Nokkur ummæli Helga Seljan á samfélagsmiðlum brutu gegn siðareglum RÚV

Siða­nefnd RÚV hefur kom­ist að nið­ur­stöðu í kæru­máli þar sem Samherji taldi að ummæli alls ell­efu starfs­manna fjöl­mið­ils­ins brytu gegn siða­reglum hans. Þorra mála­til­bún­að­ar­ins er vísað frá eða ummælin sem um ræðir ekki talin brot á reglum.

Siða­nefnd RÚV hefur vísað frá hluta af kæru Samherja vegna ummæla ell­efu frétta- og dag­skrár­gerð­ar­manna RÚV og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þorri ann­arra ummæla sem hóp­ur­inn lét falla á sam­fé­lags­miðlum sé ekki brot á siða­reglum fyr­ir­tæk­is­ins. Kæran til siða­nefndar byggði á reglu í siða­reglum RÚV sem er svohljóð­andi: „Starfs­fólk, sem sinnir umfjöllun um frétt­ir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð tekur ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni eða umdeild mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, þ. á m. á sam­fé­lags­miðl­u­m.“

Frétta- og dag­skrár­gerð­ar­menn­irnir sem um ræðir eru Aðal­steinn Kjart­ans­son, Freyr Gígja Gunn­ars­son, Helgi Selj­an, Lára Ómars­dótt­ir, Rakel Þor­bergs­dótt­ir, Sig­mar Guð­munds­son, Snærós Sindra­dótt­ir, Stígur Helga­son, Sunna Val­gerð­ar­dótt­ir, Þóra Arn­órs­dóttir og Tryggvi Aðal­björns­son Stór hluti við­bragða þeirra var við mynd­bandi sem Samherji birti í ágúst 2020 og beindi spjótum sínum sér­stak­lega að Helga Seljan einum stjórn­enda frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks.

Siða­nefndin kemst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að nokkur ummæli Helga Seljan, sem beinst hafi gegn fyr­ir­svars­mönnum Samherja per­sónu­lega, og varða mál­efni sem séu alls ótengd Kveiks­þætti um fyr­ir­tækið sem sýndur var í nóv­em­ber 2019, séu alvar­legt brot á siða­reglum. Í nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að ummælin séu „á köflum í formi sam­tals, þar sem talað er beint, og stundum niður til for­svars­manna kærenda eða eru sett fram í aug­ljósri hæðni.“

Nið­ur­staða siða­nefndar um brot á siða­reglum er end­an­leg og verður henni ekki áfrýjað. Samkvæmt siða­regl­unum á nefndin að vekja athygli útvarps­stjóra á því ef hún telur nið­ur­stöð­una benda til þess að um sé að ræða brot í starfi. Það er ekki gert í þessu til­felli.

Þau ummæli sem Helgi lét falla, og eru talin brjóta í bága við siða­reglur, eru eft­ir­far­andi:

Brotin talin alvarleg

Í nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar segir að telja verði að með þessum ummælum sínum hafi Helgi gerst hlut­drægur og gengið lengra en það svig­rúm sem hann hafi ann­ars til þess að deila fréttum og fylgja þeim eftir með gagn­rýnum spurn­ingum eða ummælum, sam­bæri­legt þeim sem hann myndi við­hafa sem frétta­maður, jafn­vel þó slíkt væri gert í eigin nafni. „Því er það mat siða­nefnd­ar­innar að í ofan­greindum ummælum felist skýr og per­sónu­leg afstaða í mál­efni kær­anda sem 4. mgr. 3. gr. siða­regln­anna er ætlað að taka til, og því um að ræða brot á grein­inni. Hvað varðar alvar­leika brots Helga Seljan, verður að taka til­lit til þess að þessum ákvæðum siða­regln­anna hefur ekki verið beitt fyrr, sem og að ekki virð­ast liggja fyrir skýrar leið­bein­ingar frá RÚV um hvernig frétta­menn eigi að haga tján­ingu sinni á sam­fé­lags­miðlum. Á móti kemur að hér er um að ræða ítrekuð til­vik yfir langan tíma. Í því ljósi telur siða­nefndin að brot Helga sé alvar­legt, á mæli­kvarða 7. gr. starfs­reglna siða­nefnd­ar­innar (ámæl­is­vert, alvar­legt eða mjög alvar­legt).“

Þorra vísað frá

Kæra Samherja, sem var lögð fram í lok ágúst í fyrra, var vegna þátt­töku starfs­mann­anna ell­efu í þjóð­fé­lags­um­ræðu um Samherja á sam­fé­lags­miðlum. Í færslum þeim, sem starfs­menn­irnir birtu á sam­fé­lags­miðlum og fjallað er um í kærunni, hafi þeir tekið afstöðu í umræðu um mál­efni Sam­herj­a, að mati lög­manns fyr­ir­tæk­is­ins.

„Er þar einkum um að ræða mál vegna ásak­ana sem settar voru fram vegna starf­sem­innar í Namibíu og hið svo­kall­aða Seðla­banka­mál en einnig ýmis önnur mál sem tengj­ast Sam­herja með beinum og óbeinum hætti. Má þar nefna eign­ar­hald fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og eign­ar­hald á hluta­bréfum í Eim­skip.

[adspot]Ljóst má vera að með ummælum sínum hafa umræddir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins gerst brot­legir við siða­regl­urn­ar. Þá virð­ist sem um sé að ræða sam­an­tekin ráð þar sem margar þeirra færslna, sem fjallað er um í kærunni, voru birtar á sam­fé­lags­miðlum því sem næst sam­tím­is. Gerir það brotin enn alvar­legri. Í kærunni er þess kraf­ist að horft verði sér­stak­lega til þess að sumir frétta­mann­anna brjóta siða­regl­urnar ítrek­að,“ sagði á vef Sam­herj­a þegar til­kynnt var um kæruna.

Þorra mála­til­bún­aðar Samherja er vísað frá eða kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ummælin sem um ræðir séu ekki dæmi um skýra per­sónu­lega afstöðu við­kom­andi starfs­manns sem bryti í bága við siða­reglur RÚV. Það á við um öll ummæli tíu frétta- og dag­skrár­gerð­ar­manna og flest ummæli Helga Seljan sem kærð voru. Í nið­ur­stöðu sinni segir siða­nefndin, um þau ummæli Helga sem ekki voru talin brot­leg við siða­reglur, að ummælin væru oft í „spurn­ar­formi, eins konar eft­ir­fylgni á Kveiks­þátt­unum, oft gagn­rýnin og hafa ein­kenni rann­sókn­ar­blaða­mennsku“.

Í athuga­semdum Helga við kærunni sagði meðal ann­ars að hann teldi hana ekki snú­ast um hvort „það sem sagt eða skrifað hefur verið sé rétt eða rangt, heldur hvort kærði eða aðrir megi yfir­höfuð segja nokkuð það um fyr­ir­tækið, sem for­svars­mönnum þess kann mögu­lega að mis­líka að sé sagt. Krafan getur ekki með nokkru móti talist eðli­leg eða yfir­leitt tæk til umfjöll­unar í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.“

Hægt er að lesa úrskurð­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár