Eyþór Arnalds orðinn kjölfestueigandi Morgunblaðsins

Eyþór Arnalds hefur keypt hlut Samherja, Síld­ar­vinnsl­unnar og Vísis í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Eyþór Arnalds á nú 26,6 prósent í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Eyþór Arnalds á nú 26,6 pró­sent í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Birgir Þór

Breyt­ing­ar hafa orðið á eign­ar­haldi í Þórs­mörk ehf., sem er eig­andi Árvak­urs hf., út­gef­anda Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og fleiri miðla. Sam­herji hef­ur selt all­an hlut sinn til Eyþórs Arn­alds.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu, og á mbl.is, í dag.

Sam­herji átti 18,43% hlut í gegn­um fé­lagið Katt­ar­nef ehf. og fer með þessu úr hlut­hafa­hópn­um. Að auki kaup­ir Eyþór 6,14% hlut Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf. og 2,05% hlut Vís­is hf., alls 26,62%, að því er segir í frétt Morg­un­blaðs­ins.

Sam­an­lagt á Eyþór Arnalds nú 26,6 pró­sent í Árvakri. Í til­kynn­ingu segir Eyþór að hann telji fram­tíð­ina í fjöl­miðlun fel­ast í sam­spili nýmiðl­unar og hefð­bund­innar útgáfu dag­blaða og rót­gró­inna miðla.

[adspot]

„Fjöl­miðlar og mik­il­vægi öfl­ugr­ar sjálf­stæðrar fjöl­miðlun­ar hafa lengi verið mér sér­stakt hugð­ar­efni. Mér er það því fagn­að­ar­efni að koma með þess­um hætti að Árvakri, út­gef­anda Morg­un­blaðs­ins, eins elsta dag­blaðs lands­ins sem gefið hef­ur verið óslitið út síðan 1913, og fleiri miðla. Ég tel fram­tíð­ina fel­ast í sam­spili hefð­bund­inna miðla á borð við dag­blöð og svo nýmiðlun­ar, svo sem á net­inu. Í haf­sjó mis­áreiðan­legra fregna sem bein­ast að fólki úr öll­um átt­um verður gildi traustra og ábyggi­legra fjöl­miðla skýr­ara og starf­semi þeirra mik­il­væg­ari upp­lýstri umræðu í lýð­ræðis­sam­fé­lagi. Með sína fjöl­breyttu út­gáfu­starf­semi er Árvak­ur í kjör­stöðu til að nýta styrk hvers og eins mið­ils, bæði til afþrey­ing­ar og miðlun­ar ábyggi­legra frétta og ít­ar­legra um­fjall­ana. Árvak­ur er út­gáfu­fé­lag með langa sögu og á fram­tíð­ina fyr­ir sér,“ segir Eyþór.

Samkvæmt lista fjöl­miðla­nefndar yfir hlut­hafa Árvakurs, er stærstu eig­endur félags­ins nú, Ísfélag Vest­manna­eyja, með 13,43 pró­sent hlut, og Hlynur A ehf., með 16,3 pró­sent hlut. Félögin eru bæði í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur að stærstum hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár