Félag Eyþórs sem á í Morgunblaðinu með neikvætt eigið fé upp á 239 milljónir

Félagið sem heldur utan um eign­ar­hald odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins skuldar 360,5 millj­ónir króna en metur einu eign sina á 121,5 millj­ónir króna.

Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Laxdal Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Ramses II ehf., félag í eigu Eyþórs Laxdal Arnalds odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík sem heldur á hlut hans í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, skuldar 239 millj­ónum krónum meira en það á.

Í nýbirtum árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að alls 20,5 pró­sent hlutur þess í Þórsmörk, eig­anda Árvakurs sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, hafi verið met­inn á 121,5 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Um er að ræða einu eign Ramses II. Sá hlutur var met­inn á 187,6 millj­ónir króna í lok árs 2017 og því lækk­aði virði hans um 66,1 milljón króna á síð­asta ári.

Félagið skuld­aði hins vegar 360,5 millj­ónir króna vegna kaupanna á einu eigni sinni. Sú skuld er til greiðslu á næsta ári, 2020, sam­kvæmt árs­reikn­ingnum.

Eigið fé Ramses II er því nei­kvætt um 239 millj­ónir króna. Frétta­blaðið greindi fyrst frá.

Stundin hefur greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með kúlu­láni sem var upp­haf­lega 325 milljón króna frá félagi í eigu Sam­herja, sem var selj­andi hlut­ar­ins. Þar hefur meðal ann­­­ars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upp­­­lýsa um hvernig hann hafi fjár­­­­­magnað kaupin á hlutnum og sagt að við­­­skiptin væru trún­­­að­­­ar­­­mál.

2,2 milljarða tap frá því að nýir eigendur tóku við

Árvak­ur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100, tap­aði 415 millj­ónum króna í fyrra.

Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­­­­rekstur á und­an­­­­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið um 2,2 millj­­­­­örðum króna miðað við ofan­­greinda útreikn­inga á tapi Árvak­­urs í fyrra. Tapið eykst umtals­vert á milli ára, en Árvakur tap­aði 284 millj­­ónum króna árið 2017.

Kjarn­inn greindi frá því í febr­­­úar síð­­­ast­liðnum að hlutafé í Þór­s­­­mörk, eig­anda Árvak­­­urs, hefði verið aukið um 200 millj­­­ónir króna þann 21. jan­úar 2019. Auk þess var sam­­­­þykktum félags­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­féð um allt að 400 millj­­­­ónir króna til við­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

[adspot]Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­sent þeirra 200 millj­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­ónir króna af millj­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­aukn­ing­una.

Alls tóku fimm skráðir hlut­hafar ekki þátt í hluta­fjár­­­aukn­ing­unni og minn­k­aði hlut­­­falls­­­leg eign þeirra sam­hliða henni. Á meðal þeirra var áður­nefnt Ramses II, í eigu Eyþórs.

Eign­­­ar­hlutur Ramses hefur skroppið saman úr 22,87 pró­­­sentum í 20,05 pró­­­sent.

Flestir minni eig­endur Þór­s­­­merkur eru tengdir sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækj­­­­um.

Færðu niður hluta­­féð um millj­­arð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­­lega 1,6 millj­­­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS um 324 millj­­­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­­­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­­­ónum króna. Annað þeirra er félagið Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

Í maí síð­­ast­liðnum var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­mörk um einn millj­­arð króna. Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­­aði hlutafé Þór­s­­merkur úr 1,6 millj­­arði króna í 606 millj­­ónir króna. Það þýðir að eig­endur félags­­ins hafa afskrifað millj­­arð af því fjár­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið.

Eign­­­ar­hald Þór­s­­­merk­ur, eig­anda Árvak­urs, er eft­ir­far­andi:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­­dal Arn­alds, 20,05 pró­­­sent
  • Íslenskar sjá­v­­­­ar­af­­­urðir ehf., ­forsv.m. Sig­­­ur­jón Rafns­­­son, 20,00 ­pró­­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­forsv.maður­ Guð­­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 ­pró­­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja hf., ­forsv.maður­ ­Stefán Frið­­­riks­­­son, 13,43 ­pró­­­sent
  • Legalis s­f., ­forsv.maður­ ­Sig­­­ur­­­björn Magn­ús­­­son, 12,37 ­pró­­­sent
  • Rammi hf., ­forsv.maður­ Ólafur Mart­eins­­­son, 6,14 ­pró­­­sent
  • Þingey ehf., ­forsv.maður­ Að­al­­­steinn Ing­­­ólfs­­­son, 3,59 ­pró­­­sent
  • Stál­­­skip ehf., ­forsv.maður­ Hall­­­dór Krist­jáns­­­son, 3,08 ­pró­­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­forsv.maður­ Ás­­­geir Bolli Krist­ins­­­son, 2,05 ­pró­­­sent
  • Fari ehf., ­forsv.maður­ Jón Pálma­­­son, 1,54 ­pró­­­sent
  • Hrað­fryst­i­­­húsið – Gunn­vör hf., ­forsv.maður­ Einar Valur Krist­jáns­­­son, 1,30 ­pró­­­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár