manna veislu í Down­ing­stræti rúmum mán­uði síðar þegar útgöng­u­­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Veislu­höldin fóru fram í garði Down­ing­stræti og var hund­rað boðs­gestum meðal ann­ars bent á að „hafa eigið áfengi með­ferðis til að njóta góða veð­urs­ins eins best væri á kos­ið“. Um 30 manns þekkt­ust boð­ið, þar á meðal John­son sjálfur og Carrie John­son, eig­in­kona hans. Á því hefur hann einnig beðist afsök­unar, sem og eigin afmæl­is­veislu sem kona hans skipu­lagði í íbúð þeirra í Downingstræti 19. júní 2020 og kveðju­hófi í nóv­em­ber sama ár þegar sér­stakur ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra lét af störfum.

Lítið hefur verið gefið upp um þau sem hafa verið sektuð en Daily Tel­egraph segir Helen MacNamara, fyrr­ver­andi yfir­mann siða­reglna hjá rík­is­stjórn­inni, vera á meðal þeirra sem voru sektuð. Hún hefur ekki viljað tjá sig um málið. Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, krefst þess að hátt­settir ráða­menn sem hafi verið sektaðir verði nafn­greindir.

Tólf sam­komur eru til rann­sóknar hjá lög­reglu en í skýrslu Gray er fjallað um að minnsta kosti 16. Gray segir að henni hafi verið settar miklar skorður vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og því er enn nokkuð í að end­an­leg og „þýð­ing­ar­mik­il“ skýrsla verði gefin út. Johnson full­yrðir að end­an­leg skýrsla Gray um „Par­tygate“ verði gerð opin­ber.

Neita að afhenda myndir sem ljósmyndari ríkisstjórnarinnar tók í samkvæmunum

Skortur á gagn­sæi í öllu sem teng­ist „Par­tygate“ hefur verið gagn­rýnt. Ráð­herrar hafa til að mynda verið gagn­rýndir fyrir að neita að birta myndir sem ljós­mynd­ari rík­is­stjórn­ar­innar tók í sam­kvæmum sem hafa verið til rann­sóknar.

Skrif­stofa rík­is­stjórn­ar­innar vildi hvorki stað­festa né hafna að myndir frá sam­kvæm­unum séu til þegar óskað var eftir þeim á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Það liggur hins vegar fyrir að myndir frá ljós­mynd­ar­anum eru meðal gagna í rann­sókn Gray. Leið­togar Verka­manna­flokks­ins hafa skorað á rík­is­stjórn­ina að birta mynd­irnar, ekki síst þar sem laun ljós­mynd­ara rík­is­stjórn­ar­innar eru greidd af skatt­greið­endum.

„Ljós­mynd­ari Downingstrætis er fjár­magn­aður af skatt­greið­endum. Almenn­ingur á allan rétt á því að sjá þessar myndir sem þau hafa unnið baki brotnu fyrir,“ segir Angela Rayner, vara­for­maður Verka­manna­flokksin, sem telur Johnson vera að hylma yfir eigin brotum á reglum með að hindra birt­ingu mynd­anna. „Boris Johnson verður að koma hreint fram pog birta þessar myndir.“

Það er undir Gray sjálfri komið hvort hún nefni þau á nafn sem hún telur hafa gerst brot­leg gegn þágild­andi sótt­varna­reglum. Í bráða­birgða­skýrslu sinni nefndi hún engin nöfn.

Aðeins Johnson og Simon Case, ráð­herra í rík­is­stjórn Johnson, hafa gefið út að þeir muni upp­lýsa um það verði þeir sektaðir. Rannsókn lög­reglu á sam­kvæm­unum er ekki lokið og þykir lík­legt að sekt­irnar tutt­ugu séu aðeins á byrj­unin á því sem koma skal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár