Eyþór segir ólíklegt að eignarhluturinn í Morgunblaðinu færist aftur til Samherja

Lán Samherja til félags í eigu Eyþórs Arnalds, sem veitt var til að kaupa hlut í Morg­un­blað­inu, er gjald­fallið. Eyþór segir að hann hafi ætlað sér að hagn­ast á við­skipt­unum og telur að umræða um þau letji fólk frá því að vilja eiga í fjöl­miðlum.

Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Laxdal Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Félag í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, sem heldur á 13,41 pró­sent hlut í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, er ógjald­fært og með nei­kvætt eigið fé. Félagið, sem heitir Ramses II, fékk selj­enda­lán frá félagi í eigu Samherja til að kaupa hlut sjáv­ar­út­vegs­ris­ans í útgáfu­fé­lag­inu árið 2017. Það lán var á gjald­daga í mars 2020 en hefur ekki verið greitt.

Í árs­reikn­ingi Ramses II, sem skuldar tæp­lega 383 millj­ónir króna, segir að eigið fé félags­ins sé nei­kvætt og að lán þess séu gjald­fallin. „Stjórn­endur vinna að end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins og gera ráð fyrir að geta staðið skil á skuld­bind­ingum félags­ins og er árs­reikn­ing­ur­inn settur fram með þeirri for­sendu. Óvenju­legar aðstæður hafa skap­ast vegna kór­ónu­veirunnar COVID-19. Óvissa er um hvaða áhrif þær munu hafa á félagið. Vegna þessa ríkir einnig ákveðin óvissa um rekstr­ar­hæfi félags­ins.“

Í sam­tali við Kjarnann segir Eyþór að honum þyki ólík­legt að eign­ar­hlut­ur­inn í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins fær­ist aftur til Samherja, í ljósi þess að selj­enda­lánið er gjald­fallið. Hlut­ur­inn sé til sölu, nú sem fyrr.

[adspot]Eyþór segir að stór hluti af fjár­mögnun á kaupum Ramses II á hlutnum í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins hafi verið lán frá Samherja. „Selj­enda­lán eru nátt­úr­lega algeng þegar óvissa er um verð­mæti þess sem keypt er. Selj­enda­lán eru til dæmis bara hjá Reykja­vík­ur­borg, sem lánar fyrir lóðum og jafn­vel fyrir sköttum upp á marga millj­arða og sumir hafa síðan tekið þessi lán og ekki getað borgað þau, fengið þau fram­lengd og hvað eina. Þetta er alveg algeng aðferð þegar um áhættu­fjár­fest­ingu að ræða.“

Eyþór segir það líka vera klass­íska spurn­ingu hverjir eigi að eiga fjöl­miðla. „Lengi vel var nú talað um að það væri gott að hafa fjöl­breytt eign­ar­hald á fjöl­miðlum en þessi umræða gerir það að verkum að það vill eng­inn eiga í fjöl­miðlum, þeir fá bara þessa nei­kvæðu ímynd.“

Segir spurningar um viðskiptin pólitíska taktík

Eyþór hefur verið gagn­rýndur af póli­tískum and­stæð­ingum fyrir að útskýra ekki með grein­ar­góðum hætti hvernig á því stendur að hann hafi eign­ast hlut Samherja í Árvakri án þess að greiða krónu fyrir.[links]

Borg­ar­full­trú­inn full­yrðir að þeir sem tali um að við­skiptin hafi verið per­sónu­leg gjöf frá Samherja til sín hafi rangt fyrir sér og segir einnig að því sé oft rang­lega haldið fram að hann hafi verið stjórn­mála­maður þegar félag hans eign­að­ist hlut­inn. Það hafi hann hins vegar ekki verið og svo hafi hann stigið til hliðar í stjórn Árvakurs um leið og hann fór í fram­boð.

„Enginn af þessum aðilum hefur sér ástæðu til að biðj­ast afsök­unar á að halda röngum hlutum fram. Þetta er ákveðin taktík, að halda áfram að tala um þetta mál í stað þess að tala um borg­ar­málin,“ segir Eyþór.

Ætlaði að hagnast

Eyþór seg­ist þetta ekki vera í fyrsta sinn sem hann eigi hlut í fjöl­miðli. „Ég átti fyrst í fjöl­miðli þegar ég var 11 ára, þá keypti ég hlut í Dag­blað­inu og vann líka í útvarp­inu sem krakki og hef alltaf haft áhuga á fjöl­miðlum. Ég vildi óska að það væru fleiri sem hefðu áhuga á fjöl­miðlum heldur en færri því þeir eiga mjög undir högg að sækja. Þeir eru ekki bara fréttir heldur líka umfjöllun um menn­ingu og annað og ég kannski von­aði á þessum tíma að rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla yrði betra, en það hefur ekki batnað, það hefur versnað.“

Aðspurður hvort að hann hefði vonað að fjár­fest­ingin í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins myndi skila honum hagn­aði, segir Eyþór svo vera. „Hún er hugsuð nátt­úr­lega sem slík, en rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur versnað fyrir kór­ónu­vírus­inn og er enn þyngra í dag.“

Eyþór seg­ist ekki muna nákvæm­lega hversu mik­ill áhugi hans hafi verið á því að kaupa hlut í Árvakri, þegar við­skiptin áttu sér stað. Greint var frá því að Eyþór hefði stigið inn sem kjöl­festu­fjár­festir í Árvakri í byrjun apríl árið 2017, en þá keypti hann 18,43 pró­sent hlut sem Samherji átti í gegn­um fé­lagið Katt­ar­nef ehf. og til við­bótar keypti hann 6,14 pró­sent hlut Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf. og 2,05 pró­sent hlut Vís­is hf. í útgáfu­fé­lag­inu, alls 26,62 pró­sent.

„Það er alla­vega ljóst að ein­hverjir hlut­hafar höfðu ekki áhuga á að fylgja félag­inu áfram og það hefur verið tölu­verð breyt­ing á hlut­hafa­hópnum og það voru ein­hverjir sem vildu ekki vera áfram í útgáf­unni. Fjöl­miðla­rekstur er lang­hlaup eða boð­hlaup, á ein­hverjum tíma­punkti hætta menn í því og aðrir taka við, tíma­bundið eða til langs tíma. Fjöl­miðla­rekstur hefur alla­vega versnað, við sjáum til dæmis bara Sýn, þar sem voru keyptir fjöl­miðlar og þetta er akkúrat á þessum árum.“

Skuldirnar gjaldféllu í mars 2020

Eign­ar­hlutur Ramses II í Þórsmörk var met­inn á 93,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og hafði þá lækkað um 28,3 millj­ónir króna á einu ári. Frá árs­lokum 2017, á tveimur árum, hefur virði eign­ar­hlutar Eyþórs í Árvakri rúm­lega helm­ing­ast.

Skuldir félags­ins eru 382,7 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ingnum kemur fram að skulda­bréfa­lán Ramses II, upp á 382,1 millj­ónir króna, hafi verið á gjald­daga í mars 2020.

Lánin voru veitt af félagi sem heitir Katt­ar­nef ehf., sem er í eigu Samherja. Katt­ar­nef veitti félagið Eyþórs selj­enda­lán árið 2017 til að kaupa hlut Samherja í Þórsmörk, móð­ur­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Því lagði Eyþór ekk­ert út fyrir þeim kaupum.

Katt­ar­nef hefur þegar fært niður virði láns­ins til Ramses II að öllu leyti. 

Botnlaust tap árum saman

Sam­stæðu Árvak­urs, sem sam­anstendur af útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, Lands­prenti og Póst­mið­stöð­inni, tap­aði 291 millj­ónum krónum á árinu 2019. Tap móð­ur­fé­lags Árvak­urs, sem er allt tap utan taps Póst­mið­stöðv­ar­inn­ar, móð­ur­fé­lags dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Póst­dreif­ing­ar, sem Árvakur keypti 51 pró­sent hlut í 2018, var 210 millj­ónir króna.

Á þeim ára­tug sem leið frá því að nýir eig­endur tóku yfir móð­ur­fé­lagið Þórs­mörk á árinu 2009, og fram til loka árs 2019, tap­aði félagið sam­tals um 2,5 millj­­örðum króna. Tap Árvak­­urs árið 2018 var 415 millj­­ónir króna og dróst því saman á milli ára.

Hlutafé ítrekað aukið

Hlutafé í Þórs­mörk ehf., félag­inu sem á útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, var aukið um 300 millj­ónir króna fyrr á þessu ári. Hækk­unin á hlutafé félags­ins, sem fór út 606,6 millj­ónum í 906,6 millj­ón­ir, var öll greidd með pen­ing­um. 

Hlutafé í Þórs­mörk var síð­ast aukið í byrjun árs 2019, og þá um 200 millj­ónir króna. Dótt­ur­fé­lag Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga (KS), Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­sent þeirra 200 millj­­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­­ónir króna af millj­­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­­aukn­ing­una.

Á sama tíma var sam­­­­­þykktum félags­­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­­féð um allt að 400 millj­­­­­ónir króna til við­­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir nú til árs­loka 2024.

Þessar aukn­ingar hafa þynnt út hlut Ramses á und­an­förnum árum.

Árvakur fékk 99,9 millj­ónir króna í síð­asta mán­uði þegar að rekstr­ar­stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla, til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru, var úthlutað. Um var að ræða fjórð­ung þeirrar upp­hæðar sem var úthlutað og hæsta ein­staka styrk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár