Stjórn RÚV segir Samherja að hún hafi ekkert með fréttaflutning að gera

Stjórn RÚV mun ekk­ert aðhaf­ast vegna kröfu Samherja um að Helgi Seljan sinni ekki frek­ari umfjöllun um fyr­ir­tækið og verði áminntur í starfi. Stjórnin bendir Samherja á að það sé ekki í hennar verka­hring.

Stjórn RÚV tók
Stjórn RÚV tók Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn RÚV hefur komið því á fram­færi við lög­mann á vegum Samherja að mál­efni ein­stakra starfs­manna RÚV séu ekki til úrlausnar á borði stjórnar RÚV. Stjórnin hlut­ist ekki til um frétta­flutn­ings eða dag­skrá fjöl­mið­ils­ins, t.d. með þvi að leggja mat á hvaða starfs­fólk sinni umfjöllun eða frétta­flutn­ingi um til­tekin mál­efni.

Þetta kemur fram í svari stjórn­ar­innar til Samherja, sem birt er á vef RÚV í dag, en málið var rætt á stjórn­ar­fundi í gær.

Samherji sendi stjórn RÚV erindi á mánu­dag þar sem þess var kraf­ist að RÚV myndi meina frétta­mann­inum Helga Seljan að fjalla um mál sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu eða koma að vinnslu efnis því tengdu. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið krafð­ist þess einnig að Helgi yrði áminntur í starfi.[links]

Stjórn RÚV segir að það sé í höndum dag­skrár­stjóra, frétta­stjóra sem og dag­skrár­gerð­ar­fólks og frétta­manna að fara með þau verk­efni, sem séu á ábyrgð útvarps­stjóra, sam­kvæmt lögum um Rík­is­út­varpið. Stjórn RÚV muni því ekki aðhaf­ast neitt frekar vegna erindis Samherja.

Í yfir­lýs­ingu frá frétta­stofu RÚV eftir að úrskurður siða­nefndar var kveð­inn upp sagði að nið­ur­staða hennar myndi ekki hafa nein áhrif á störf Helga Seljan.

Ellefu starfsmenn kærðir fyrir ummæli

Sam­herja kærði ell­efu starfs­menn RÚV í ágúst í fyrra vegna meintra brota á siða­reglum mið­ils­ins, sem kveða á um að frétta­fólk þess taki ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni eða umdeild mál í sam­fé­lag­inu.

Í síð­ustu viku komst svo siða­nefnd RÚV að því að fimm ummæli Helga á sam­fé­lags­miðlum um Sam­herja hefðu brotið gegn siða­regl­um. Siða­nefndin hefur síðan end­ur­skoðað þá afstöðu sína og dregið til baka þá nið­ur­stöðu að ein ummæl­in, sem sner­ust um fyr­ir­tækið Eldum Rétt en ekki Samherja, væru brot á siða­regl­um.

[adspot]

Þorra ummæl­anna var vísað frá eða kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þau brytu ekki í bága við siða­regl­ur, fyrir utan nokkur ummæli Helga. Nefndin flokkar þessi ummæli, sem eru færslur á Twitter og Face­book, sem alvar­leg brot á siða­reglum RÚV, en bætti þó við að hún teldi ekki að Helgi hafi gerst brot­legur í starfi með þeim.

Niðurstaða stjórnar í takt við væntingar Félags fréttamanna

­Stjórn Félags frétta­­manna lýsti von­brigðum sínum með nið­­ur­­stöðu siða­­nefndar RÚV í síð­ustu viku og sagð­ist hafa áhyggjur af því hvaða afleið­ingar nið­­ur­­staðan gæti haft fyrir gagn­rýna fjöl­mið­l­un. Stjórn félags­ins sendi stjórn RÚV einnig erindi þar sem fjallað var um kröfu Samherja varð­andi Helga og kom því á fram­færi að stjórn RÚV ætti að vísa erind­inu frá.

Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri frétta­skýr­ing­ar­þátt­ins Kveiks, sagði við Frétta­blaðið í gær að hún spyrði sig að því hvers vegna stjórn Rík­is­út­varps­ins væri yfir höfuð að fjalla um kröfur Samherja. Til þess hefði hún ekk­ert umboð og það væri ekki hluti af hennar starfi.

„Þannig að ég í­mynda mér og geri ekki ráð fyrir öðru en að þessu verði vísað frá og að það verði það sem verði sent til lög­manns Sam­herja. Stjórnin hefur ekk­ert með þetta erindi að gera,“ sagði Þóra við Frétta­blaðið í gær.

Það hefur nú komið á dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár