Verkamannaflokkurinn í Bretlandi segist hafa sannanir fyrir því að Keir Starmer, leiðtogi flokksins, og starfslið hans hafi haldið áfram að sinna vinnu eftir að hafa snætt skyndibita og drukkið bjór á skrifstofu þingmanns flokksins.
Umrætt atvik er til rannsóknar hjá lögreglunni í Durham sem mögulegt brot á gildandi sóttvarnareglum. Atvikið átti sér stað 30. apríl 2021 á skrifstofu þingmannsins May Foy í Durham. Á myndskeiði sem er nú í dreifingu sést Starmer fá sér bjór með samstarfsfólki sínu.
Uppákoman hefur fengið viðurnefnið „Beergate“ og þykir óneitanlega svipa til „Partygate“-hneykslisins svokallaða þar sem Boris Johnson forsætisráðherra gerðist brotlegur gegn ströngum sóttvarnareglum sem voru í gildi á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Breska lögreglan sektaði Johnson, Carrie Johnson eiginkonu hans og Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, fyrir að vera viðstödd afmælisveislu forsætisráðherra sem fram fór í Downingstræti 10 19. júní 2020. Johnson hefur ítrekað beðist afsökunar á afmælisveislunni, sem og tveimur samkvæmum til viðbótar þar sem hann var viðstaddur, en telur sektina ekki ástæðu til afsagnar.
[adspot]Starmer hefur hins vegar lofað að hann muni segja af sér, verði hann sektaður vegna brota á sóttvarnareglum. Verkamannaflokkurinn fullyrðir hins vegar að hægt sé að færa sönnur á að atvikið síðastliðið vor hafi ekki verið gegn gildandi sóttvarnareglum þar sem augljóslega hafi verið um vinnutengdan viðburð að ræða vegna aukakosninga í Harlepool sem haldnar voru vegna afsagnar þingmanns í kjördæminu.
Samkvæmt heimildum The Guardian hefur þingflokkurinn tekið saman gögn, meðal annars myndskeið, skjöl og samskipti úr WhatsApp sem sýna fram á að hópurinn sem fékk sér að borða saman hafi snúið aftur til vinnu að því loknu og verið að störfum til klukkan eitt eftir miðnætti.
[links]„Við höfum verið hreinskilin með það að engar reglur voru brotnar. Við munum leggja fram gögn sem sanna að fólk var við störf fyrir og eftir málsverðinn.“ segir heimildarmaður flokksins.
Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á mánudag sagði Starmer að engin lög hefðu verið brotin. Starmer hefur ítrekað kallað eftir afsögn Johnson og Rishi Sunak fjármálaráðherra, sem var einnig sektaður. Starmer segir málin ólík og bendir á að gildandi sóttvarnareglur á þessum tíma hafi vissulega bannað samkomur innandyra en að vinnutengdir viðburðir hafi verið undanskildir og það hafi verið tilfellið, hann hafi „einfadlega verið að fá sér að borða og vinna frameftir“.
Starmer tók því vissa áhættu með því að leggja pólitísk örlög sín í hendur lögreglunnar í Durham. Af hverju ákvað hann að gera það? Að öllum líkindum þar sem hinn kosturinn, að segja ekkert, er álitinn verri af honum sjálfum og pólitískum ráðgjöfum. Nú er staðan í raun einföld: Ef lögreglan sektar Starmer mun hann segja af sér, annars ekki. Búast má við niðurstöðu lögreglu innan tveggja mánaða.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir