Draumur um betra líf Sveinn hefur frá því hann fædd­ist verið alltum­lykj­andi í lífi Ásdísar. Hún hefur um ára­bil barist fyrir mann­rétt­indum hans og hefur lengi átt þann draum að hann fengi betra líf en það sem hann átti í íbúð­inni á Akureyri. Mynd: Golli

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á vegum Akur­eyr­ar­bæjar. Hann bank­aði oft ítrekað og grét áður en starfs­fólk opn­aði fyrir honum. Móðir hans gerði end­ur­teknar athuga­semdir við að hann væri læstur inni og segir son sinn hafa verið van­ræktan. Fyrr á þessu ári greip hún til þess örþrifa­ráðs að flytja hann búferlum í annan lands­hluta til að fá mann­sæm­andi aðbúnað fyrir hann. Mál Sveins varpar ljósi á alvar­legar brotala­mir í þjón­ustu við fatlað fólk á Íslandi og sýnir hvernig mann­rétt­indi hafa verið virt að vettugi árum saman.

Sveinn Bjarna­son er 35 ára karl­maður með mikla fötlun og þarf aðstoð við allar athafnir dag­legs lífs. Sex vikur eru síðan hann flutti til Egils­staða en í fimmtán ár þar á undan, frá því hann var 21 árs, bjó hann í læstri íbúð á vegum vel­ferð­ar­sviðs Akur­eyr­ar­bæjar. Hann gat ekki sjálfur gengið um úti­dyrnar heldur þurfti að banka á hurð­ina til að vera hleypt þar út, en stundum heyrði eng­inn hann banka. Eftir að hann fékk síma hringdi hann jafn­vel þrjá­tíu sinnum á dag í móður sína, Ásdísi Snjólfs­dóttur, oft til að biðja hana um að láta starfs­fólk sam­býl­is­ins opna úti­dyra­hurð­ina. Ísskáp­ur­inn hans var einnig læstur.

Bankar innan fráSveinn þurfti að banka á hurð­ina til að láta starfs­fólk íbúða­kjarn­ans hleypa sér fram á gang, út úr íbúð­inni sem var heim­ili hans.

Sveinn þarf að ganga með bleyju og …

Kjósa
106
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er ekki við hæfi að nafngreina þá sem nenna ekki að sinna sinni vinnu í málefnum fatlaðra, eins og Sveinn Bjarnason hefur þurft að finna fyrir ?
    0
  • Bo Halldorson skrifaði
    Vonandi leiðir þessi umfjöllun til hjálpar Svenna
    1
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég á ekki til orð.
    4
  • Kristján Knútsson skrifaði
    Það þarf að kæra þetta velferðarsvið akureyrarbæjar, og láta þá avara til saka fyrir þetta mál, auðséð að aldrei var sótt um þessa undanþágu frá banni við nauðung, og hafa þau þá fullframið þann verknað að hafa haldið manninum í gíslingu/fangelsi/frelsissviptingu í 15 ár, ætti að vera andskoti há bótaupphæð sú.. folk fær fleiri milljónir eftir að hafa vetið að ósekju í gæsluvarðhaldi, þá á Sveinn rétt á sömu bótum!
    9
  • Magnus Magnusson skrifaði
    Ótrúlegt
    2
  • Sigrun Haraldsdottir skrifaði
    Þarna er greinilega starfsfólk og stjórnendur sem eru ekki starfi sínu vaxnir. Það er með ólíkindum að þetta hafi verið látið viðgangast í öll þessi ár!!
    10
  • EV
    Einar Völundur skrifaði
    Andskotans viðbjóður!
    7
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Sorglegt ef þetta er rétt!?!?
    Getur svona virkilega viðgengist í okkar samfélagi án þess að samfélagið taki á vandamálinu?
    Eða er okkar samfélag að verða ......
    9
    • Ármann Snjólfsson skrifaði
      Get fullvissað þig um að hvert einasta atriði í þessari umfjöllun er sannleikanum samkvæmt.
      8
    • Samfélagið er ekki að verða neitt, það hefur alltaf verið svona í garð fatlaðra
      6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fatlað fólk beitt nauðung

Úttekt og úrbætur til að Akureyrarbær „geri ekki mistök“ í þjónustu við fatlaða
FréttirFatlað fólk beitt nauðung

Úttekt og úrbætur til að Akur­eyr­ar­bær „geri ekki mis­tök“ í þjón­ustu við fatl­aða

Vel­ferð­ar­ráð Akur­eyr­ar­bæjar hefur falið sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs að láta gera óháða úttekt á verk­ferlum bæj­ar­fé­lags­ins þegar kemur að rétt­inda­gæslu fyrir fatlað fólk og að í kjöl­farið verði gerðar til­lögur að úrbótum. Málið var tekið fyrir á fundi ráðs­ins í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um mál Sveins Bjarna­sonar sem bjó í læstri íbúð á vegum Akur­eyr­ar­bæjar í fimmtán ár.
„Óviðunandi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman
FréttirFatlað fólk beitt nauðung

„Óvið­un­andi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman

Þriggja ára bið eftir ráð­gjöf frá sér­fræði­teymi um aðgerðir til að draga úr beit­ingu nauð­ungar í þjón­ustu við fatlað fólk er óvið­un­andi að mati félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Það var hins vegar sá tími sem Akur­eyr­ar­bær beið eftir ráð­gjöf­inni í máli Sveins Bjarna­sonar sem var læstur inni í íbúð á vegum bæj­ar­ins. Ráðu­neytið ítrekar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauð­ung.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár