Þéna 714-föld laun fiskvinnslustarfsmanns en greiða lægra hlutfall í skatt

Arð­greiðslur til eig­enda stóru útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna eru miklu hærri en veiði­gjöldin sem fyr­ir­tækin greiða til rík­is­sjóðs.

Þéna 714-föld laun fiskvinnslustarfsmanns en greiða lægra hlutfall í skatt
Fjórir millj­arðar Heild­ar­árs­tekjur fólks­ins sem átti stærstan hlut í tveimur kvóta­hæstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum voru um fjórir millj­arðar í fyrra.

Þeir fjórir ein­stak­lingar sem áttu stærstan hlut í Samherja og HB Granda, kvóta­hæstu útgerð­ar­fyr­ir­tækjum lands­ins, í fyrra þén­uðu sam­tals tæpa fjóra millj­arða í heild­ar­árs­tekjur. Fjár­hæðin sam­svarar 714-földum tekjum dæmi­gerðs fisk­vinnslu­starfs­manns sam­kvæmt launa­tölum frá Eflingu stétt­ar­fé­lagi. 

Kristján Loftsson þén­aði 1.423 millj­ónir króna í fyrra þegar hann var stjórn­ar­for­maður og einn af aðal­eig­endum HB Granda. Fisk­vinnslu­starfs­maður hjá fyr­ir­tæk­inu væri 254 ár að vinna sér inn slíkar tekjur. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar af aðal­eig­endum Samherja, var með 476 millj­óna tekjur á sama ári, eða sem nemur árs­tekjum 85 starfs­manna við fisk­vinnslu hjá fyr­ir­tæk­inu. 

For­sendur, skýr­ingar og heim­ildir: Sam­an­burð­ur­inn mið­ast við árið 2017 eftir því sem unnt er. Tekju­upp­lýs­ingar byggja á álagn­ing­ar­skrám rík­is­skatt­stjóra. Upp­lýs­ingar um hagnað og aukn­ingu eig­in­fjár eru úr árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna. Veiði­gjöldin mið­ast við fisk­veiði­árið 2016/17. Hvað varðar tekjur fisk­vinnslu­fólks er miðað við mið­gildi heild­ar­launa yfir 300 þús­unda tekju­trygg­ingu, þ.e. 468 þús­und krónur á mán­uði. Sam­an­burður …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár