Stefán Eiríksson: Helgi Seljan hefur búið við „fordæmalausar árásir“ af hálfu Samherja

Útvarps­stjóri hefur kallað eftir því að full­trúar starfs­fólks RÚV verði til­nefndir í hóp til að end­ur­skoða siða­reglur fyr­ir­tæk­is­ins. Hann segir starfs­fólk RÚV hafa sett gild­andi siða­reglur.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Stefán Eiríks­son, útvarps­stjóri RÚV, hefur óskað eftir því við stjórn Félags frétta­manna og stjórn Starfs­manna­sam­taka Ríkisútvarps­ins að til­nefna full­trúa starfsfólks í hóp sem hefur það hlut­verk að ljúka end­ur­skoðun á siða­reglum RÚV. Nauð­syn­legt sé að upp­færa regl­urnar. Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem hann sendi á starfs­fólk RÚV fyrr í dag.

Tölvu­póst­ur­inn var sendur í kjöl­far þess að stjórn RÚV hafn­aði því í gær að verða við kröfum lög­manns Samherja um að hlut­ast til um að blaða­mað­ur­inn Helgi Seljan, sem starfa fyrir frétta­skýr­inga­þát­inn Kveik, verði áminntur og gert að hætta að fjalla um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins. Sú krafa var sett fram í kjöl­far þess að fjögur ummæli sem Helgi lét falla á sam­fé­lags­miðlum voru úrskurðuð sem alvar­legt brot á siða­reglum RÚV af siða­nefnd. Sama nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að tíu aðrir starfs­menn RÚV sem kærðir voru til hennar hefðu ekki brotið gegn siða­reglum eða kærum gegn þeim vísað frá. Sömu sögu er að segja varð­andi flest þeirra ummæla sem Helgi hafði látið falla á sam­fé­lags­miðlum og lög­maður Samherja kærði.

[adspot]Stefán segir í póst­inum að nið­ur­staða stjórnar RÚV sé skýr og mik­il­væg yfir­lýs­ing. Ekkert hefði komið fram um það í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar að í ummælum Helga hefði falist brot í starfi í skiln­ingi laga og því var skýrt tekið fram í yfirlýsingu Stefáns og Heiðars Arnar Sig­ur­finns­sonar, vara­f­rétta­stjóra frétta­stofu RÚV sem birt var á föstu­dag, að nið­ur­staðan hefði ekki áhrif á störf hans hjá RÚV. „Í því sam­hengi er mik­il­vægt að hafa í huga að við­kom­andi starfs­maður hefur þurft að búa við for­dæma­lausar árásir á sig og sín störf af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins, í tengslum við frétta­flutn­ing af fram­ferði þess á und­anförnum árum. RÚV hefur gert sitt til þess að styðja við bakið á honum vegna þessa, eins og sjá má í fram­an­greindri yfirlýsingu sem og yfirlýsingu minni og frétta­stjóra frá 11. ágúst sl. þar sem aðför fyr­ir­tæk­is­ins að honum, með til­hæfu­lausum ásökunum og her­ferð gegn mann­orði hans og æru, var for­dæmd.“

Mikilvægt að uppfæra reglurnar

Gagnrýnt hefur verið að umræddar siða­reglur, sem tóku gildi 2016, séu sagðar samdar af starfs­mönnum RÚV. Fulltrúi frétta­manna í starfs­hópi sem hafði það verk­efni að vinna að und­ir­bún­ingi regln­anna, Jóhann Hlíðar Harð­ar­son, sagði í umræðum á Facebook um liðna helgi að regl­urnar væru ekki verk hóps­ins. „Höf­und­anna þarf að leita ann­ars stað­ar.“

Stefán hafnar þess­ari skýr­ingu í tölvu­póst­inum í dag og segir vinnu­hóp starfsfólks RÚV hafa unnið drög að regl­unum og að full­trúar allra miðla innan fyr­ir­tæk­is­ins hafi skipað þann hóp. „Í þeirri vinnu var horft til erlendra siða­reglna og leitað sérfræði­legrar ráðgjafar hér inn­an­lands. Drög að regl­unum voru kynnt starfsfólki (fundur og póstur í nóvem­ber 2015) og tekið var við og unnið úr ábend­ingum og tillögum að breyt­ingum sem bárust þá og í kjölfarið. Hópur­inn skil­aði í fram­hald­inu af sér tillögu að reglum (febrúar 2016) sem eru þær sömu og við búum við í dag, engar breyt­ingar voru gerðar á þeim texta eftir að hópur­inn skil­aði þeim af sér. Regl­urnar voru settar að loknu þessu ferli á sérstökum fundi (mars 2016) og eru settar af starfsfólki Ríkisútvarps­ins eins og þar er skýrt tekið fram.“

[links]Regl­urnar hafi hins vegar verið gagn­rýndar alla tíð síðan og sér­stak­lega til­tekið ákvæði þeirra sem talið er að með of for­taks­lausum hætti leggi bann við því að starfsfólk í fréttum og dag­skrárgerð taki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild þjóðfélagsmál.

Stefán segir í tölvu­póst­inum að skýrt sé í allri fram­kvæmd hjá RÚV við fréttir og dag­skrárgerð að frétta­menn og dag­skrárgerð­arfólk skuli gæta hlut­lægni og sann­girni í störfum sínum og taki ekki efn­is­lega afstöðu til mála sem þeir fjalla um. „Á því bygg­ist m.a. það traust sem til okkar mælist, og ágætt að hafa það í huga að það hefur aldrei mælst hærra heldur en í síðustu mæl­ingu sem fram­kvæmd var sl. haust. Á sama tíma getum við ekki haft í okkar reglum ákvæði sem veldur vand­kvæðum við túlkun og er að mati þeirra sem best til þekkja of for­taks­laust og/eða óljóst. Yfir þetta er því mik­il­vægt að fara og upp­færa regl­urnar, líkt og við gerðum nýverið í fram­an­greindum vinnu­reglum um fréttir og dag­skrárefni tengt þeim.“

Fréttastjóri segir Samherja hafa beitt Helga ofbeldi

Fyrr í dag sendi Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, frá sér yfir­lýs­ingu vegna erindis Samherja til stjórnar RÚV. Þar sagði að afstaða stjórn­enda RÚV í mál­inu mót­ist fyrst og síð­ast af því að frétta­flutn­ingur Kveiks og frétta­stof­unnar var ekki til umfjöll­unar hjá nefnd­inni frekar en störf Helga. Sú umfjöllun standi að öllu leyti. „Hvort sem menn telja ummæli Helga Seljan á sam­fé­lags­miðlun við­eig­andi eða ekki er frá­leitt að slíta þau úr sam­hengi við þá aðför eða her­ferð sem full­trúar Samherja hafa skipu­lagt gegn frétta- og blaða­mönnum sem fjallað hafa um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins síð­ustu miss­eri. Aðför sem hefur þann eina til­gang að kæfa gagn­rýna umræðu og koma í veg fyrir að frétta­menn geti sinnt starfi sínu. Að skjóta sendi­boð­ann svo upp­lýs­ingar skili sér ekki til almenn­ings.“

Rakel segir að í per­sónu­legum árásum stór­fyr­ir­tækja gegn ein­stak­lingum felist ofbeldi sem ekki verði við unað. „Það er ógern­ingur að slíta þau ummæli Helga, sem nefndin taldi brot­leg, úr sam­hengi við þessa aðför.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár