Helgi Seljan fer fram á endurupptöku siðanefndarúrskurðarins

Helgi Seljan hefur kraf­ist þess að úrskurður siða­nefndar RÚV í kæru­máli Samherja gegn honum verði end­ur­upp­tek­inn eða aft­ur­kall­aður, vegna mis­taka siða­nefnd­ar­innar sem ekki hafi verið unnið rétt úr og van­hæfis eins nefnd­ar­manna.

Helgi Seljan fer fram á að úrskurður siðanefndar RÚV frá 26. mars verði endurupptekinn í heild sinni.
Helgi Seljan fer fram á að úrskurður siða­nefndar RÚV frá 26. mars verði end­ur­upp­tek­inn í heild sinni. Mynd: Samsett mynd

Frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan hefur farið fram á að úrskurður siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins frá 26. mars, í kæru­máli Samherja gegn honum, verði end­ur­upp­tek­inn eða mögu­lega aft­ur­kall­aður.

Krafa Helga, sem send var á siða­nefnd­ina þann 10. apríl, byggir á því að mis­tök siða­nefnd­ar­innar, sem úrskurð­aði hann upp­haf­lega brot­legan á grund­velli alls fimm ummæla og þar af einna sem alls ekki voru látin falla um Samherja, eigi að leiða til þess að úrskurð­ur­inn verði tek­inn upp að nýju.

Einnig hafi komið í ljós eftir að úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp að einn þriggja nefnd­ar­manna í siða­nefnd­inni, Sigrún Stef­áns­dóttir, hafi verið van­hæf til þess að fjalla um málið vegna hags­muna­tengsla við Samherja.

Heildstætt mat lagt á ummælin, líka þau brottfelldu

Í erindi Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar lög­manns Helga til siða­nefndar RÚV er bent á að siða­nefndin hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Helgi hefði gerst brot­legur með ummælum sínum, sér­stak­lega þegar þau væru saman tekin. Einnig hafi nefndin sagt að það þyrfti að skoða alvar­leika brots Helga í því ljósi að um væri að ræða ítrekuð til­vik yfir langan tíma.[links]

Af þessu sé ljóst að siða­nefndin hafi lagt mat á ummælin fimm heild­stætt.

Því hafi ekki verið nægi­legt að leið­rétta úrskurð­inn með því að fella ein ummæli sem Helgi lét falla 13. des­em­ber, um fyr­ir­tækið Eldum rétt en ekki Samherja, á brott og láta úrskurð­inn standa óbreyttan að öðru leyti, eins og gert var.

Hin brott­felldu ummæli hafi verið hluti af heild­ar­mati siða­nefnd­ar­innar og þar með for­senda fyrir þeirri nið­ur­stöðu að Helgi hefði gerst brot­legur við siða­reglur RÚV.

Af þessu leiði að end­ur­upp­taka þurfi úrskurð­inn og leggja mat á þau fjögur ummæli sem eftir standa, meðal ann­ars á þeim grunni hvort að rétt­ar­reglur um „orð­hefnd og að gjalda líkum líkt“ eigi við um tján­ingu Helga, en í erindi lög­manns­ins segir að fram­ganga Samherja, for­svars­manna hans og tengdra aðila í garð Helga hafi veitt honum „rúmt svig­rúm til að tjá sig og svara fyrir sig.“

Sigrún sögð hafa verið vanhæf til að taka sæti í nefndinni

Í end­ur­upp­töku­kröf­unni segir einnig að eftir að úrskurður siða­nefnd­ar­innar var kveð­inn upp hafi komið í ljós að Sigrún Stef­áns­dóttir, einn nefnd­ar­manna, hafi verið van­hæf til þess að taka sæti í siða­nefnd­inni og úrskurða í mál­inu vegna tengsla sinna við Samherja.

Nefndar eru tvær ástæður fyrir meintu van­hæfi Sigrúnar. Í fyrsta lagi hafi hún frá árinu 2014 starf­rækt Vís­inda­skóla unga fólks­ins við Háskól­ann á Akureyri og sé jafn­framt skóla­stjóri hans, sam­kvæmt vef­væði skól­ans. Á sömu heima­síðu komi fram að Samherji sé einn af styrkt­ar­að­ilum skól­ans sem Sigrún stýrir og starf­rækir.

Í öðru lagi sé Sigrún stjórn­ar­maður í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu N4 á Akureyri, sem sé að hluta til í óbeinni eigu Samherja í gegnum Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Vör og Síld­ar­vinnsl­una. Vísað er til greinar sem Sigrún skrif­aði í Kjarnann 3. apríl 2020, um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þar skrif­aði Sigrún meðal ann­ars að hver mán­aða­mót í rekstri N4 hefðu verið kvíð­væn­leg, vegna fjár­hags­stöðu mið­ils­ins.

[adspot]

Því er bætt við að það hafi því „eflaust komið sér vel fyrir rekstur N4“ að Samherji hafi keypt klukku­tíma sjón­varps­þátt hjá sjón­varps­stöð­inni um nýtt skip, Vilhelm Þor­steins­son EA 11, sem frum­sýndur var á N4 á annan í páskum.

Samherji birti til­kynn­ingu á vef sínum um þátt­inn þann 1. apríl og bent er á að það hafi verið fimm dögum eftir að siða­nefnd RÚV komst að þeirri nið­ur­stöðu að Helgi hefði brotið gegn siða­reglum með ummælum sínum um Samherja.

Af þessum ástæðum segir lög­maður Helga að taka beri kröfu um end­ur­upp­töku til greina. Eftir atvikum kunni þó að vera rétt að siða­nefndin aft­ur­kalli úrskurð­inn, enda sé hann ógild­an­legur vegna van­hæfis eins nefnd­ar­manns siða­nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár