Siðanefnd RÚV segir Helga Seljan að það sé ekki hægt að áfrýja

Siða­nefnd RÚV seg­ist ekki hafa neinar for­sendur til þess að end­ur­upp­taka úrskurð sinn í máli frétta­manns­ins Helga Seljan. Úrskurðir nefnd­ar­innar séu end­an­legir og þeim verði ekki áfrýjað.

Helgi Seljan fréttamaður.
Helgi Seljan frétta­maður. Mynd: Kveikur

Siða­nefnd RÚV hefur tjáð frétta­mann­inum Helga Seljan að úrskurðir hennar séu end­an­legir og verði ekki áfrýjað. Þetta kemur fram í svar­bréfi sem siða­nefndin sendi í gær vegna end­ur­upp­töku­beiðni Helga, sem send var þann 10. apríl.

Í svari siða­nefnd­ar­innar segir að nefndin sé ekki skipuð lögum sam­kvæmt og sé ekki stjórn­vald í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga. Þannig sé nefndin ekki bundin af stjórn­sýslu­lögum, „þó hún hafi bent á að hún byggi á meg­in­reglum sem gilda í stjórnsýslunni, hvað varðar að upplýsa málið, and­mæli og jafn­ræði aðila í málsmeð­ferð­inni.“[links]

Eins og Kjarninn sagði frá á fimmtu­dag voru færð rök fyrir því í end­ur­upp­töku­beiðni Helga að úrskurð nefnd­ar­innar ætti að end­ur­upp­taka í heild sinni vegna mis­taka siða­nefnd­ar­innar, sem hefði metið fimm ummæli hans heild­stætt til að kom­ast að nið­ur­stöðu í mál­inu, þar af ein ummæli sem ekki fjöll­uðu um Samherja.

Siða­nefndin seg­ist hafa leið­rétt mis­tök sín og komið því á fram­færi við máls­að­ila að mis­tökin hefðu engin áhrif á nið­ur­stöðu máls­ins. Helgi hafi einnig verið beð­inn afsök­unar á mis­tök­unum í sér­stöku skrif­legu erindi.

Ekkert hafi komið fram sem dragi óhlutdrægni Sigrúnar í efa

Í end­ur­upp­töku­beiðni Helga voru einnig færð rök fyrir því að einn nefnd­ar­manna, Sigrún Stef­áns­dóttir, hefði ekki verið hæf til þess að kveða upp úrskurð­inn, vegna hags­muna­tengsla við Samherja. Siða­nefndin segir ekk­ert hafa komið fram í end­ur­upp­töku­beiðn­inni „sem gefur til kynna að hún hafi ekki verið hæf í skiln­ingi stjórnsýslu­laga til að kveða upp úrskurð­inn.“

„Afmarkað verk­efni Sigrúnar er varðar Vísinda­skóla unga fólks­ins, sem er viku­langt námskeið fyrir börn á aldr­inum 11-13 ára og er innan Háskólans á Aku­kreyri, lá fyrir og er greitt af Háskólanum á Akureyri, þó starf­semi skólans sé vissu­lega studd af 20-25 fyr­ir­tækum á Akureyri.

Seta hennar í stjórn fjölmið­ils­ins N4, und­an­farin 7 ár, sem sjálfstæður stjórnar­maður er öllum kunn. Hún er ekki eig­andi fjölmið­ils­ins né á fjölmið­ill­inn sérstakra og veru­legra hags­muna að gæta í málinu. Fjölmið­ill­inn er jafn­framt með skýrar reglur um rit­stjórnar­legt sjálfstæði og stjórn hans kemur að engu leyti að rit­stjórn og dag­legum störfum,“ segir í erindi siða­nefnd­ar­innar, sem telur ekk­ert hafa komið fram sem raski því mati að hún hafi verið hæf til að kveða upp úrskurð í mál­inu og ekk­ert komið fram sem dragi óhlut­drægni hennar með réttu í efa.

Bent á að viðurlög vegna úrskurðarins séu engin

Í svari siða­nefnd­ar­innar er einnig umfjöllun um hags­muni Helga af því að fá úrskurð­inn end­ur­upp­tek­inn. Siða­nefndin virð­ist ekki meta þá mikla, þar sem hún bendir á að í úrskurði siða­nefnd­ar­innar hafi ekki verið mælt fyrir um nein við­ur­lög.

[adspot]

„Útvarps­stjóri og yfir­stjórn RÚV hafa til­kynnt að af þeirra hálfu fylgi engin við­urlög í kjölfar úrskurðar nefnd­ar­innar og hann hafi engin áhrif á störf Helga Seljan hjá RÚV. Stjórn RÚV hefur jafn­framt lýst yfir að málið sé ekki á hennar valdsviði og hún muni ekki aðhaf­ast neitt í málinu,“ segir í svari siða­nefnd­ar­innar.

Í bréf­inu, sem Gunnar Þór Pét­urs­son und­ir­ritar fyrir hönd nefnd­ar­innar, segir að siða­nefnd telji sig hafa upp­fyllt allar skyldur sínar í mál­inu. Mat hennar sé að það séu engar for­sendur til að bregð­ast frekar við end­ur­upp­töku­beiðn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár