Boris biðst afsökunar – Enn á ný

Boris Johnson bað þing­menn enn á ný afsök­unar í dag á því að hafa brotið sótt­varna­reglur á tímum heims­far­ald­urs COVID-19. Á fimmtu­dag verður sér­stök umræða um Par­tygate þar sem þing­menn ákveða hvort aðkoma for­sæt­is­ráð­herra verði rann­sökuð.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, bað þingmenn enn einu sinni afsökunar á að hafa verið viðstaddur samkvæmi, þar á meðal eigin afmælisveislu, í Downingstræti á tímum strangra sóttvarnareglna vegna COVIID-19.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, bað þing­menn enn einu sinni afsök­unar á að hafa verið við­staddur sam­kvæmi, þar á meðal eigin afmæl­is­veislu, í Downingstræti á tímum strangra sótt­varna­reglna vegna COVIID-19. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, ávarp­aði þing­menn í fyrsta sinn í dag eftir að lög­regla sektaði Johnson, Carrie Johnson eig­in­konu hans og Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, fyrir að vera við­stödd afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra sem fram fór í Downingstræti 10 19. júní 2020.

[links]Eins og búist var við lagði Johnson áherslu á önnur mál, líkt og stríðið í Úkraínu, en Par­tygate-hneykslið svo­kall­aða, enda var honum frjálst að gera það í þessu fyrsta ávarpi sínu til þing­manna eftir páska­frí. Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sá þó til þess að Par­tygate var rætt og sat hann á fremsta bekk í þingsalnum.

Líkt og Johnson hefur marg­sagt hvarfl­aði ekki að honum í eigin afmæl­is­veislu að hann væri að brjóta lög. „Það voru mín mis­tök og ég biðst inni­legrar afsök­unar á þeim,“ sagði Johnson í þing­sal síð­degis. Hann sagði skilja reið­ina og sær­indi sem hann olli og að almenn­ingur eigi rétt á því að búast við meiru af eigin for­sæt­is­ráð­herra. Verklagi innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hefur verið breytt vegna þessa að sögn for­sæt­is­ráð­herra.

Því næst sneri hann sér að stríð­inu í Úkraínu og tal­aði um mis­heppn­aðar ákvarð­anir Rúss­lands­for­seta en lof­sam­aði fram­göngu Úkra­ínu­for­seta sem hann segir ein­kenn­ast af hug­rekki. Lang­tíma­mark­miðið að mati Johnson hlýtur að vera að styrkja Úkraínu svo Rússar dirf­ist ekki til að gera árás í lík­ingu við þessa á ný.

Johnson lauk ávarpi sínu á þeim orðum að starf hans felst í að tryggja öryggi þjóð­ar­innar og vel­megun. „Og það mun ég halda áfram að gera,“ sagði Johnson.

„Þvílíkur brand­ari,“ voru við­brögð Starmer, sem sagði afsök­un­ar­beiðni for­sæt­is­ráð­herra loðna, almenn­ingur væri nú þegar búinn að gera upp hug sinn og „tryði ekki orði sem hann segði“. „Hann er óheið­ar­legur, ófær um breyt­ingar og dregur alla niður í svaðið með sér,“ sagði Starmer.

Johnson ítrek­aði afsök­un­ar­beiðni sína en sagði hann og rík­is­stjórn­ina þurfa að halda áfram og sinna störfum sínum.

Líkti sekt Johnson við stöðumælasekt

Breska lög­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­varna­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veirunn­­ar. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­um. John­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektað­ur. Sem hann og gerði.

Johnson var við­staddur að minnsta kosti tvö önnur sam­kvæmi af þeim tólf sem lög­regla hefur til rann­sóknar. Hann gæti því átt von á fleiri sektum.

John­son er fyrsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að brjóta gegn lög­um. Johnson, eig­in­kona hans og Sunak hafa öll beðist afsök­unar og greitt sekt­ina en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar krefj­ast þess að John­son og Sunak segi af sér.

Yfir 70 þing­menn Íhlads­flokks­ins hafa lýst yfir stuðn­ingi við Johnson, þar á meðal þing­menn sem áður höfðu kraf­ist afsagnar hans vegna máls­ins. Nokkrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa einnig lýst yfir stuðn­ingi við Johnson, þar á meðal Brandon Lewis, ráð­herra mál­efna Norður-Írlands, sem hefur líkt sekt Johnson við stöðu­mæla­sekt. Tals­maður for­sæt­is­ráð­herra er þó ekki til­bú­inn til að taka undir þá við­lík­ingu.

Sérstök umræða um Partygate og stöðu forsætisráðherra á fimmtudag

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir halda því statt og stöðugt fram að Johnson hafi afvega­leitt þing­menn af ásettu ráði þegar hann sagði að gild­andi sótt­varna­reglum hafi ávallt verið fylgt í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og í við­burðum á vegum þess.

Sérstök umræða um Par­tygate fer fram á breska þing­inu á fimmtu­dag. Þetta stað­festi for­seti þings­ins, Lindsay Hoyle, í dag. Máls­hefj­andi verður Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sem hefur farið hvað harð­ast fram í gagn­rýni á Johnson.

Í umræð­unni munu þing­menn ræða hvort vísa eigi máli for­sæt­is­ráð­herra vegna Par­tygate til fríð­inda­nefndar þings­ins (e. Pri­vi­leges Committee) og hefja þannig rann­sókn á hvort Johnson hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn. Verði það nið­ur­staðan mun nefndin, sem skipuð er sjö þing­mönnum, fjórum þing­mönnum Íhalds­flokks­ins og þremur þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar, meta hvort Johnson hafi af ásettu ráði afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi á vegum stjórn­valda á tímum strangra sótt­varna­reglna.

Þingmenn munu í kjöl­farið greiða atkvæði um til­lögur nefnd­ar­innar, sem gætu meðal ann­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­gerðum gegn for­sæt­is­ráð­herra. Litlar líkur eru þó taldar á því að mál­inu verði vísað til nefnd­ar­innar í ljósi tryggs meiri­hluta Íhalds­manna á þing­inu. Heim­ild­ar­maður úr Verka­manna­flokknum segir í sam­tali við BBC að þing­menn Íhalds­flokks­ins sem svo mikið sem íhugi að greiða atkvæði gegn rann­sókn á máli for­sæt­is­ráð­herra sé að greiða atkvæði með yfir­hylm­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár