„Lágmarkskrafa að Eyþór Arnalds og Samherji geri hreint fyrir sínum dyrum“

Borg­ar­stjóri segir að birt­ing Sam­herj­a­skjal­anna sýni við­skipti Eyþór Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, við Samherja um hlut í Morg­un­blað­inu í nýju ljósi. Hann segir að það gangi ekki að enn sé ótal spurn­ingum ósvarað um þau við­skipti.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að það gangi ekki að ótal spurn­ingum sé ósvarað um við­skipti Samherja og Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­­stæð­is­­flokks í borg­­ar­­stjórn Reykja­vík­­­ur. „Það hlýtur að vera lág­marks­krafa að Eyþór Arnalds og Samherji geri hreint fyrir sínum dyrum,“ segir Dagur í Facebook-færslu í dag.

Dagur rekur í færsl­unni að í dag sé vika frá því að Sam­herj­a­skjölin voru birt þar sem sögð hafi verið skýr saga af „ömur­legum við­skipta­háttum og arðráni Samherja í Namibíu“. Hann segir að birt­ing Sam­herj­a­skjal­anna sýni meint við­skipti Eyþór Arnalds við Samherja um hlut í Morg­un­blað­inu í alveg nýju ljósi. „Ég segi meint því lang­flest er á huldu um þessa fjár­mála­gjörn­inga sem teygja sig alla leið í skatta­skjóls­fyr­ir­tæki Samherja á Kýpur þaðan sem greiðslur til stjórn­mála­manna og milli­liða í Namibíu komu,“ skrifar Dagur.

Hann ítrekar jafn­framt að þetta mál Eyþórs sé ekki nýtt mál í umræð­unni heldur í raun tveggja ára gam­alt. Á þeim tíma hafi svörin aftur á móti verið fá og afar mis­vísandi. Dagur bendir jafn­framt á að Eyþór hafi ekki séð ástæðu til þess að geta um eign­ar­hald sitt í Morg­un­blað­inu eða „marg­flókin“ við­skipti sín við Samherja í hags­muna­skrán­ingu kjör­inna full­trúa hjá borg­inni.

„Við megum heldur ekki gleyma því að fjöl­miðlar gegna lyk­il­hlut­verki í sam­fé­lag­inu og eru í raun hluti af lýð­ræð­is­kerf­inu. Þess vegna hefur verið gerð sú krafa að ekk­ert sé á huldu varð­andi eign­ar­hald á þeim,“ segir Dagur og bætir við að í þessu máli standi eftir ótal spurn­ingar.

Þar á meðal hver sé ástæða þess að Eyþór fari með hlut Samherja í Morg­un­blað­inu ef hann tók enga áhættu af við­skipt­unum, líkt og Eyþór hefur sagt. Dagur spyr jafn­framt hvort að Eyþór standi enn í skuld við Samherja vegna þessa mál og hvenær hann ætli sér að gera fulla grein fyrir tengslum sínum við útgerð­ar­fyr­ir­tækið.

„Eins og blasir við rekst hvað á annað horn í skýr­ingum sem settar hafa verið fram á við­skiptum Samherja og odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins á eign­ar­hlut í Morg­un­blað­inu. Og ótal spurn­ingum er ósvarað. Það gengur ekki. Það hlýtur að vera lág­marks­krafa að Eyþór Arnalds og Samherji geri hreint fyrir sínum dyrum,“ segir Dagur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár