Seðlabankastjóri segir að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum

Ásgeir Jónsson er mjög ósáttur með það að Samherji hafi kært fimm starfs­menn bank­ans og skilur ekki af hverju mál­inu sé ekki vísað frá. Hann segir að pen­inga­stefna Seðla­banka Íslands sé vel­ferð­ar­stefna.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum og það er meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá.“ Þetta segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri í við­tali við Stundina sem kom út í dag.

Þar segir hann að sú pen­inga­stefna sem Seðla­banki Íslands reki sé vel­ferð­ar­stefna og mark­mið hennar sé að tryggja öryggi fyrir venju­legt fólk, ekki sér­hags­muna­að­ila. Stöð­ug­leiki í gengi, sem næst með inn­gripum bank­ans á gjald­eyr­is­markað, sé þar lyk­il­breyta. „Góð pen­inga­stefna skiptir þá tekju­lægstu mestu máli; þeir tapa mestu á verð­bólgu­skoti eða ein­hverri slíkri koll­steypu eða umsnún­ingi. Þetta skiptir mig mjög miklu máli. Ég lít á þetta sem vel­ferð­ar­stefnu. Ég vil tryggja lága verð­bólgu og lága vexti. Þetta eru grund­vall­ar­at­riði fyrir góð lífs­kjör á Íslandi.[...]Við erum lítil þjóð, Ísland, en ef við sýnum sam­stöðu og sam­fé­lags­lega ábyrgð þá getum við gert ansi margt.“

Ásgeir, sem starf­aði hjá Kaup­þingi fyrir banka­hrun, segir í við­tal­inu að það sé alveg skýrt að á meðan að hann gegnir starfi seðla­banka­stjóra þá fái fjár­mála­kerfið aldrei að fara í þá átt aftur sem það fór þá. „Að við séum að sjá að stjórn lands­ins sé komin í hend­urnar á ein­hverjum svona mógúlum.“ Á meðal þess sem hann kallar eftir er aukn­ing á heim­ildum fyrir fjár­mála­eft­ir­litið til að sinna eft­ir­liti með fjár­mála­kerf­inu. Það þurfi að vera miklu harð­ara.

Mjög ósáttur við aðfarir Samherja að starfsmönnum

Í við­tal­inu fjallar Ásgeir einnig um aðfarir Samherja gagn­vart fimm starfs­mönnum Seðla­banka Íslands, en fyr­ir­tækið kærði starfs­menn­ina fimm, þar á meðal Má Guð­munds­son fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra, til lög­reglu vorið 2019 eftir að Seðla­bank­inn hafn­aði því að greiða Samherja bætur vegna hins svo­kall­aða Seðla­banka­máls. Það mál hefur til skoð­unar hjá lög­reglu­stjór­anum á Vest­fjörðum.

[links]Ásgeir seg­ist ekki skilja „hvern and­skot­ann þessi lög­reglu­stjóri þarf að rann­saka og af hverju þessu er ekki bara vísað frá. Ég ótt­ast það að mörgu leyti, í svona eft­ir­lits­stofnun eins og Seðla­bank­inn er, að við lendum í því að við verðum hund­elt per­sónu­lega eins og farið var á eftir þessu starfs­fólki.“

Greint var frá því opin­ber­lega eftir að við­talið við Ásgeir birt­ist að kæru Samherja til lög­reglu hefði verið vísað frá í mars, en að Samherji hefði kært þá nið­ur­stöðu til rík­is­sak­sókn­ara.

Ásgeir segir í við­tal­inu að það sé ótækt að einka­fyr­ir­tæki eins og alþjóð­legi útgerð­ar­ris­inn Samherji geti ráð­ist per­sónu­lega að ríkis- og emb­ætt­is­mönnum með þeim hætti sem hann telur að hafi átt sér stað. „Þetta starfs­fólk var kært fyrir eitt­hvað sem við vitum ekki enn þá hvað. Þetta er ákveð­inn vandi; lög­gjaf­inn hefur ekki enn veitt okkur vernd fyrir svona ásókn. Seðla­bank­inn mun að sjálf­sögðu standa straum af máls­kostn­aði vegna þess­ara mála. En ég er mjög ósáttur við þetta, að þessar kærur hafi ekki verið afgreiddar og það hafi ekki verið gengið frá þessu. Og ég er mjög ósáttur við þennan anga af þessu Sam­herj­a­máli: Að farið hafi verið svona per­sónu­lega á eftir þessu fólki.[...]Eitt er að fara gegn stofn­un­inni, það er hægt að berja á þess­ari stofnun eða mér sem fram­kvæmda­stjóra hennar. En ég er mjög ósáttur við að farið sé á eftir ein­staka starfs­mönnum með þessum hætti. Það má alveg berja á þess­ari stofnun, hún er virki, en það má ekki gera þetta svona per­sónu­lega gegn fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár