Niðurstaða siðanefndar RÚV hefur ekki áhrif á störf Helga Seljan

Frétta­stofa RÚV stendur við allan frétta­flutn­ing af mál­efnum Samherja. Nið­ur­staða siða­nefndar RÚV vegna kæru fyr­ir­tæk­is­ins á hendur ell­efu starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins er sú að tíu þeirra hafi ekki brotið siða­reglur.

Helgi Seljan
Helgi Seljan Mynd: Kveikur

Frétta­stofa RÚV stendur við allan frétta­flutn­ing af mál­efnum Samherja og mun halda áfram að fjalla um fyr­ir­tækið eins og til­efni er til. Siða­nefnd RÚV birti fyrr í dag nið­ur­stöðu sína í kæru­máli Samherja gegn ell­efu starfs­mönnum RÚV vegna ummæla sem þeir létu falla á sam­fé­lags­miðlum.

Í nið­ur­stöð­unni var mála­til­bún­aði gegn tíu starfs­mönnum RÚV vísað frá eða ummæli þeirra ekki talin brot á siða­reglum RÚV. Einn starfs­maður, Helgi Seljan, var tal­inn hafa gerst brot­legur við siða­reglur með alvar­legum hætti vegna nokk­urra ummæla sem hann lét falla á sam­fé­lags­miðlum. Önnur ummæli hans sem kærð voru voru það hins vegar ekki.

[adspot]Í yfir­lýs­ingu sem birt hefur verið á vef RÚV segir að nið­ur­staða nefnd­ar­innar sé skýr og ótví­ræð varð­andi tíu af ell­efu starfs­mönnum RÚV. Þar sé kærum ýmist vísað frá nefnd­inni eða nið­ur­staðan er að ummælin telj­ist ekki brot á siða­reglum RÚV. „Að mati siða­nefnd­ar­innar hefur einn starfs­maður, Helgi Seljan frétta­maður, brotið siða­reglur RÚV með nánar til­greindum ummælum á sam­fé­lags­miðlum. Samkvæmt 9. gr. reglna um siða­nefnd Rík­is­út­varps­ins segir að ef nið­ur­staða nefnd­ar­innar bendi til þess að um sé að ræða brot í starfi í skiln­ingi laga skuli nefndin vekja athygli útvarps­stjóra á því. Ekkert kemur fram í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar um að það eigi við í umræddu til­viki. Nið­ur­staðan hefur því ekki áhrif á störf Helga Seljan hjá RÚV.“

[links]Í yfir­lýs­ing­unni er tekið fram að kærur Samherja til siða­nefndar RÚV snú­ist ekki um hvað er satt og rétt í frétta­flutn­ingi RÚV um Samherja heldur hvort skrif frétta­manna á sam­fé­lags­miðlum séu smekk­leg eða ekki. „Siða­nefndin fjall­aði ekki um fréttir eða frétta­skýr­ingar RÚV, efni þeirra eða vinnslu. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar felur ekki í sér neina afstöðu til frétt­anna. Frétta­stofa RÚV stendur við allan frétta­flutn­ing af mál­efnum Samherja og mun halda áfram að fjalla um fyr­ir­tækið eins og til­efni er til. Úrskurður nefnd­ar­innar er ítar­lega rök­studdur. Yfir hann verður farið nánar af hálfu stjórn­enda RÚV og frétta­stofu eins og eðli­legt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár