Stjórnmálastéttin velti tugmilljarða skattbyrði yfir á lágtekju- og millitekjufólk

Stjórn­mála­menn töl­uðu um skatta­lækk­anir og „minni álögur á heim­ilin“ um leið og skatt­byrði lág­tekju­fólks jókst meira en í nokkru vest­rænu OECD-ríki. Stefán Ólafsson og Indriði Þor­láks­son útskýra „stóru skatta­til­færsl­una“ í ítar­legri skýrslu fyrir Eflingu stétt­ar­fé­lag.

Stjórnmálastéttin velti tugmilljarða skattbyrði yfir á lágtekju- og millitekjufólk
Kynntu skýrsl­una

Íslend­ingar búa við flatasta tekju­skatts­kerfi Norð­ur­landa og skatt­leggja hátekju­fólk minna en nágranna­þjóð­irnar meðan lág­tekju­fólk á Íslandi býr við einna þyngstu skatt­byrð­ina sem þekk­ist í Evrópu. 

Þetta ástand er afleið­ing af póli­tískri stefnu­mótun und­an­far­inna ára­tuga, aðgerðum og aðgerða­leysi þeirra sem hafa farið með skatt­lagn­ingar- og fjár­veit­ing­ar­valdið á Íslandi.

Frá 1993 hefur tug­millj­arða skatt­byrði verið létt af hátekju­fólki og velt yfir á þá sem hafa minna milli hand­anna. Þróunin, hin stóra skatta­til­færsla, náði hámarki á árunum fyrir hrun, gekk að hluta til baka á kreppu­ár­unum en hefur haldið áfram með vax­andi þunga í upp­gangi und­an­far­inna ára þar sem raun­rýrnun per­sónu­af­sláttar og veik­ing tekju­til­færslu­kerfa hefur valdið þyngri skatt­byrði og haldið aftur af lífs­kjara­sókn lág­tekju- og milli­tekju­fólks.

Þetta er sú saga sem Stefán Ólafsson félags­fræði­pró­fessor og Indriði H. Þor­láks­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, segja í nýút­kominni skýrslu sinni fyrir Eflingu stétt­ar­fé­lag sem ber yfir­skrift­ina Sann­gjörn dreif­ing skatt­byrðar: Hvernig leið­rétta má stóru skatta­til­færsl­una án þess að veikja vel­ferð­ar­kerfið.  

Kynntu skýrsl­unaStefán Ólafsson og Indriði Þor­láks­son fjöll­uðu um stóru skatta­til­færsl­una og til­lögur sínar að skatt­kerf­is­breyt­ingum á fundi sem fram fór á Grand hót­eli.

Í skýrsl­unni er fjallað um orsakir og afleið­ingar skatta­til­færsl­unnar og lagðar fram til­lögur að skatt­kerf­is­breyt­ingum í sam­ræmi við sam­eig­in­lega afstöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem var mótuð á vett­vangi skatta- og atvinnu­mála­nefndar ASÍ undir for­ystu Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar.

12 milljarða tilfærsla á fjórum árum

Með stóru skatta­til­færsl­unni hefur skatt­byrði lág­tekju­fólks auk­ist meira á Íslandi heldur en í nokkru öðru vest­rænu OECD-ríki frá 2000 til 2017. Æ þyngri skatt­heimta af þeim sem höfðu minna milli hand­anna skap­aði svig­rúm til að létta byrðum af hátekju­fólki, fyr­ir­tækjum og fjár­magns­eig­endum. Þannig bjuggu Íslend­ingar um tíma við eitt flatasta og hægri­s­inn­að­asta skatt­kerfi þró­aðra ríkja.

Þetta var meðal ann­ars rétt­lætt á þann veg að svona mætti laða fjár­magn til lands­ins og draga úr skattsvikum, en eins og síðar varð ljóst héld­ust skatt­breyt­ingar fyr­ir­hrunsár­anna í hendur við stór­felld skattaund­an­skot og fjár­magns­flutn­inga í skattaparadísir. „Umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs [var] ein­stakt í heim­inum á þessum tíma,“ segir í skýrslu opin­bers starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga frá 2016. 

Eftir efna­hags­hrunið 2008 tók vinstri­st­jórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar við stjórn­ar­taumunum og inn­leiddi þrepa­skipt tekju­skatts­kerfi og auð­legð­ar­skatt, hækk­aði fjár­magnstekju­skatt­inn og inn­leiddi frí­tekju­mark vaxta­tekna til að verja lág­tekju­fólk fyrir áhrifum hans. Allt voru þetta skref í átt að skatt­kerfi sam­bæri­legra því sem er við lýði í nágranna­lönd­unum. 

Stóra skatta­til­færslan hélt áframÍ rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar var skatt­þrepum fækkað og skatt­byrði lág­tekju- og milli­tekju­fjöl­skyldna aukin.

Frá því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tók aftur við fjár­mála­ráðu­neyt­inu árið 2013 hefur skattapóli­tíkin færst í fyrra horf. Auð­legð­ar­skatt­ur­inn rann sitt skeið og skatt­þrepum var fækkað úr þremur í tvö. Mestu skiptir þó að efna­hags­upp­gang­inum sem hófst 2011 fylgdi gríð­ar­legt skatt­skrið þar sem skerð­ingar- og skatt­leys­is­mörk voru ekki látin fylgja hækkun launa. Með þessu jókst skatt­byrði allra tekju­hópa nema þeirra 20 pró­senta sem höfðu hæstu tekj­urnar. Þannig voru aðeins á fjórum árum, frá 2012 til 2016, 12 millj­arðar fluttir af þessum tekju­hæstu 20 pró­sentum yfir á tekju­lægri 80 pró­sent lands­manna. Með öðrum orðum: stóra skatta­til­færslan hélt áfram af fullum þunga. 

Til­færslan á skatt­byrð­inniÞessi mynd fangar vel stóru skatta­til­færsl­una og sýnir þá breyt­ingu sem varð á skatt­byrði tekju­hópa milli 1993 og 2015. Skatt­byrðin þyngd­ist hjá öllum nema hátekju­hóp­unum.

Snilldin við stóru skattatilfærsluna

Eins og Stefán Ólafsson og Indriði Þor­láks­son benda á hefur opin­ber þjón­usta farið vax­andi á Íslandi und­an­farna ára­tugi í takt við batn­andi efna­hag og auknar kröfur. Þá hefur lýð­fræði­leg þróun verið með þeim hætti að þeim fjölgar sem þurfa á opin­berri þjón­ustu að halda. 

Þetta kallar á þyngri skatt­byrði. Spurn­ingin er: Hvar lendir hún, hvaða hópar taka á sig þyngri byrðar? Formlega er það lög­gjaf­inn, með fjár­veit­ingar- og skatt­heimtu­valdið, sem svarar spurn­ing­unni, en þeir ein­stak­lingar sem ráða mestu um hvernig skatta- og bóta­kerfin þró­ast eru fjár­mála­ráð­herrar, for­sæt­is­ráð­herrar og odd­vitar þeirra stjórn­mála­flokka sem sitja í rík­is­stjórn hverju sinni, mót­aðir af póli­tískri sann­fær­ingu, stétt­ar­vit­und, frama­girni, hug­mynda­fræði og auð­vitað löng­un­inni til að vinna næstu kosn­ingar. 

Sam­an­tekt Stund­ar­innar.

Snilldin við stóru skatta­til­færsl­una er sú að hún átti sér stað smátt og smátt á löngum tíma, án þess að lýð­ræð­is­leg umræða færi fram um hana og án þess að nokkur stjórn­mála­flokkur hefði hana bein­línis yfir­lýsta á stefnu­skrá sinni. Stjórn­völd slógu við skolla­eyrum þegar Stefán Ólafsson benti á stað­reyndir um aukna skatt­byrði lág­tekju­fólks og tals­menn flat­ara skatt­kerfis beittu ýmsum með­ulum til að gera hann og nið­ur­stöður hans tor­tryggi­legar.

Stjórn­mála­menn töl­uðu um skatta­lækk­anir og „minni álögur á heim­ilin“ um leið og þeir lögðu grunn­inn að sam­fé­lagi, ýmist með aðgerðum sínum eða aðgerða­leysi, þar sem skatt­byrði lág­tekju­fólks er ein sú mesta í vest­rænum OECD-ríkjum. „Þessi aukn­ing á skatt­byrði lág­launa­fólks á Íslandi er ein­stök og sú stað­reynd að þetta gerð­ist án þess að upp­lýst væri um það að hálfu stjórn­valda er sér­stak­lega ámæl­is­verð í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ skrifa Stefán og Indriði. 

„Augljóst stílbrot á meginreglu skattafræðanna“

Skýrslu­höf­undar segja að skatta­til­færslan hafi verið mun meiri frá 1993 til 2007 en frá 1993 til 2015 – einkum vegna hruns­ins og aðgerða sem gripið var til í kjöl­far þess. Það breyti því ekki að til­færslan standi enn yfir. „Ætla má að um 17 til 18 millj­arðar séu nú árið 2018 lagðir auka­lega á þá sem eru með 300 þús­und krónur eða minna á mán­uði en var sam­kvæmt skatta­reglum áranna 1996 og fyrr. Þeir sem eru með 500 þús­und krónur eða minna greiða um 80 millj­örðum meira í dag en væri ef skatt­leys­is­mörkin hefðu fylgt launa­þró­un­inni frá 1996 til 2018,“ skrifa þeir. 

Eins og sést á mynd hér að ofan er Ísland eina ríkið á Norð­ur­lönd­unum sem ekki skatt­leggur tekju­hæstu tíund lands­manna meira en næst­tekju­hæstu tíund­ina. Þannig er til dæmis vel menntað milli­tekju­fólk sem til­heyrir næst­tekju­hæstu tíund­inni að jafn­aði skatt­lagt af meiri þunga heldur en auð­jöfrar úr tekju­tí­und­inni fyrir ofan. Þetta er, eins og skýrslu­höf­undar orða það, „aug­ljóst stíl­brot á þeirri meg­in­reglu skatta­fræð­anna að skatt­byrði auk­ist með auk­inni greiðslu­getu“ og skýrist einkum af því að allra tekju­hæstu Íslend­ing­arnir þéna að mestu fjár­magnstekjur.

Stefán og Indriði benda á að svo virð­ist sem fjár­magnstekjur hafi auk­ist umtals­vert umfram launa­tekjur á árunum 2016 og 2017. Það hafi bætt enn í skatta­til­færsl­una vegna þess að fjár­magnstekjur eru enn skatt­lagðar minna en atvinnu­tekjur og líf­eyr­is­tekjur. „Þetta hefur þannig skapað mikið órétt­læti í dreif­ingu skatt­byrð­ar­innar á Íslandi og rýrt svo um munar þann árangur sem átti að vera af kjara­samn­ing­unum 2015 til 2018.“

Sam­an­tekt Stund­ar­innar.

Fela fjármagn og eignir í félögum

Skýrslu­höf­undar segja að auk breyt­inga á reglum um álagn­ingu skatta og bætur hafi ýmsar aðrar skatta­reglur og aðgerðir stjórn­valda haft umtals­verð áhrif á dreif­ingu skatt­byrð­ar­innar.

„Með lögum um einka­hluta­fé­lög voru opn­aðar nýjar leiðir til skatta­legra hag­ræð­inga sem einkum nýt­ast þeim sem sinna fjár­málaum­svifum og eign­ar­haldi. Er nú svo komið að eign­ar­hald ein­stak­linga á fjár­munum öðrum en íbúð­ar­hús­næði og lausafé til dag­legra nota er að mestu falið í eign­ar­halds­fé­lögum. Skráning eigna er í nafni við­kom­andi félaga og tekjur af fjár­magn­inu sömu­leiðis og oftar en ekki eru upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur lítt eða ekki aðgengi­legar.

Þessum breyttu reglum um félög og þeim við­skipta­háttum sem þeim fylgdu var ekki fylgt eftir með nauð­syn­legum breyt­ingum á skatta­lögum sem hefur orðið þess vald­andi að miklir mögu­leikar eru fyrir skatta­legar hag­ræð­ingar af marg­vís­legum toga, sem m.a. sjást í nýlega birtum upp­lýs­ingum um skatta hátekju­fólks og athafna­manna.“

Í þessu sam­hengi vísa Stefán og Indriði meðal ann­ars í nýlega umfjöllun Stund­ar­innar um tekju­hæsta 0,1 pró­sentið á Íslandi. Eins og fram kom í umfjöll­un­inni fengu tekju­hæstu 330 Íslend­ing­arnir sam­tals 60 millj­arða í heild­ar­tekjur árið 2016 en alls 86 pró­sent tekn­anna voru fjár­magnstekjur og báru þannig aðeins 20 pró­senta skatt. 

Skýrslu­höf­undar benda á að sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem Stundin birti séu margir úr hópi hátekju­manna „með engar eða mjög lágar launa­tekjur og kom[i]st þannig hjá greiðslu almenns tekju­skatts og útsvars, eða þá að ríkið greiðir við­kom­andi sveit­ar­fé­lögum útsvarið með sköttum sem það inn­heimtir af öðrum“. 

Auðlindarentan skilar sér til fárra

Stefán og Indriði víkja líka að þeirri stað­reynd að ein­ungis lít­ill hluti auð­lind­arent­unnar á Íslandi, bæði af fisk­inum og orku­auð­lindum, rennur til rík­is­ins. Megnið skilar sér til útgerð­ar­eig­enda og erlendra stór­fyr­ir­tækja.

Þarna eru gríð­ar­leg verð­mæti í húfi. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Deloitte tók saman í fyrra hefur hagur útgerð­ar­fyr­ir­tækja lands­ins vænkast um 421,3 millj­arða króna frá 2010 til 2017 en á sama tíma­bili greiddu útgerð­ar­eig­endur sér meira en 80 millj­arða í arð. Að sögn skýrslu­höf­unda hafa til­raunir til að auka hlut rík­is­ins í auð­lind­arent­unni, svo sem með veiði­gjöldum og raf­orku­skatti, að miklu leyti verið brotnar á bak aftur af ráð­andi sér­hags­muna­öflum.

„Allt þetta hefur leitt til þess að aukin sam­neysla á síð­ustu ára­tugum hefur að veru­legu leyti verið borin uppi af hækkun skatta á fólk með lágar tekjur og miðl­ungs­tekjur á sama tíma og skattar á hátekju- og stór­eigna­fólk hafa verið lækk­aðir, bæði beint og með auknum mögu­leikum á skatta­legri hag­ræð­ingu. Þetta má m.a. sjá í því að skatt­byrði hátekju- og stór­eigna­fólks er nú umtals­vert minni hér á landi en hjá sam­bæri­legum hópum á hinum Norð­ur­lönd­unum og að skatt­byrði lág­tekju­fólks á Íslandi hefur auk­ist meira en í nokkru öðru vest­rænu OECD-ríki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár