Johnson telur sektina ekki ástæðu til afsagnar

Sektir sem Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra, Carrie Johnson eig­in­kona hans og Rishi Sunak fjár­mála­ráð­herra Bret­lands fengu fyrir brot á sótt­varna­reglum á tímum heims­far­ald­urs snúa að afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra. Þeir ætla ekki að segja af sér.

Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, og Boris Johnson forsætisráðherra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sóttvarnarreglum á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér embætti.
Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, og Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sótt­varn­ar­reglum á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér emb­ætti. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, ætla ekki að segja af sér ráð­herra­emb­ættum þrátt fyrir að hafa verið sektaðir af lög­reglu vegna brota á ströngum sótt­varna­reglum sem voru í gildi á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar.

[links]Sunak, Johnson og Carrie Johnson, eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra, hafa öll verið sektuð fyrir að hafa verið við­stödd afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra í Downingstræti 10 19.júní 2020. Johnson er því fyrsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að brjóta gegn lögum. Öll þrjú hafa beðist afsök­unar og greitt sekt­ina en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar krefj­ast þess að Johnson og Sunak segi af sér.

Breska lög­reglan hefur rann­sakað tólf sam­kvæmi á vegum breskra yfir­valda á þeim tíma sem strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleirum. Johnson var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektaður.

Það varð svo ljóst í gær og Johnson segir að vegna sekt­ar­innar beri honum „enn rík­ari skylda til að standa við skuld­bind­ingar sínar“ og Sunak sagð­ist vilja „ein­beita sér að því að standa sig fyrir bresku þjóð­ina“.

Hvarflaði ekki að Johnson í afmælisveislunni að lögbrot væri mögulegt

Ekki hefur verið gefið upp hversu há sektin er en Johnson full­yrti í ávarpi sem hann flutti fyrir fjöl­miðla í gær að hann væri búinn að greiða hana. Johnson sagð­ist skilja reiði almenn­ings vegna máls­ins

„Ég hef greitt sekt­ina og biðst enn og aftur afsök­unar,“ sagði Johnson, aðspurður hvort hann ætl­aði að segja af sér. Hann sagð­ist vilja ein­blína á þau mik­il­vægu verk­efni sem fram undan eru, meðal ann­ars áhrif stríðs­ins í Úkraínu.

Johnson segir að afmæl­is­veislan hafi aðeins staðið yfir í um tíu mín­útur og að það hefði ekki hvarflað að honum á þeim tíma að hann, eða aðrir við­staddir, væru að ger­ast brot­leg við lög. „En að sjálf­sögðu, lög­reglan hefur kom­ist að því að svo hafi verið og ég virði nið­ur­stöðu rann­sóknar hennar að fullu,“ sagði Johnson.

„Bretland verðskuldar meira, þeir verða að víkja“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar saka Johnson og Sunak um að ljúga að almenn­ingi um þátt­töku þeirra í sam­kvæmum á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í Downingstræti 10. Keir Starmer, leið­togi Verka­lýðs­flokks­ins, fer þar fremst í flokki.

„Hugsanir mínar eru hjá öllum þeim sem gerðu hið rétta. Þetta er eins og löðr­ungur fyrir þau sem færðu fórnir, hittu ekki ætt­ingja, gátu ekki verið við­stödd jarð­ar­farir, brúð­kaup eða jafn­vel fæð­ingu barna sinna. Seku menn­irnir eru for­sætisæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra, þeir van­virtu allar þessar fórnir. Þetta er í fyrsta sinn sem sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra brýtur lög. Svo laug hann að almenn­ingi um það. Bretland verð­skuldar meira, þeir verða að víkja“ sagði Starmer í sam­tali við BBC.

Flestir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa lýst yfir stuðn­ingi við Johnson og Sunak. Grant Shapps sam­göngu­ráð­herra segir að Johnson „dauð­skammist sín“ vegna sekt­ar­innar en að hann hafi ekki brotið lög af ásettu ráði. „Allir eru mennskir. Fólk gerir mis­tök,“ segir Shapps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár