
Úttekt og úrbætur til að Akureyrarbær „geri ekki mistök“ í þjónustu við fatlaða
Velferðarráð Akureyrarbæjar hefur falið sviðsstjóra velferðarsviðs að láta gera óháða úttekt á verkferlum bæjarfélagsins þegar kemur að réttindagæslu fyrir fatlað fólk og að í kjölfarið verði gerðar tillögur að úrbótum. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um mál Sveins Bjarnasonar sem bjó í læstri íbúð á vegum Akureyrarbæjar í fimmtán ár.



