Johnson sloppinn fyrir horn en endanlegrar skýrslu um veisluhöld beðið

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir nið­ur­stöðu bráða­birgða­skýrslu sér­staks sak­sókn­ara um veislu­höld í Downingstræti sýna að stjórn­völdum sé treystandi til að standa við skuld­bind­ingar sínar. Margir þing­menn eru á öðru máli.

Veislu­höld í Downingstræti 10 á tímum útgöngu­banns eða strangra sótt­varna­að­gerða voru óvið­eig­andi og skortur var á for­ystu­hæfi­leikum og dóm­greind, bæði hjá starfs­fólki í Downingstræti sem og á skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta er meðal nið­ur­staðna í tólf síðna bráða­birgða­skýrslu Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, um partýstandið í Downingstræti og öðrum húsa­kynnum rík­is­stjórn­ar­innar, sem birt var í gær.

[links]Skýrsl­unnar hefur verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Búist var við nið­ur­stöðum um miðja síð­ustu viku en þegar lög­reglan í Lundúnum hóf rann­sókn á mögu­legum brotum á sótt­varn­ar­reglum óskaði hún eftir því Gray að vísa sem minnst í þær sam­komur í skýrsl­unni sem lög­reglan hefur til rann­sóknar.

Heimsfaraldur, skortur á leiðtogahæfni og skaðleg drykkjumenning

Greina má þrjú megin þemu í nið­ur­stöðum Gray. Í fyrsta lagi nefnir hún heims­far­ald­ur­inn og að erfitt hafi verið að rétt­læta sam­komur á sama tíma og almenn­ingur bjó við harðar sam­komu­tak­mark­anir. Í öðru lagi segir hún greini­legan skort hafa verið á for­ystu­hæfi­leikum sem leiddi meðal ann­ars til þess að gleð­skap­ur­inn gekk of langt í sumum til­vikum. Í þriðja lagi gagn­rýnir hún drykkju­menn­ingu á vinnu­stöðum rík­is­stjórn­ar­innar. „Óhófleg neysla áfengis er óvið­eig­andi á vinnu­stöðum öllum stundum,“ segir m.a. í skýrslu Gray.

[adspot]„Ég skil þetta og mun laga þetta,“ sagði Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra þegar hann sat fyrir svörum á breska þing­inu í gær. Eins og við var að búast var líf og fjör í þingsalnum. Ian Blackford, leið­togi skoska þjóð­ar­flokks­ins, var vísað út úr þing­sal fyrir að saka Johnson um lygar. „For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur logið og blekkt þingið, hann verður nú að segja af sér,“ sagði Blackford, sem var vísað úr þing­sal eftir að hann afþakk­aði boð for­seta þings­ins um að draga orð sín til baka.

En það voru ekki aðeins póli­tískir and­stæð­ingar Johnson sem sóttu fast að honum heldur einnig flokks­systk­ini með Theresu May, for­vera Johnsona á for­sæt­is­ráð­herra­stóli, í broddi fylk­ingar.

May sagði það koma skýrt fram í skýrslu Gray að Downingstræti 10 fór ekki eftir settum reglum. „Annað hvort hefur hæst­virtur félagi minn ekki lesið reglu­gerð­ina eða skilur ekki hvað hún þýddi fyrir aðra, eða; hélt að hún ætti ekki við þau í Downingstræti 10. Hort var það?“ spurði May.

Johnson túlkar nið­ur­stöðu skýrsl­unnar á annan hátt og hyggst hann halda ótrauður áfram. Hann er búinn að biðj­ast afsök­unar og að hans mati snýst málið um hvort stjórn­völdum sé treystandi til að standa við sitt. „Og ég segi: Já, við getum það,“ sagði Johnson í þing­sal í gær við litla hrifn­ingu þing­manna.

Endanleg rannsókn verður gerð opinber

12 sam­komur eru til rann­sóknar hjá lög­reglu en í skýrslu Gray er fjallað um að minnsta kosti 16. Gray segir að henni hafi verið settar miklar skorður vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og því er enn nokkuð í að end­an­leg og „þýð­ing­ar­mikil“ skýrsla verði gefin út.

Johnson var tregur til að svara því hvort end­an­lega skýrsla yrði gerð opin­ber en eftir þrýst­ing úr mörgum áttum bár­ust þær upp­lýs­ingar frá frá Downingstræti í gær­kvöld að loka­skýrslan verður gerð opin­ber um leið og lög­reglu­rann­sókn lýkur.

En þar er ekki öll sagan sögð. Jim Pickard, stjórn­mála­skýr­andi hjá Financial Times, hefur eftir tals­manni Johnson að komi til þess að lög­regla beiti sektum vegna brota á sótt­varna­reglum - þar á meðal gegn for­sæt­is­ráð­herra - muni Downingstræti ekki upp­lýsa um það.

Johnson sé aðeins að reyna að bjarga eigin skinni

Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sagði engan vafa leika á því að Johnson sæti glæpa­rann­sókn. Starmer segir Johnson ein­blína á að bjarga eigin skinni frekar en að veita lyk­il­málum athygli.

„For­sæt­is­ráð­herr­ann braut regl­urnar. Foræstis­ráð­herra laug um að hafa brotið regl­urnar,“ segir Starmer og segir hann Johnson sæta glæpa­rann­sókn vegna eigin hegð­unar. Starmer seg­ist marg­sinnis hafa verið þeirrar skoð­unar síð­ast­liðin tvö ár að Johnson ætti að segja af sér en nú geti hann ekki haldið aftur af sér lengur.

Þingmenn Íhalds­flokks­ins hafa margir hverjir sagst ætla að bíða nið­ur­stöðu rann­sóknar Gray áður en þeir gera upp hug sinn varð­andi póli­tíska stöðu Johnson. 1922-nefnd flokks­ins kom saman á fundi í gær­kvöldi þar sem Johnson reyndi að full­vissa flokks­menn um hæfi sitt til að leiða rík­is­stjórn­ina áfram.

Nadine Dorries mennta­mála­ráð­herra er ekki á meðal þeirra sem Johnson þarf að sann­færa, svo mikið er víst. Hún full­yrti í við­tali í gær eftir að skýrslan var birt að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri ekki að ljúga, þrátt fyrir að yfir 300 myndir frá lög­reglu sýni fram á veislu­höld sem upp­fylltu ekki kröfur um gild­andi sótt­varna­tak­mark­anir.

„Ég veit ekk­ert um neinar sam­komur,“ sagði Dorries, sem telur að hún megi ekk­ert gefa upp fyrr en rann­sókn lög­reglu er lokið.

Vantrauststillaga enn möguleg

Óljóst er hvort bráða­birgða­skýrsla Gray dugi flokks­mönnum til að gera upp hug sinn. Skýrslan vekur í raun upp fleiri spurn­ingar en svör og ljóst er að bíða þarf nið­ur­stöðu lög­reglu­rann­sóknar þar til póli­tísk fram­tíð Boris Johnson liggur fyrir.

Mögu­leiki á van­traust­s­til­lögu er enn fyrir hendi en svo að hún verði afgreidd þarf 1922-nefnd Íhalds­flokks­ins, sem sér um for­ystu­mál flokks­ins, að ber­ast bréf frá 54 þing­mönnum svo atkvæða­greiðsla um um van­traust fari fram. Íhalds­flokk­ur­inn er með 359 þing­sæti svo 15 pró­sent þing­manna flokks­ins þurfa að leggja fram van­traust­stilögu svo hún verði tekin til með­ferðar. Þó nokkur fjöldi bréfa hefur þegar borist en sam­kvæmt venju lætur for­maður nefnd­ar­innar ekk­ert uppi fyrr en til­skyldum fjölda til að leggja fram van­traust­s­til­lögu hefur verið náð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár