Gagnrýni á Samherja flæðir úr öllum áttum en mbl.is birti auglýsingu fyrir áróðursmyndband

Á sama tíma og fjöl­miðla­fólk, lista­menn og stjórn­mála­menn stigu fram og for­dæmdu árásir Samherja á Helga Seljan og RÚV seldi Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, Samherja aug­lýs­ingu á vef sínum fyrir nýjasta áróð­urs­mynd­band sitt.

Um helg­ina birt­ist stór aug­lýs­inga­borði á mbl.is, sem oft er mest lesni frétta­vefur lands­ins, sem á stóð „Ábyrgð­ar­leysi í Efsta­leiti“. Aug­lýs­ingin er frá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja og ef ýtt er á hlekk­inn þá er farið inn á Youtube-síðu fyr­ir­tæk­is­ins og á nýtt mynd­band sem það hefur gert um Helga Seljan, blaða­mann hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, og RÚV.

Um er að ræða þrett­ánda mynd­bandið sem Samherji hefur látið fram­leiða til að draga úr trú­verð­ug­leika þeirra sem stóðu að umfjöllun um athæfi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu sem sýnd var í nóv­em­ber 2019. Helsta skot­mark fyr­ir­tæk­is­ins í mynd­bönd­unum er, auk Helga, Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn sem er í lyk­il­hlut­verki í rann­sóknum á hendur Samherji á Íslandi og í Namibíu.

Í nýja mynd­band­inu er kvartað yfir að nið­ur­staða siða­nefndar RÚV í nýlegu kæru­máli Samherja á hendur á annan tug starfs­manna fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem Helgi var tal­inn hafa verið brot­legur við siða­reglur vegna fjög­urra ummæla sem hann hafi látið falla á sam­fé­lags­miðlum, muni ekki hafa þær afleið­ingar að Helga verði gert að hætta umfjöllun um Samherja.

Í texta sem fylgir mynd­bandi að í ljósi nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar sé „óhjá­kvæmi­legt að draga þá ályktun að frétta­mað­ur­inn hafi verið van­hæfur til að fjalla um Samherja vegna per­sónu­legrar afstöðu gegn fyr­ir­tæk­inu og stjórn­endum þess.“

Í mynd­band­inu, sem er í kost­aðri dreif­ingu á Youtube, er einnig kvartað yfir því að RÚV birti „ekki jákvæðar fréttir um Samherja og neitar að fjalla um mis­tök sín gagn­vart fyr­ir­tæk­inu“.

Endurupptöku hafnað

Kjarninn greindi nýverið frá því að Helgi hefði lagt fram end­ur­upp­töku­beiðni vegna úrskurðar siða­nefnd­ar­innar vegna mis­taka hennar. Mistökin hafi falist í því að nefndin mat fimm ummæli hans heild­stætt til að kom­ast að nið­ur­stöðu í mál­inu, þar af ein ummæli sem ekki fjöll­uðu um Sam­herja. Siða­nefndin dró nið­ur­stöðu sína vegna þeirra ummæla til baka. Þá vildi Helgi meina að einn siða­nefnd­ar­maður hefði hags­muna­tengsl. Siða­nefndin hafn­aði því að taka málið upp.

[adspot]Samherji var um tíma á meðal stærstu eig­enda Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, en seldi hlut sinn í félag­inu til Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017. Eyþór greiddi ekk­ert fyrir hlut­inn heldur fékk selj­enda­lán frá Samherja. Það lán, upp á rúm­lega 380 millj­ónir króna, er gjald­fallið og hefur ekki verið greitt til baka. Stærstu eig­endur útgáf­unnar eru aðilar tengdir útgerð og hún heldur úti umfangs­mik­illi útgáfu­starf­semi um sjáv­ar­út­veg bæði á vef og í prenti þar sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki kaupa mikið magn aug­lýs­inga. Alls hafa eig­endur Árvakurs greitt að minnsta kosti 2,5 millj­arða króna vegna tap­rekst­urs útgáf­unnar frá því að þeir tóku við henni árið 2009.

Holskefla stuðnings

Margir hafa risið upp und­an­farið til varnar Helga Seljan og RÚV. Í lok síð­asta mán­aðar birt­ust leið­arar í Stund­inni, Kjarn­anum og Frétta­blað­inu þar sem nið­ur­staða siða­nefndar RÚV, stuðn­ings­leysi stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins við starfs­menn sína og aðför Samherja gegn nafn­greindum blaða­mönnum var gagn­rýnt. Í kjöl­farið gagn­rýndu bæði Stefán Eiríks­son, útvarps­stjóri RÚV, og Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, þá aðför sem Samherji hefur staðið í gagn­vart Helga.

Í síð­ustu viku sendu félagar í Félagi frétta­manna og starfs­menn frétta­stofu RÚV í öðrum félögum frá sér yfir­lýs­ingu vegna nýjasta áróð­urs­mynd­bands Samherja gegn Helga Seljan, því hinu sama og aug­lýs­ingin á mbl.is vísar inn á. Þar sagði meðal ann­ars: „Frétta­menn RÚV lýsa yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Helga í þess­ari ófræg­ing­ar­her­ferð Samherja á hendur honum sem er for­dæma­laus í sögu fjöl­miðl­unar á Íslandi. Samherji hefur und­an­farin miss­eri valið þá leið að veit­ast að blaða- og frétta­mönnum frekar en að svara efn­is­lega spurn­ingum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og ásak­anir um lög­brot. Þetta hefur fyr­ir­tækið meðal ann­ars gert með fjar­stæðu­kenndum dylgjum í færslum á vef sínum og með því að borga fyrir dreif­ingu áróð­urs­mynd­banda þar sem gróf­lega er vegið að fjöl­miðlum, einkum og sér í lagi að frétta­mann­inum Helga Seljan[...]Ofbeldi á sér margar birt­ing­ar­myndir. Framkoma Samherja í garð þeirra frétta­manna sem unnið hafa að umfjöllun um fyr­ir­tækið getur ekki talist annað en ofbeldi og skipu­lögð aðför að upp­lýstri umræðu og gagn­rýnum en ábyrgum frétta­flutn­ingi. Frétta­menn RÚV munu þrátt fyrir það hér eftir sem hingað til halda áfram hlut­lægri og mál­efna­legri umfjöllun um Samherja og láta árásir fyr­ir­tæk­is­ins ekki hafa áhrif á frétta­flutn­ing.“

Fjöl­margir starfs­menn RÚV deildu svo yfir­lýs­ing­unni í eigin nafni á sam­fé­lags­miðlum.

Seðlabankastjóri varpar sprengju inn í umræðuna

Á föstu­dag birt­ist svo við­tal við Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra í Stund­inni. Þar tjáði hann sig um annað Sam­herj­a­mál, þá sem bank­inn rann­sak­aði á hendur fyr­ir­tæk­inu á sínum tíma.

Ásgeir fór sér­stak­lega yfir aðfarir Sam­herja gagn­vart fimm starfs­mönnum Seðla­banka Íslands, en fyr­ir­tækið kærði starfs­menn­ina fimm, þar á meðal Má Guð­munds­son fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra, til lög­reglu vorið 2019 eftir að Seðla­bank­inn hafn­aði því að greiða Sam­herja bætur vegna hins svo­kall­aða Seðla­banka­máls.

Ásgeir segir í við­tal­inu að það sé ótækt að einka­fyr­ir­tæki eins og alþjóð­legi útgerð­ar­ris­inn Sam­herji geti ráð­ist per­sónu­lega að rík­is- og emb­ætt­is­mönnum með þeim hætti sem hann telur að hafi átt sér stað. „Þetta starfs­fólk var kært fyrir eitt­hvað sem við vitum ekki enn þá hvað. Þetta er ákveð­inn vandi; lög­gjaf­inn hefur ekki enn veitt okkur vernd fyrir svona ásókn. Seðla­bank­inn mun að sjálf­sögðu standa straum af máls­kostn­aði vegna þess­ara mála. En ég er mjög ósáttur við þetta, að þessar kærur hafi ekki verið afgreiddar og það hafi ekki verið gengið frá þessu. Og ég er mjög ósáttur við þennan anga af þessu Sam­herj­a­máli: Að farið hafi verið svona per­sónu­lega á eftir þessu fólki.[...]Eitt er að fara gegn stofn­un­inni, það er hægt að berja á þess­ari stofnun eða mér sem fram­kvæmda­stjóra henn­ar. En ég er mjög ósáttur við að farið sé á eftir ein­staka starfs­mönnum með þessum hætti. Það má alveg berja á þess­ari stofn­un, hún er virki, en það má ekki gera þetta svona per­sónu­lega gegn fólki.“

Dregið úr fjölmiðlafrelsi

Í kjöl­farið bætt­ist Íslands­deild Transparency International við gagn­rýniskór­inn. Í til­kynn­ingu sam­tak­anna sagði að fram­ganga Samherja vegna frétta og eft­ir­lits með starf­semi félags­ins væri langt út fyrir ramma eðli­legra starfs­hátta. „Allt frá árinu 2012 þegar rann­sókn Seðla­bank­ans á starf­semi Samherja hófst vegna gruns um brot á gjald­eyr­is­lögum hefur fyr­ir­tækið háð víð­tæka her­ferð gegn stofn­un­unum, fjöl­miðlum og ein­staka fólki. Fyr­ir­tækið hefur fjár­magnað áróð­urs­þætti til birt­inga, fjár­magnað bóka­skrif í áróð­ur­stil­gangi og haldið úti for­dæma­lausu túlk­un­ar­stríði á sög­unni. Jafnvel á nefnd­ar­fundum Alþingis hafa full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins sýnt af sér hegðun sem engum er sæm­andi. Í Namib­íu­mál­inu hefur fyr­ir­tækið brugð­ist við með sams­konar hætti og raunar gefið í. Full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins hafa ógnað og njósnað um ein­stak­linga sem fjallað hafa um málið, kostað áróð­urs­mynd­bönd til almenn­ings þar sem hreinum og klárum ósann­indum er haldið fram og ítrekað hafa verið leið­rétt. Fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins getur ekki talist innan eðli­legra marka. Hér er um að ræða langvar­andi stríðs­rekstur gegn sam­fé­lag­inu í krafti arðs vegna þess sér­staka aðgangs sem félagið hefur að nýt­ingu auð­linda almenn­ings. Nú er mál að linni.“

Í síð­ustu viku var greint frá því að Ísland hefði fallið um eitt sæti í árlegri fjöl­miðla­frelsi­vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­manna án landamæra og situr nú í 16. sæti, eftir að hafa verið í 15. sæti í fyrra. Her­ferð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Sam­herja gegn blaða- og frétta­mönnum sem fjallað hafa um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins var sér­stak­lega nefnd í umfjöllun sam­tak­anna um stöðu fjöl­miðla á Íslandi.

Þetta var fjórða árið í röð sem Ísland fellur niður list­ann, eftir að hafa verið í 10. sæti árið 2017, en hin nor­rænu ríkin raða sér efst á lista.

„Komin útá ystu brún lýðræðis og tómið blasir við“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens bætt­ist í hóp­inn um helg­ina þegar hann birti harð­orða stöðu­upp­færslu á Facebook sem vakti mikla athygli. Þar sagði hann árásir Samherja vera for­dæm­is­lausar og þegar að fyr­ir­tækið hafi verið afhjúpað þannig að nak­inn sann­leik­ur­inn blasi við þá séu við­brögð þess að fara í her­ferð gegn Helga Seljan. „Við erum að tala um millj­arða fyr­ir­tæki sem er risi meðal risa á landi hér. Það sem slær mann sér­stak­lega er þögn þing­manna þjóð­ar­innar sem klár­lega heyra og sjá það sem er að ger­ast. Er það þetta sem við almenn­ingur viljum? Að það sé ráð­ist á frétta­fólk sem er að vinna sína vinnu? Það eru gerðir sjón­varps­þættir til þess að taka Helga niður og settir á netið þannig að þeir blasa við öllum, börnum jafnt sem full­orðnum. Efnið er ískaldur áróður þar sem ham­ast er á Helga og ekk­ert til sparað. Mánuðum saman.“

Bubbi spurði svo hvers konar sam­fé­lag Íslend­ingar vildu. „Þingmenn horfa annað þegar aðför Samherja gegn Helga Seljan blasir öllum við. Það tekur Samherji sem grænt ljós yfir sið­ferð­is­þrösk­uld­inn. Ef fólk þorir ekki að tjá sig af ótta við að það hafi afleið­ingar sem geti ógnað afkomu þess þá erum við komin útá ystu brún lýð­ræðis og tómið blasir við.“

Árásir sem taka hlutina á nýtt og áður óþekkt stig

Stjórn­mála­menn hafa sumir hverjir brugð­ist við um helg­ina, eftir að við­talið við Ásgeir var birt og gagn­rýni Bubba var sett fram. Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, kom inn á her­ferð Samherja gegn RÚV og Helga Seljan í Silfrinu á RÚV í gær. Þar sagði hún að henni þætti ógeð­fellt að verið væri að nýta hagn­að­inn af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna væri varið í „árásir á fjöl­miðla­fólk og einn okkar sterkasta rann­sókn­ar­blaða­mann og til að grafa undan þess­ari stofnun hér líka, sem að er RÚV. Þetta er mjög alvar­legt.“

Í gær­kvöldi birt­ist stöðu­upp­færsla á Facebook frá Loga Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Logi er frá Akureyri, sama sveit­ar­fé­lagi og Samherji. Í stöðu­upp­færsl­unni sagði Logi: „Þegar ég var að alast upp á Akureyri fyrir nokkrum áratugum áttaði maður sig vissu­lega á að ein­staka fjölskyldur voru efn­aðri en restin af bæj­arbúum. Þetta birt­ist aðal­lega í einbýlishúsi, Volvo og lítilli auka bif­reið. Jú svo fóru þessar fjölskyldur stundum í utan­lands­ferðir sem var frekar sjald­gæft þá. Að öðru leyti tók maður lítið eftir þessu. Börn þessa efnafólks gengu með manni í skóla og strákarnir spil­uðu með manni fótbolta. Hugs­an­lega hafa þau átt Millet úlpur eða flott­ari takka­skó en ég tók þá að minnsta kosti ekki eftir því.“

[adspot]Síðan þá hafi hins vegar gríðar­legur auður safn­ast á enn færri hendur og örfáir ein­stak­lingar orðið ríkari en hægt sé að átta sig á. „Ein ástæðan er aðgangur þeirra að sam­eig­in­legum auð­lindum þjóðar­innar. Hluti þessa auðs hefur síðan leitað í aðrar greinar og sömu aðilar hreiðrað um sig í orku­geir­anum, trygg­inga- og banka­starf­semi, matvörukeðjum, flutn­inga­starf­semi, húsnæð­is­mark­aði og jafn­vel fjölmiðlum. Þetta eitt og sér er hættu­leg þróun og endar að lokum í því að lýðræðið lætur í minni­pok­ann fyrir auð­ræð­inu. Og við þurfum virki­lega að taka það alvar­lega þegar seðla­banka­stjóri lands­ins segir: „Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hags­munahópum.”“Logi sagði suma þessa „stur­t­ríku manna“ haga sér eins og um þá eigi að gilda önnur lög og aðrir mannasiðir. „Viðbrögð stjórnenda Samherja í kjölfar Seðla­bankamálsins og Namibíuskjal­anna gefa t.d. til­efni til að ætla að þeir telji sig lúta öðrum lögmálum og annað fólk[...]Árásir Samherja á ein­staka emb­ættis- og blaða­menn taka svo hlut­ina alveg á nýtt og áður óþekkt stig og grafa undan því að fólk sem sinnir eft­ir­liti og aðhaldi geti sinnt störfum sínum óhrætt.“

Kolbeini verður illt að fylgjast með aðförum Samherja

Í morgun steig svo fram þing­maður úr stjórn­ar­lið­inu, fyrr­ver­andi blaða­mað­ur­inn Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé úr Vinstri grænum, og tók undir gagn­rýn­ina. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hann að for­svars­menn Samherja væru nú að nýta auð sinn í „enda­lausar árásir gegn frétta­manni sem þeim finnst hafa verið sér óþægur ljár í þúfu. Og í leið­inni að allri frétta­stofu RÚV. Auð sem þeir hafa öðl­ast við að nýta sam­eig­in­lega auð­lind þjóð­ar­innar. Og sækja að ein­staka starfs­mönnum Seðla­bank­ans. Þetta er ljótt. Smá­sál­ar­legt. Þrá­hyggjan er slík að manni verður ein­fald­lega illt að fylgj­ast með þessu.“

Þing­mað­ur­inn segir að hann velti því oft fyrir sér hvort for­svars­menn Samherja séu algjör­lega úr takti við sam­fé­lagið. „Mér fannst hegðun sumra þeirra á nefnd­ar­sviði Alþingis, þar sem þeir veitt­ust að þáver­andi seðla­banka­stjóra, benda til þess. Gaf ákveðna til­ætl­un­ar­semi til kynna, elítu­hugsun um að vera yfir þetta allt haf­inn og reglur sam­fé­lags­ins giltu ekki um þá. Þegar ég steig á milli voru það ósjálf­ráð við­brögð við því að ungur og krafta­legur maður veitt­ist að eldri manni. En þetta var svo miklu meira en það; það hvernig þú bregst við fólki sem þér finnst vera þér mót­drægt segir nefni­lega allt um þig sem mann­eskju. Og við­brögðin þarna voru að það ætti bara að öskra þetta óþægi­lega í burtu.“

Enn séu for­svars­menn Samherja við sama hey­garðs­hornið og hiki ekki við að nýta for­rétt­inda­stöðu sína til reyna að öskra það óþægi­lega í burtu, að mati Kolbeins. Hann hvetur þá frekar til að líta í eigin barm og þroskast af þess­ari lífs­reynslu. „Ég vona að Helgi Seljan, fólkið á frétta­stofu RÚV og þeir starfs­menn Seðla­bank­ans sem undir eru hafi það eins gott og hægt er undir þessum ömur­legu kring­um­stæðum. Hugur minn er allt­ént hjá þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár