Drykkjumenning í Downingstræti afhjúpuð í lokaskýrslunni um Partygate

Stjórn­mála­leið­togar og hátt­settir emb­ætt­is­menn verða að axla ábyrgð á drykkju­menn­ing­unni sem hefur við­gengst innan bresku rík­is­stjórn­ar­innar. Loka­skýrsla um „Par­tygate“ hefur loks verið birt, fjórum mán­uðum eftir að for­sæt­is­ráð­herra baðst fyrst afsök­unar.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist hafa lært marg af Partygate en sé nú tilbúinn til að horfa fram á veginn.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, seg­ist hafa lært marg af Par­tygate en sé nú til­bú­inn til að horfa fram á veg­inn. Mynd: EPA

Ekki hefði átt að leyfa margar af þeim sam­komum sem haldnar voru í Downingstræti 10 og á vegum breskra stjórn­valda á tímum strangra sótt­varna­reglna og illa var komið fram við starfs­fólk sem gerði athuga­semdir við partýstandið. Stjórn­mála­leið­togar og hátt­settir emb­ætt­is­menn verða að axla ábyrgð.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í loka­skýrslu Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, sem hefur frá því í jan­úar rann­sakað sam­kvæmi á vegum breskra stjórn­valda sem haldin voru á tímum heims­far­ald­urs COVID-19.

Partýstandið í Downingstræti fékk fljótt við­ur­nefnið „Par­tygate“ eftir að Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, baðst í upp­hafi árs afsök­unar á því að hafa verið við­staddur garð­veislu í Downingstræti í maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna COVID-19 var í gildi. Í kjöl­farið bár­ust fregnir af fleiri sam­komum á vegum stjórn­valda og var Sue Gray, sér­stökum sak­sókn­ara, falið að gera rann­sókn til að meta eðli og til­gang veislu­hald­anna.

[links]Skýrslu Gray var beðið með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu en málin flækt­ust þegar breska lög­reglan hóf sjálf­stæða rann­sókn á veislu­höld­unum. Lögregla bað Gray að bíða með rann­sókn sína á meðan lög­reglu­rann­sóknin stóð yfir. Hún skil­aði þó bráða­birgða­skýrslu 31. jan­úar þar sem fram kom að veislu­höld í Downingstræti á tímum útgöngu­banns eða strangra sótt­varna­reglna hafi verið óvið­eig­andi og að skortur hafi verið á for­ystu­hæfi­leikum og dóm­greind, bæði hjá starfs­fólki í Downingstræti og á skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­innar.

Rannsókn lög­reglu lauk í síð­ustu viku. Tólf sam­kvæmi voru til rann­sóknar og alls gaf lög­regla út 126 sektir vegna brota á sótt­varna­reglum. Sekt­irnar ná ti 83 manns og því eru dæmi um að ein­stak­lingar hafi fengið fleiri en eina sekt. Johnson fékk þó aðeins eina sekt, fyrir að vera við­staddur eigin afmæl­is­veislu 19. júní 2020, í Downingstræti.

Aðvaranir um möguleg sóttvarnabrot ítrekað hunsaðar

Eftir að rann­sókn lög­reglu lauk var Gray því ekk­ert til fyr­ir­stöðu að skila loka­skýrslu sinni, sem hún hefur nú gert. Í loka­skýrsl­unni, sem var birt í heild sinni í morgun og er alls 60 blað­síður, er ljósi varpað á drykkju sem fram fór á starfs­stöðvum opin­berra starfs­manna, veik­indi starfs­fólks sem tók þátt í gleð­skapnum og slæma fram­komu við starfs­fólk í ræst­ingum og örygg­is­störfum. Aðvar­anir um að sam­kvæmin brytu gegn gild­andi sótt­varna­reglum voru ítrekað huns­aðar.

Boris Johnson fékk skýrsl­una afhenta í morgun áður en hún var gerð opin­ber og sagði hann við þing­menn að hann „beri fulla ábyrgð á öllu sem átti sér stað á hans vakt.“ Hann segir ferlið síð­ustu mán­uði hafi gert hann auð­mjúkan og að hann dragi ýmsan lær­dóm af því. Hann biðl­aði þó til þing­manna að horfa fram á veg­inn.

Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sem sætir sjálfur rann­sókn lög­reglu vegna mögu­legra brota á sótt­varna­reglum fyrir að fá sér bjór á vinnu­tíma þegar strangar sótt­varna­reglur voru í gildi, vill að for­sæt­is­ráð­herra axli ábyrgð með því að segja af sér. Hann hvetur þing­menn Íhalds­flokks­ins til að segja for­sæt­is­ráðr­herra „að leiknum sé lokið“ og að „tími sé kom­inn til að pakka í töskur“.

Hverjir eiga í raun og veru að axla ábyrgð og hvernig?

Í nið­ur­lagi skýrsl­unnar segir Gray að margar af þessum sam­komum hefðu ekki átt að eiga sér stað. „Æðstu stjórn­endur, bæði stjórn­mála­menn og emb­ætt­is­menn, verða að axla ábyrgð á þess­ari menn­ingu.“

Hvernig nákvæm­lega á að axla ábyrgð­inni liggur hins vegar ekki fyrir. Par­tygate er þó ekki alveg lokið þar sem rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins mun nú rann­saka hvort John­son hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haldin voru á tímum strangra sótt­varna­reglna. Þegar nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu mun hún leggja fram til­lögur sem þing­menn greiða atkvæði um, sem gætu meðal ann­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­gerðum gegn for­sæt­is­ráð­herra. Ólíklegt verður þó að telj­ast að það verði nið­ur­staðan þar sem Íhalds­flokk­ur­inn hefur tryggan meiri­hluta á þing­inu. Allt útlit er því fyrir að Johnson verði að ósk sinni og geti loks sagt skilið við Par­tygate og horft fram á veg­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár