Segir Eyþór enn eiga eftir að koma hreint fram varðandi tengsl við Samherja

Borg­ar­full­trúi Pírata segir það á ábyrgð Sjálf­stæð­is­flokks­ins að odd­viti hans í borg­inni kom­ist upp með að koma ekki hreint fram um tengsl sín við Samherja. Odd­vit­inn segir skít­kast aldrei „mjög góða póli­tík“.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn.
Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn. Mynd: Bára Huld Beck

„Mér finnst áhuga­vert að heyra Eyþór [Arnalds] tala hérna um Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem stærsta flokk­inn og dásama hann mikið þegar að Eyþór hefur ennþá ekki komið hreint fram varð­andi tengsl sín við Samherja og af hverju hann þáði fé frá fyr­ir­tæki sem greiddi öðrum stjórn­mála­mönnum víða um heim fé,“ sagði Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs og full­trúi Pírata í borg­ar­stjórn, í umræðum í Silfrinu á RÚV í morgun. Þetta sagði hún í umræðu um nið­ur­stöður skoð­ana­kann­ana á fylgi flokka í borg­inni. Vísaði hún þar í kaup Eyþórs, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, á hlut félags í eigu Samherja í Morg­un­blað­inu sem og meintar mútu­greiðslur Samherja til stjórn­mála­manna í Namibíu sem nú eru til rann­sóknar.

„Það er svo­lítið magnað að fram­koma Samherja gagn­vart sam­fé­lag­inu gegn fjöl­miðlum og til dæmis Seðla­bank­anum, er óhugn­an­leg,“ hélt Sig­ur­borg áfram. „Það er á ábyrgð Sjálf­stæð­is­flokks­ins að odd­vit­inn skuli kom­ast upp með það að koma ekki hreint fram. Það sýnir okkur að það er ekki mikið sið­ferði í flokknum. Það er eng­inn staður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í því sam­fé­lagi sem við viljum búa í.“

[links]

Eyþór sagði að orð Sig­ur­borgar lýstu ákveð­inni „yfir­lýs­inga­gleði“ og „úti­lok­una­stefnu“. Hann sagði eign­ar­hlut sinn í Morg­un­blað­inu víða skráðan, „ekki bara hjá rík­is­skatt­stjóra, fjöl­miðla­nefnd og nátt­úr­lega í hags­muna­skrá borg­ar­innar og víðar. Þannig að þetta er bara gömul plata. Þegar það er óþægi­legt að tala mál­efna­lega þá fara menn oft í þennan ham. [...] Skítkast er aldrei mjög góð póli­tík. Ég vil nefna það en takk fyrir að draga okkur aftur niður,“ sagði Eyþór.

„Stað­reynd­irnar tala sínu máli,“ svar­aði Sig­ur­borg.

Stundin hefur greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, með kúlu­láni, sem var upp­haf­lega 225 millj­ónir króna, frá félagi í eigu Samherja. Þá hefur einnig komið fram í Stund­inni að Samherji hafi afskrifað stóran hluta láns­ins sem fyr­ir­tækið veitti Eyþóri fyrir kaup­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár