Ríkisstjórnin vill lækka skattbyrði flestra en ekki hrófla við skattlagningu ofurtekna

Rík­is­stjórnin vill bæta við nýju lág­tekju­skatt­þrepi og breyta við­miði per­sónu­af­sláttar. „Ég skil ekki hvers vegna þau smyrja þess­ari örlitlu lækkun svona langa leið upp launa­stig­ann,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

Ríkisstjórnin vill lækka skattbyrði flestra en ekki hrófla við skattlagningu ofurtekna

Breyt­ing­arnar sem rík­is­stjórnin leggur til á tekju­skatts­kerf­inu þýða að skattar hjá þorra fólks sem til­heyrir efri milli­tekju­hópum og hátekju­hópum munu lækka um sömu fjár­hæð og skattar hjá þorra lág­tekju­fólks.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti til­lög­urnar á blaða­manna­fundi í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í dag og full­yrti að ef breyt­ing­arnar yrðu að veru­leika myndi skatt­byrði lág­tekju­fólks lækka um rúm tvö pró­sentu­stig. Þetta er einnig stað­hæft á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Samkvæmt talna­efni sem varpað var upp á blaða­manna­fund­inum er hins vegar ljóst að stór hluti lág­tekju­fólks mun ekki fá svo mikla lækkun á skatt­byrði sinni.

Rík­is­stjórnin leggur til að bætt verði við nýju skatt­þrepi með lægra skatt­hlut­falli neð­ar­lega í tekju­stig­anum. Skatt­byrði tekju­lægstu Íslend­inga verði alls lækkuð um rúm 2 pró­sentu­stig eða sem nemur 6760 krónum á mán­uði. Þá verði við­miði um þróun per­sónu­af­sláttar breytt til að stöðva skatt­skrið og samnýt­ing þrepa afnumin.

Fyr­ir­huguð skatta­lækkun mun ná hátt upp tekju­stig­ann. Svo virð­ist sem ekki standi vilji til þess að hrófla við skatt­lagn­ingu hæstu tekna. „Það er ekki verið að auka skatt­byrð­ina neins staðar. Þetta finnst mér afskap­lega mik­il­vægt,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son á blaða­manna­fund­inum. Þannig er áfram gert ráð fyrir að skatt­hlut­fall efsta þreps­ins verði um 46,24 pró­sent, lægra en gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Í kynn­ing­ar­efni á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins eru áhrif fyr­ir­hug­aðra skatta­lækk­ana sýnd. Veruleg skatta­lækkun kemur í hlut fólks sem er vel yfir með­al­tekjum, t.d. til barna­fjöl­skyldna þar sem for­eldrar hafa hátt í tvær millj­ónir í mán­að­ar­tekjur:

„Stjórn­völd hafa stefnt að því að minnka álögur og líta til jafn­aðar. Starfs­hópur hefur unnið til­lögur að breyt­ingum eftir þessum leið­ar­stefjum. Nið­ur­staðan af vinnu hóps­ins er að æski­legt sé að jöfn­unin grund­vall­ist meira á þrepum kerf­is­ins en per­sónu­af­slætti/skatt­leys­is­mörkum,“ segir í til­kynn­ingu á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Því er mælt með nýju þrepi sem lækkar skatt­hlut­fall sér­stak­lega fyrir þá sem eru í lægstu tekju­tí­und­unum. Fyrir þá sem eru með mán­aða­laun upp á 325 þús­und krónur þýðir þetta aukn­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna um 81 þús­und krónur.“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tjáir sig um til­lög­urnar í til­kynn­ingu á vef  stétt­ar­fé­lags­ins. „Ég skil ekki hvers vegna þau smyrja þess­ari örlitlu lækkun svona langa leið upp launa­stig­ann,“ segir hún. „Hvers vegna þau eyða þessu pínu­litla svig­rúmi, eins og þau kalla það, á laun sem duga vel fyrir fram­færslu, þannig að lækk­unin sem hver fær dugar engan veg­inn fyrir þann stóra fjölda sem er á lægstu launum?“ 

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefur fagnað til­lög­unum en full­trúar laun­þega­hreyf­ing­ar­innar tekið þeim fálega. „Við höfðum búist við ein­hverju í nánd við 20 þús­und á mán­uði“ segir Sólveig Anna. „Það hefði getað verið grund­völlur fyrir alvar­legu sam­tali.“ Fullyrt er á vef Eflingar að hug­myndir rík­is­stjórn­ar­innar snú­ist um skatta­lækkun um 6.760 krónur á mán­uði fyrir mán­að­ar­laun upp að 900.000 krónum. Aðgerð­irnar kæmu ekki til fram­kvæmda fyrr en á næsta ári.

Fram kom í kynn­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar að sam­kvæmt hinu nýja kerfi yrði skatt­hlut­fall fyrsta þreps 32,94 pró­sent. Per­sónu­af­sláttur yrði 56.477 krónur á mán­uði og þar með skatt­leys­is­mörk 159.174 krónur á mán­uði. 

Drífa Snædal

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, tjáir sig um málið á Facebook og skrifar:

Dagur von­brigða í dag þegar við fengum kynn­ingu á skatta­til­lögum stjórn­valda. 

1. Skatta­lækkun upp allan stig­ann (eng­inn að kalla eftir skatta­lækkun á hæstu tekju­hópana). 

2. Senni­lega fryst­ing per­sónu­af­sláttar í nokkur ár (raun­lækkun per­sónu­af­sláttar). 

3. Ekkert meira inn í barna­bóta- og hús­næð­is­kerfin en komið er (Fjármagn í barna­bætur hafa ekki náð raun­gildi árs­ins 2010). 

4. Enginn hátekju­skattur eða hækkun á auð­linda­gjöldum og fjár­magnstekju­skatti (Tekju­öflun engin). 

5. Skatta­lækkun á þá hópa sem enn ná ekki endum saman dugar varla fyrir einni ferð í Bónus og sú lækkun á að koma ein­hvern­tíman á næstu þremur árum.

Nið­ur­staða: Þetta verður ekki til að liðka fyrir kjara­samn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár