Johnson stóð af sér vantrauststillögu

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, stóð af sér atkvæða­greiðslu um van­traust innan þing­flokks Íhalds­flokks­ins. Johnson heldur því áfram að hrista af sér eft­ir­mála Par­tygate og heitir því að „leiða flokk­inn aftur til sig­urs “.

Boris Johnson yfirgefur þingið eftir að hafa greitt atkvæði um vantrauststillögu gegn sjálfum sér.
Boris Johnson yfir­gefur þingið eftir að hafa greitt atkvæði um van­traust­s­til­lögu gegn sjálfum sér. Mynd: EPA

148 þing­menn breska Íhalds­flokks­ins studdu van­traust­s­til­lögu á Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. 211 þing­menn studdu áfram­hald­andi for­ystu Johnsons sem verður áfram for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Allir 359 þing­menn flokks­ins tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni.

Boðað var til atkvæða­greiðslu um van­traust­s­til­lögu á hendur Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, eftir að Graham Brady, for­maður 1922-­nefndar Íhalds­flokks­ins, sem sér um helstu for­ystu­mál Íhalds­flokks­ins, greindi Johnson frá því að nefnd­inni hefðu borist bréf frá yfir 15 pró­sent þing­manna flokks­ins sem lýsa yfir van­trausti á Johnson. 54 bréf þurfa að ber­ast til að ná 15 pró­sent lág­mark­inu.

Johnson sagð­ist fagna atkvæða­greiðsl­unni og vildi ljúka henni af sem fyrst, hún sé tæki­færi til að binda enda á mán­að­ar­langar get­gátur um póli­tíska fram­tíð hans.

Atkvæða­greiðslan var leyni­leg og fór fram í neðri deild þings­ins milli klukkan 17 og 19 að íslenskum tíma. Þingmenn Íhalds­flokks­ins eru 359, 271 karl og 88 konur. Meiri­hluta atkvæða, 180 eða fleiri, hefði þurft til að fella Johnson. Skömmu áður en atkvæða­greiðslan hófst sagð­ist BBC hafa heim­ildir fyrir því að 131 þing­maður flokks­ins, að minnsta kosti, hygð­ist styðja Johnson. Þeir reynd­ust svo vera mun fleiri, eða 211.

[links]Þing­menn­irnir sem studdu van­traust­s­til­lög­una til­heyra meðal ann­ars „Rauða veggnum“, það er kjör­dæmum á Norður-, Norð­austur-Engalndi og mið­hér­uðum Englands sem á korti mynda eins konar vegg. Stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn hefur verið ráð­andi í rauða veggnum, allt þar til í kosn­ing­unum 2019 þegar Íhalds­flokk­ur­inn sóp­aði til sín fylgi.

„Þetta var ekki ákvörðun sem ég tók af léttúð. Ég hlust­aði á allar hliðar, sér­stak­lega frá kjós­endum sem höfðu sam­band við mig og deildu með mér skoð­unum og reynslum,“ segir Dehenna Davidson, þing­maður Íhalds­flokks­ins í Durham-sýslu, sem til­heyrir rauða veggnum. „Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá greiddi ég atkvæði gegn for­sæt­is­ráð­herr­anum í kvöld.“

Vantrauststillagan yfirvofandi frá upphafi Partygate

Gustað hefur um Johnson allt frá byrjun árs eftir að greint var frá partýstandi í Downingstræti á tímum strangra sótt­varna­reglna vegna heims­far­ald­urs COVID-19. Í jan­úar baðst hann afsök­unar á að hafa verið við­staddur garð­veislu í Down­ing­stræti í maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi.

Þegar fregnir bár­ust af fleiri sam­komum á vegum breskra stjórn­valda var Sue Gray, sér­stökum sak­sókn­ara, falið að gera rann­sókn til að meta eðli og til­gang veislu­hald­anna. Hneykslið fékk fljótt við­ur­nefnið „Par­tygate“.

Skýrslu Gray var beðið með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu en málin flækt­ust þegar breska lög­reglan hóf sjálf­stæða rann­sókn á veislu­höld­un­um. Lög­regla bað Gray að bíða með rann­sókn sína á meðan lög­reglu­rann­sóknin stóð yfir. Hún skil­aði þó bráða­birgða­skýrslu 31. jan­úar þar sem fram kom að veislu­höld í Down­ing­stræti á tímum útgöngu­banns eða strangra sótt­varna­reglna hafi verið óvið­eig­andi og að skortur hafi verið á for­ystu­hæfi­leikum og dóm­greind, bæði hjá starfs­fólki í Down­ing­stræti og á skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Fyrsti forsætisráðherrann sem er sektaður fyrir lögbrot

Rann­sókn lög­reglu lauk í lok maí. Tólf sam­kvæmi voru til rann­sóknar og alls gaf lög­regla út 126 sektir vegna brota á sótt­varna­regl­um. Sekt­irnar ná ti 83 manns og því eru dæmi um að ein­stak­lingar hafi fengið fleiri en eina sekt. John­son fékk þó aðeins eina sekt, fyrir að vera við­staddur eigin afmæl­is­veislu 19. júní 2020, í Down­ing­stræti.

Johnson er fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að lög­brot. Hann hefur ítrekað beðist afsök­unar og full­yrt að það hafi ekki hvarflað að honum á sínum tíma að hann væri að brjóta lög.

Drykkju­menn­ing í Downingstræti var afhjúpuð í loka­skýrslu Gray kom út 25. maí. Í skýrsl­unni segir að stjórn­mála­leið­togar og hátt­settir emb­ætt­is­menn verði að axla ábyrgð á drykkju­menn­ing­unni sem hefur við­gengst innan bresku rík­is­stjórn­ar­innar. Hvernig nákvæm­lega á að axla ábyrgð­inni fylgir ekki í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar en van­traust­s­til­laga á Johnson er klár­lega ein til­raun til þess.

Krafan um afsögn enn til staðar

Van­traust­s­til­lagan sneri þó um meira en Par­tygate. Stefna Johnson í efna­hags­málum og stjórn­un­ar­stíll hans almennt hafa einnig verið til umræðu.

Krafan um Johnson segi af sér for­mennsku er því enn til staðar, ekki síst meðal fjár­sterkra aðila sem hafa styrkt flokk­inn með háum fjár­hæðum svo árum skiptir. Einn þeirra, sem hefur styrkt flokk­inn um 340 þús­und pund frá 2010, eða rúmar 55 millj­ónir króna, segir í sam­tali við The Sunday Times að hann geti aðeins hugsað sér að halda styrk­veit­ingum sínum áfram ef leið­toga­skipti fara fram, strax.

Van­traust­s­til­laga var síð­ast til með­ferðar hjá flokknum í des­em­ber 2018 í miðju Brexit-ferli, þegar atkvæði voru greidd um van­traust á hendur Theresu May. May stóð til­lög­una af sér en sagði af sér nokkrum mán­uðum seinna og Johnson tók við af henni í júlí 2019.

Van­traust­s­til­laga veit sjaldn­ast á gott fyrir stjórn­mála­menn. En Johnson verður áfram leið­togi Íhalds­manna enn um sinn. Önnur van­traust­s­til­laga verður að minnsta kosti ekki lögð fram næsta árið þar sem að minnsta kosti 12 mán­uði þurfa að líða á milli van­trausts­yf­ir­lýs­inga á leið­toga Íhald­ds­flokks­ins. En til­lagan sem var felld í kvöld gæti markað upp­haf enda­lokanna, líkt og í til­felli Theresu May.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár