Stjórn Félags fréttamanna lýsir vonbrigðum sínum með niðurstöðu siðanefndar RÚV og hefur áhyggjur af því hvaða afleiðingar niðurstaðan getur haft fyrir gagnrýna fjölmiðlun. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið samþykkti fyrr í dag.
„Upp er komin sú staða sem margir vöruðu við og óttuðust þegar siðareglur RÚV voru settar. Ákvæði þeirra um bann við tjáningu á samfélagsmiðlum er notað til að hefta tjáningarfrelsi fréttamanna og í tilraunum til að þagga niður í fréttamönnum og umfjöllun þeirra. Fréttamenn geta illa setið undir því að siðareglur RÚV séu notaðar til að kæla umfjöllun þeirra,“ segir í ályktuninni og kallað er eftir því að siðareglurnar verði endurskoðaðar. [links]
Í ályktun félagsins eru siðareglurnar sagðar hafa verið umdeildar frá upphafi og að fjölmargir hafi talið að með ákvæði um samfélagsmiðla væri brotið gegn tjáningarfrelsi starfsmanna. „Einnig hefur verið bent á að hægt væri að misnota siðareglurnar til að reyna að koma höggi á starfsmenn. Hvort tveggja hefur nú sannast,“ segir þar enn fremur.
Stjórn Félags fréttamanna lýsir auk þess undrun sinni á niðurstöðu siðanefndar að ein ummælin sem feli í sér alvarlegt brot á siðareglum séu ummæli sem beinast ekki að stjórnendum Samherja, kærendum í málinu, heldur að fyrirtækinu Eldum rétt. „Sem fyrr segir tiltók lögmaður kæranda tugi ummæla á annars tugs starfsmanna í kæru sinni. Slíkt er þekkt í meiðyrðamálum þar sem stefnt er vegna fjölda ummæla í von um að einhver verði metin brotleg. Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siðanefnd.“
Niðurstaða siðanefndar hefur ekki áhrif á störf Helga
Siðanefnd RÚV birti í gær niðurstöðu sína í kærumáli Samherja gegn ellefu starfsmönnum RÚV vegna ummæla sem þeir létu falla á samfélagsmiðlum. Í niðurstöðunni var málatilbúnaði gegn tíu starfsmönnum RÚV vísað frá eða ummæli þeirra ekki talin brot á siðareglum RÚV. Einn starfsmaður, Helgi Seljan, var talinn hafa gerst brotlegur við siðareglur með alvarlegum hætti vegna nokkurra ummæla sem hann lét falla á samfélagsmiðlum. Önnur ummæli hans sem kærð voru voru það hins vegar ekki.
Í yfirlýsingu sem birt er á vef RÚV er tekið fram að niðurstaðan myndi ekki hafa áhrif á störf Helga. Þar segir einnig að fréttastofa RÚV standi við allan fréttaflutning af málefnum Samherja og muni halda áfram að fjalla um fyrirtækið eins og tilefni er til.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir